Morgunblaðið - 12.11.2004, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 12.11.2004, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN nammi, namm... | auglýsingasíminn er 569 1111 Jól 2004 kemur laugardaginn 27. nóvember Í LAUGARDAGSBLAÐI DV hinn 16. október sl. er stutt bak- síðugrein, þar sem Auðunn Blön- dal segir frá þeim kostum sem fylgja því að búa á „hótel mömmu“. Þar er m.a. sagt frá því að mamma Auðuns setji í þvottavél fyrir hann en hann sé nú að æfa sig, því að bráðlega flytji hann í eigin íbúð með kærustunni sinni og hann vill með því að æfa sig að setja í þvottavél koma í veg fyrir að hann verði eins og þroskaheftur. Í við- talinu segir: ,,… ég er byrjaður að æfa mig svo að ég verði ekki eins og þroska- heftur þegar ég flyt í nýju íbúðina …“ Þroskaheft fólk er minnihlutahópur sem vert er að bera virð- ingu fyrir eins og öðru fólki. Virðing- arleysið sem birtist í slíku tali og skrifum sem hér um ræðir er ekki til fyrirmyndar. Þetta er í annað sinn sem ég hef orðið vör við virðingarleysi í tali Auðuns Blöndal um þroskahefta. Í einum þætti Svínasúpunnar sem sýnd er á Stöð 2 segir hann eitthvað á þá leið: „Heldurðu að ég sé eitthvað þroskaheftur og geti ekki aðlagast öðru fólki?“ Í þættinum er Auð- unn ekki í eigin persónu að segja þetta heldur er hann í hlutverki einhvers sem er nýbyrjaður á nýj- um vinnustað. Mér er ekki kunn- ugt um hvort Auðunn samdi þess- ar línur sjálfur. Nú segja sjálfsagt einhverjir að þeir sem eru viðkvæmir fyrir svona orðalagi eigi þá bara ekkert að vera að lesa þetta eða ekkert að vera að horfa á þætti þar sem við getum átt von á slíku orðalagi. Ég var nú reyndar áskrifandi að DV og leit því yfir blaðið þegar tími gafst til. Við á mínu heimili höfum reyndar ekki verið áskrif- endur að Stöð 2 og sá ég atriðið úr áðurnefndum þætti Svínasúp- unnar ekki í lokaðri dagskrá. Ég vil líka benda á það að þó að tal- frelsi og prentfrelsi sé í landinu, þá fylgir því alltaf viss ábyrgð að opna munninn til að segja eitt- hvað. Það á ekki síst við um fjöl- miðlafólk og þá sem eru einhvers konar fyrirmyndir annarra. Auð- unn Blöndal er þetta hvort tveggja, þ.e. fjölmiðlamaður og fyrirmynd drengja sem horfa á hann í sjónvarpinu. Ég er reyndar hissa á að Auðunn Blöndal skuli tala svona vegna þess að einn gesta- stjórnandi í þætti hans og félaga hans á Skjá einum er þroska- skertur. Ég reikna reyndar ekki með að Auðunn hafi meint þetta illa sem hann sagði. Ég tel frekar að tal hans byggist á vissri fáfræði og reynsluleysi. Gott er að hafa það að leið- arljósi áður en maður talar að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ef umræða um þroskaheft fólk hefur þessa neikvæðu mynd í fjölmiðlum skilar það sér ósjálfrátt út í samfélagið og þá sér í lagi til þeirra sem eru að alast upp. Ef við tökum t.d. öfgafengið dæmi um þau áhrif sem sjónvarp getur haft á börn, þá getum við hugsað til drengjanna sem myrtu James Bulger, vegna áhrifa frá mynd sem þeir höfðu nýverið séð. Það dæmi sýnir okkur svart á hvítu hvaða áhrif sjónvarpið getur haft. Í þeim dæmum sem ég fjalla um hér erum við að tala um viðhorf og þau áhrif sem ummæli fólks, og þá sér í lagi í fjölmiðlum, geta haft á viðhorf annarra til þroska- heftra einstaklinga. Ef þessi ummæli mín hleypa illu blóði í einhvern sem les þetta ættu viðkomandi einstaklingar að íhuga hvað virðingarlaust tal um ákveðna einstaklinga eða hópa getur haft slæm áhrif á þá sem um er rætt eða þá sem hafa aðra sýn á málinu. Fyrir utan það að þroskaheft fólk á ekki erfiðara en aðrir með að aðlagast öðru fólki, það getur lært að lesa og horfir á sjónvarpið og það getur líka lært að setja í þvottavél. Er Auddi hrædd- ur um að hann sé þroskaheftur? Sigrún Þórarinsdóttir fjallar um þroskahefta Sigrún Þórarinsdóttir ’Þroskaheftfólk er minni- hlutahópur sem vert er að bera virðingu fyrir eins og öðru fólki.‘ Höfundur er kennari, foreldri og uppalandi. EINKENNI eftir hálshnykk er eitt umdeildasta stoðkerfisvanda- mál í heilbrigðiskerfinu. Á höf- uðborgarsvæðinu eru um það bil 1.600 hálshnykkir skráðir árlega á slysa- og endurkomudeild Land- spítala – háskóla- sjúkrahúss. Um 19– 60% þessara ein- staklinga kvarta undan verkjum og skertri starfsgetu og 9–26% þeirra eru enn frá vinnu vegna ein- kenna sex mánuðum eftir slys. Aldurs- dreifing þolenda er á bilinu 16 til 80 ára og eru flestir á milli 16 og 24 ára. Konur eru a.m.k. tvöfalt líklegri til að þróa með sér einkenni eftir háls- hnykk en karlar. Aðal ástæðan er talin vera sú að konur eru með líkamlega veikbyggðari háls en karlar. Tíðni hálshnykkja jókst við lögleiðingu bílbelta svo og fjölgun umferðarljósa. Á móti fækkaði stórum áverkum. Ekki ríkir einhugur meðal heil- brigðistétta um orsakir og afleið- ingar hálshnykks. Til þessa hefur hlutlægt mat á líkamsástandi fólks með viðvarandi einkenni eftir bíl- ákeyrslu skort og hefur umræðan um réttmæti kvartana meira ein- kennst af tilfinningum en hald- bærum rökum. Í flestum tilvikum (um 85%) kemur ekkert fram á myndgreiningu er skýrt getur ein- kenni. Niðurstöður líkamsskoð- unar gefa til kynna að um mismik- inn tognunaráverka á hálshrygg geti verið að ræða, en niðurstöð- urnar eru að öðru leyti að mestu byggðar á huglægum kvörtunum einstaklingsins (sem eru t.d. verk- ir, doði og svimi). Algengt er að einkennin aukist eftir því sem frá líður slysi og geta þau orðið út- breidd um líkamann. Á alþjóðaráðstefnu um háls- hnykk sem haldin var í Denver, Colorado í október 2003, var lagt til að greina þyrfti líffræðileg og sálfélagsleg einkenni til að fá heildarmynd af ástandi sjúklings. Nýjar hlutlægar aðferðir eru í þróun til að meta líffræðilegar truflanir svo sem á starfsemi háls- liða, hálsvöðva, jafnvægiskerfis og stjórn hálshreyfinga. Aukinn skilningur á líffræðilegri starfsemi hálshryggjar og niðurstöður rann- sókna með sérhæfðum tækjamæl- ingum gætu því valdið straum- hvörfum við greiningu á ástandi hálshryggjar eftir bílákeyrslu. Í þeim tilfellum þar sem hægt er að greina líffræðilegar og starfrænar truflanir verður hægt að stuðla að enn hnitmiðaðri meðferð. Þess má geta að á síðustu misserum hafa þróast nýjungar í meðferð út frá þekkingu sem hefur komið fram með ofangreindum tækjamæl- ingum. Nauðsynlegt er að hafa í huga niðurstöður nýlegra rannsókna sem benda til þess að greining sál- rænna og sálfélagslegra þátta hafi meira forspárgildi um horfur, fremur en umfang verkja, stig meinsemdar og viðvaranleiki ein- kenna. Þeir þættir sem skipta meginmáli í þessu sambandi eru sálræn einkenni eins og áfalla- streita eða áfallaröskun (post- traumatic stress disorder) og þunglyndis- og kvíðaeinkenni, svo og bjargráð (coping strategies) og sjálfstrú (self-efficacy efficiency) einstaklingsins. Til þessa hafa rannsóknir aðeins beinst annars vegar að greiningu líffræðilegra þátta eða hins vegar að greiningu sálrænna og sál- félagslegra þátta. Því er þörf á að framkvæma heildræna rannsókn sem felur í sér greiningu og með- ferð á bæði líffræðilegum sem og sálfélagslegum þáttum. Annar höf- unda vinnur nú að gerð dokt- orsverkefnis sem byggist á líf- fræðilegri og sálfélagslegri greiningu og meðferð fyrir ein- staklinga með einkenni eftir bílákeyrslu 8 til 10 vikum eftir slys. Næstkomandi laugardag verða höfundar með fyrirlestra í Hreyfi- greiningu, sjúkraþjálfun á Höfða- bakka 9 í Reykjavík. Fjallað verð- ur almennt um hálshnykki kl. 12.00 og um sálfélagslega þætti þeirra kl. 13.00. Hálshnykkur, líffræðilegt og sálfélagslegt vandamál? Harpa Helgadóttir og Hólm- fríður B. Þorsteinsdóttir fjalla um hálshnykki ’Því er þörf á að fram-kvæma heildræna rann- sókn sem felur í sér greiningu og meðferð á bæði líffræðilegum sem og sálfélagslegum þáttum.‘ Harpa Helgadóttir Harpa er sjúkraþjálfari MTc og doktorsnemi við læknadeild HÍ. Hólmfríður er sjúkraþjálfari í Hreyfigreiningu. Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 5171020 Opið: mán. - föstud.11-18 laugard.11-15 Spennandi gjafavörur og húsgögn Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.