Morgunblaðið - 12.11.2004, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 31
MENNING
á sunnudag
Ellen‚Ef barnið þitt kæmi og segði: Það var strákur
sem kýldi mig í nefið, myndirðu þá svara:
Farðu þá út og kýldu hann enn meira? Slíkur
Bush-ismi leiðir af sér eintómar hörmungar.‘
Íbúðalánasjóður auglýsir skráningu skuldabréfa í
Kauphöll Íslands.
Íbúðabréf Íbúðalánasjóðs – Flokkur HFF150914
Nafnverð útgáfu
Nafnverð þeirra bréfa sem nú verða skráð er
1.000.000.000,- krónur og hefur áskrift fengist
að öllum bréfunum.
Opinn flokkur
Skuldabréf flokksins eru til 10 ára. Skuldabréfin
eru jafngreiðsluskuldabréf með föstum vöxtum
og tveimur árlegum afborgunum, 15. mars og
15. september og með lokagjalddaga 15. septem-
ber 2014. Skuldabréfin eru verðtryggð samkvæmt
vísitölu neysluverðs. Grunneining skuldabréfanna
er ISK 1. Auðkenni flokksins verður HFF150914,
ISIN númer XS0205348427.
Skráning
Umsjónaraðili skráningar í Kauphöll Íslands er
Deutsche Bank AG London. Skráningarlýsingu
og gögn sem vitnað er til í henni má nálgast hjá
Íbúðalánasjóði, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Skráningardagur
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann
16. nóvember 2004.
Borgartúni 21
105 Reykjavík
Sími: 569 6900 - 800 6969
Fax: 569 6800
Skráning skuldabréfa
í Kauphöll Íslands
FA
B
R
IK
A
N
Mörgum þykir það líklegaekki sjálfgefið að starf-rækt sé sinfóníuhljóm-
sveit í ekki stærri bæ en Akureyri,
jafnvel þótt umdæmi hennar sé ör-
lítið stærra. Guðmundur Óli Gunn-
arsson er á öðru máli. Fyrir rösk-
um áratug setti hann á laggirnar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands –
hljómsveit sem fyrir margt löngu
hefur fest sig í sessi, ekki aðeins í
norðlensku tónlistarlífi, heldur á
landsvísu.
Jón Hlöðver Áskelsson, tónlistar-
gagnrýnandi Morgunblaðsins,
kemst svo að orði í umsögn um
flutning hljómsveitarinnar á Sin-
fóníu nr. 2 í D-dúr eftir Johannes
Brahms á tónleikum í febrúar á
þessu ári:
„Það varð
strax ljóst í
fyrsta þætti
Brahms-
sinfóníunnar nr. 2, allegro non
troppo, að hér færi enginn „svang-
ur“ frá borði. Þéttur og mikill
hljómur hljómsveitarinnar barst að
mínum eyrum eins og þarna væri
níutíu manna hljómsveit að leika,
en ekki fimmtíu manns, og und-
urfagurt stefið í sellóunum hljóm-
aði þétt og grípandi, stefið sem um
margt er líkt laginu sem Brahms
samdi síðar og við sungum í barna-
skólanum „Sofðu vært, sofðu rótt“.
Guðmundi Óla tókst svo að halda
spennuboganum út í gegnum verk-
ið og í ólgandi hljómkviku lokaþátt-
ar með tilheyrandi logni á undan
stormi náðist hápunktur, sem und-
irstrikaði bæði hvers flytjendur eru
megnugir og jafnframt hvílíkur
snillingur Brahms var og tilfinn-
ingamaður, enda þótt hann vildi
sjálfur ekki við það síðarnefnda
kannast […]
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
er boðberi nýs tíma í tónlistarlífi á
Akureyri og þarf að gera sér grein
fyrir því.“
Tólfta starfsár hljómsveitarinnarhefst með tónleikum í Glerár-
kirkju á Akureyri kl. 16 á sunnu-
dag. Á efnisskrá eru tvö verk;
Sellókonsert eftir Robert Schu-
mann og Sinfónía nr. 4 í e-moll op.
98 eftir Johannes Brahms. Tón-
sprotinn verður í hendi Guð-
mundar Óla Gunnarssonar.
Einleikari á tónleikunum verður
Nicole Vala Cariglia, ungur Ak-
ureyringur sem býr og starfar nú
um stundir í Boston í Bandaríkj-
unum.
„Það er virkilega gaman að
koma heim og spila einleik með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,“
segir Nicole Vala sem kemur gagn-
gert í þeim erindum. Hún hefur
komið sér makindalega fyrir í sín-
um gamla heimabæ, þegar blaða-
maður nær tali af henni – og bíður í
eftirvæntingu.
„Þetta er eiginlega „mín hljóm-
sveit“,“ heldur hún áfram. „Ég
byrjaði að spila með hljómsveitinni
þegar ég var í námi við Tónlistar-
skólann á Akureyri en hefð er fyrir
því að lengra komnir nemendur
spili með henni. Það er góður siður
enda mjög mikilvægt að nemendur
fái tækifæri til að kynnast atvinnu-
hljómsveit svo snemma. Síðan hef
ég spilað oft með hljómsveitinni.
Kom til dæmis fram á öllum tón-
leikum hennar í fyrra, þótt ég væri
búsett fyrir sunnan.“
Þetta er samt í fyrsta sinn að
Nicole Vala leikur einleik með
hljómsveitinni. „Ég hlakka til að
vera í þessu hlutverki að þessu
sinni og ekki spillir það fyrir að
fyrsti kennarinn minn, Óliver Kent-
ish, kemur að sunnan til að spila
með hljómsveitinni á tónleikunum.
Hvað getur það verið betra?“
Nicole Vala ætlar að spila Selló-konsert eftir Robert Schu-
mann á tónleikunum. Hann var
saminn árið 1850 en frumfluttur í
Leipzig tíu árum síðar, að tónskáld-
inu látnu. „Konsertinn var skrif-
aður á síðasta gróskuskeiði Schu-
manns sem tónskálds. Hann var
ýmist þunglyndur eða manískur á
þessu skeiði og hefur greinilega
verið í síðarnefnda ástandinu þeg-
ar hann samdi verkið því hann lauk
við það á tveimur vikum,“ segir
Nicole Vala og bætir við að þetta sé
hennar uppáhaldskonsert.
Hún segir að konsertinn sé í senn
lýrískur og innhverfur, undir niðri
kraumi angist. „Verkið er dæmi-
gert fyrir Schumann á þessum
tíma.“
Nicole Vala er, sem fyrr segir,
búsett í Boston um þessar mundir
og lætur vel af sér ytra. Hún hafi
nóg að gera. „Meðan mér líður vel
úti og hef nóg fyrir stafni verð ég
þar. Það er samt alltaf gaman að
koma heim og spila. Ég vil alls ekki
tapa niður þeim tengslum,“ segir
Nicole Vala, sem íslenskir tónlistar-
unnendur geta næst séð á Myrkum
músíkdögum eftir áramót. Þar mun
hún flytja íslenska tónlist fyrir selló
og píanó, ásamt Árna Heimi Ing-
ólfssyni.
En aftur norður í land. NicoleVala segir það mikið afrek
hjá Guðmundi Óla að hafa byggt
upp jafn öfluga hljómsveit og SN
úti á landsbyggðinni. „Auðvitað
kemur alltaf hluti af hljóðfæraleik-
urunum að sunnan fyrir hverja tón-
leika en það breytir því ekki að
Guðmundur Óli hefur byggt upp
sterkan kjarna hérna fyrir norðan.
Það er virkilega gaman að hafa al-
vöru hljómsveit á Akureyri enda
nýtur SN velvildar og tónleikar
hljómsveitarinnar eru iðulega vel
sóttir.“
Nicole Vala Cariglia hittir þarna
naglann á höfuðið. Ísland er lítið
land. Það breytir því þó ekki að það
er mikilvægt fyrir tónmenningu
þjóðarinnar að atvinnumennska sé
stunduð víðar en á höfuðborg-
arsvæðinu. Mikil vakning hefur
verið á Austurlandi á liðnum miss-
erum, einkum í kringum Óperu-
stúdíó Austurlands. Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands er annar
máttarstólpi á landsbyggðinni sem
brýnt er að styðja við og hvetja til
dáða.
Enginn fer svangur frá borði
’Það er virkilega gamanað hafa alvöru hljóm-
sveit á Akureyri enda
nýtur SN velvildar og
tónleikar hljómsveit-
arinnar eru iðulega vel
sóttir.‘
AF LISTUM
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Nicole Vala Cariglia er gestur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn