Morgunblaðið - 12.11.2004, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið á sunnudagskvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal
Boðin verða upp um 160 verk, þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna.
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14 – 16,
í dag kl. 10.00 – 18.00, á morgun kl. 10.00 – 17.00 og á sunnudag kl. 12.00 – 17.00.
Sími 551 0400
Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Um veruleikann, manninnog ímyndina er heitisýningar á nýrri ís-lenskri myndlist, sem
opnuð verður í Listasafni Íslands í
kvöld. Þar verða um 40 verk eftir
20 listamenn, og ljósi varpað á þá
nýsköpun sem átt hefur sér stað í
íslenskri myndlist síðasta áratug.
Sýningin leiðir í ljós, að sögn Ólafs
Kvaran, forstöðumanns Listasafns-
ins, að í list samtímans er stöðugt
verið að reyna á og umbreyta
mörkum listarinnar – að í dag eru
ekki til staðar sértæk lykilhugtök
sem hægt er að nota til að greina
og lýsa listinni til að heimfæra hana
undir þröngan stíl eða hugmyndir.
Höfundar verkanna eru Ásmund-
ur Ásmundsson, Birgir Snæbjörn
Birgisson, Birgir Örn Thoroddsen,
Egill Sæbjörnsson, Erling Þ.V.
Klingenberg, Finnur Arnar Arn-
arson, Gabríela Friðriksdóttir,
Gjörningaklúbburinn, Guðný Rósa
Ingimarsdóttir, Guðrún Vera
Hjartardóttir, Hildur Bjarnadóttir,
Jóhann Ludwig Torfason, Magnús
Sigurðarson, Margrét H. Blöndal,
Markmiðh, Olga Soffía Bergmann,
Ósk Vilhjálmsdóttir, Valgerður
Guðlaugsdóttir, Unnar Örn Jón-
asson Auðarson og Þóroddur
Bjarnason.
Sterk samfélagsleg skírskotun
Ólafur Kvaran segir að það sé
mikilvægt að Listasafn Íslands
fjalli um samtímalistina og geri til-
raun til að svara spurningunni,
hvað það sé sem hafi verið mest
einkennandi fyrir íslenska myndlist
undanfarin ár. Jafnframt sé það
safninu metnaðarmál að önnur sýn-
ing með áþekkum markmiðum
verði haldin hér að ári. „Það er að
sjálfsögðu ögrandi og spennandi
verkefni fyrir listasafn að takast á
við slíkt viðfangsefni, en mæli-
kvarðinn á virkni safns í sínum
samtíma er eðlilega hverju það
miðlar, hvort sem það eru list-
söguleg viðfangsefni með ráðandi
söguleg viðmið eða list sem er nær
okkur í tíma. Listasafn er stofnun
sem gefur kost á margvíslegum
boðskap, upplifunum og upplýs-
ingum en er jafnframt hlaðin tákn-
rænni vísan til varðveislu og að-
gengis að menningararfinum. Það
sem skiptir samt sem áður meg-
inmáli er, að safnið með miðlun
sinni og sýningarstefnu taki þátt í
að efla samtalið milli listar og al-
mennings bæði hvað varðar tján-
ingu listamanna og upplifun fólks.
Þannig verður safnið vettvangur
sem styrkir tjáningarfrelsi og mik-
ilvæg skoðanaskipti.“
Markmið sýningarinnar er að
sögn Ólafs að kynna þá listamenn
sem hafa látið að sér kveða á síð-
astliðnum áratug og fást einkum
við vísanir í veruleikann, manninn
og ímyndina sem að sjálfsögðu
skarist með ýmsu móti. Þessi merk-
ingarsvið hafi með margvíslegum
hætti sett sterkan svip á þá ný-
sköpun sem hefur átt sér stað í ís-
lenskri myndlist á undanförnum ár-
um. „Sýningin bregður ljósi á að
listin í dag býr yfir sterkri sam-
félagslegri skírskotun hvort heldur
er með vísan í hversdagsleikann
eða mannslíkamann, að þá eru jafn-
framt skapaðar áleitnar líkingar og
tákn fyrir nýjar áríðandi frásagnir
um þjóðfélagið og stöðu ein-
staklingsins. Samtímis eru tekin
fyrir mörg átakaefni í umræðu
samtímans: ábyrgð vísindanna,
kynhlutverk, lífsgæði, ímyndin eða
hlutverk og staða listarinnar. Sýn-
ingin leiðir í ljós, að í list samtím-
ans er stöðugt verið að reyna á og
umbreyta mörkum listarinnar – að í
dag eru ekki til staðar sértæk lyk-
ilhugtök sem hægt er að nota til að
greina og lýsa listinni til að heim-
færa hana undir þröngan stíl eða
hugmyndir.“
Á sýningunni verður gerð tilraun
með miðlun upplýsinga um verk og
listamenn með gsm-farsímatækni.
Með þessari tækni verður hægt að
sækja upplýsingar um myndlistina
og heyra frá listamönnunum sjálf-
um auk þess sem notendur geta
sagt frá eigin reynslu með því að
senda sms-skilaboð sem verða birt
á heimasíðu Listasafns Íslands.
Myndlist | Sjónum beint að nýsköpun á nýrri sýningu Listasafns Íslands
Safnið efli samtal milli
listarinnar og almennings
Xetra er svöng, tölvumálverk eftir Jóhann Ludwig Torfason.
Landnám, myndband og kofi eftir Ósk Vilhjálmsdóttur.
Hundálfur eftir Olgu Soffíu Bergmann.
Fréttir
í tölvupósti