Morgunblaðið - 12.11.2004, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 49
FÉTTIR
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Bridsfélag Hreyfils
Hafinn er fimm kvölda tvímenn-
ingur og urðu úrslit þessi fyrsta
kvöldið:
Daníel Halldórss. - Kári Sigurjónss. 99
Jón Sigtryggss. - Skafti Björnss. 98
Einar Gunnarss. - Ágúst Benediktss. 87
Björn Stefánss. - Ragnar Björnss. 86
Keppnin heldur áfram nk. mánu-
dagskvöld í Hreyfilshúsinu og hefst
spilamennskan kl. 19.30.
Heimsókn menntskælinga
til Bridssambandsins
Nú á haustönn er brids kennt til
eininga í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og Menntaskólanum við
Sund. Nemendur þessara skóla hitt-
ust í Síðumúlanum á dögunum og
tóku nokkur spil sér til skemmtunar,
þó keppnisskapið væri líka með í för.
Lokastaðan:
Helgi - Bó Hall, MS 15
Darri - Sindri, MH 12
Sigurður - Ólafur, MS 9
Björn - Þorkell, MS 7
Ísak - Heiður, MH 6
Guðjón efstur í Gullsmára
Lokið er 12 sveita keppni Brids-
deildar FEBK, Gullsmára. Efstu
sveitir voru þessar:
Sveit Guðjóns Ottóssonar 215
Sveit Ara Þórðarsonar 207
Sveit Einars Markússonar 197
Sveit Þorgerðar Sigurgeirsd. 171
Í sigursveitinni í sveitakeppninni
spiluðu Guðjón Ottósson, Guðmund-
ur Guðveigsson, Sigtryggur Ellerts-
son og Þorsteinn Laufdal.
Fram undan er tvímenningur alla
mánu- og fimmtudaga. Skráning kl.
12:45
Íslandsmót yngri spilara
Íslandsmót yngri spilara í tví-
menningi verður spilað helgina
13.–14. nóvember. Í flokki yngri
spilara eru þátttakendur fæddir 1.
janúar 1980 eða síðar. Þátttaka er
ókeypis.
Íslandsmót heldri spilara
Íslandsmót heldri spilara í tví-
menningi verður spilað sömu helgi.
Lágmarksaldur er 50 ár og sam-
anlagður aldur pars minnst 110 ár.
Bæði mótin eru haldin í Síðumúla
37 og hefst spilamennska kl. 11:00
báða dagana.
Keppnisstjóri er Sigurbjörn Har-
aldsson.
Skráning er hafin í s. 587 9360 og
www.bridge.is
Hornfirðingar
efstir í Landstvímenningnum
Alls tóku 60 pör þátt í Landství-
menningnum að þessu sinni. Spilað
var á fjórum stöðum: Reykjavík,
Ísafirði, Akureyri og Hornafirði.
Lokastaðan:
Guðbr. Jóhannss.-Gunnar, Hornaf. 68,83 %
Hrafnh. Skúlad.-Jörundur Þórðars., R
59,98
Frank Guðms.-Arnar Hinrikss, Ísaf. 59,81
Marinó Steinarss.-Sig. Erlings., Ak. 58,58
Frímann Stefánss.-Björn Þorlss., Ak. 58,43
Baldur Bjartms.-Halldór Þorvss., R 57,74
Finnur Magnúss.-Þórir Sveinss., Ísaf. 57,47
Gísli Steingrss.-Sigurður Steingrss. 57,13
Bridsfélag Borgarfjarðar
Mánudaginn 8. nóvember var
framhaldið með aðaltvímenning fé-
lagsins. Tungnamennirinir Örn og
Kristján voru í miklu stuði og skor-
uðu manna mest þetta kvöld. Aðrir
sem áttu gott kvöld voru
Örn Einarsson – Kristján Axelsson 73
Annar Einarsdóttir - Jón H. Einarsson 60
Hörður Gunnars.– Ingim. Ingimundars. 45
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 44
Röð efstu para að loknum tveimur
kvöldum er sem hér segir:
Hörður Gunnars. – Ingim. Ingimundars.
114
Anna Einarsdóttir – Jón H. Einarsson 106
Sveinbjörn Eyjólfsson – Lárus Pétursson 75
Örn Einarsson – Kristján Axelsson 68
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, mánud. 1.11. 2004.
Spilað á 11 borðum. Meðalskor 216
stig. Árangur N/S
Auðunn Guðmss. - Ólafur Ingvarsson 259
Sæmundur Björnss.- Oliver Kristóferss. 247
Albert Þorsteinss. -Bragi Björnsson 243
Árangur A/V
Ingib. Stefánsd. - Margrét Margeirsd. 267
Jóhanna Guðmundsd. - Örn Sigfússon 241
Soffía Theodórsd. - Elín Jónsd. 223
Bridsfélag Suðurnesja
Feðgarnir Óli Þór Kjartansson og
Kjartan Ólason sigruðu í sveitarokki
en með þeim spilaði í pari Karl Her-
mannsson. Þeir hlutu 189 stig. Vign-
ir Sigursveinsson og Úlfar Kristins-
son urðu í öðru sæti með 181 stig og
þríeykið Garðar Garðarsson, Gunn-
ar Guðbjörnsson og Grethe Íversen
urðu í þriðja sæti með 175.
Hæstu skor síðasta spilakvöld
fengu Arnór Ragnarsson og Guðjón
Svavar Jensen með 37 og Sigríður
Eyjólfsdóttir og Sigfús Yngvason
með 35.
Næsta keppni er barometer 3–4
kvöld með 6–7 spilum milli para.
Mæting kl. 19.30 mánudagskvöld á
Mánagrund.
Frá heimsókn menntskælinganna til Bridssambandsins.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
STJÓRNVÖLD skortir skýra fram-
tíðarsýn í málefnum tónlistarskól-
anna í tengslum við vinnu við nýja
lagasetningu um starfsemi þeirra, að
því er fram kemur í nýrri ályktun
Samtaka tónlistarskólastjóra, STS.
Telja samtökin að núgildandi lög
um fjárhagslegan stuðning við tón-
listarskóla frá árinu 1963 uppfylli
skilyrði sem þarf til að skapa nauð-
synlegan lagaramma um blómlega
tónlistarfræðslu á Íslandi.
Í ályktuninni er lýst yfir áhyggj-
um vegna nokkurra atriða sem nefnd
hafa verið í tengslum við endurskoð-
un laganna. Þar með talið hugmynd-
ir um gjaldtökuheimild, sem yrði til
þess að stærri hluta kostnaðar yrði
velt yfir á nemendur og heimili,
skiptingu kostnaðar, án þess að tillit
sé tekið til sérstöðu tónlistarnáms,
takmarkaðan aðgang að tónlistar-
skólum m.t.t. aldurs sem útilokar
fullorðna frá tónlistarnámi og hug-
myndir um að hætt verði að greiða
kennslukostnað stórs hóps nemenda
sem stundar nám í tónlist. Í álykt-
uninni kemur fram að Samtök tón-
listarskólastjóra óska eftir að eiga
aðild að viðræðum sem standa yfir
milli menntamálaráðuneytisins og
Sambands íslenskra sveitarfélaga
um kostnaðarskiptingu vegna tón-
listarnáms á framhalds- og háskóla-
stigi. Þá er á það bent að auka þurfi
þátt listnáms í grunnmenntun þjóð-
arinnar og sem dæmi fái innan við
helmingur grunnskólabarna lög-
bundna fræðslu í tónmennt.
Samtök tónlistarskólastjóra um ný lög um tónlistarskóla
Vilja aðild að viðræðum
um kostnaðarskiptingu
WALDORFSKÓLINN Sólstafir heldur sinn
árlega jólabasar laugardaginn 13. nóv-
ember í húsnæði skólans að Hraunbergi 12
í Breiðholti.
Boðið er upp á úrval leikfanga s.s. ýmiss
konar brúður og tréleikföng sem starfs-
menn og foreldrar leikskóla og skóla hafa
unnið að síðustu vikur. Þá verða til sölu
handmálaðar ljósaseríur, luktir, töskur,
heilsukonfekt, mataruppskriftir o.fl. Einn-
ig er selt kaffi og vöfflur. Basarinn er til
styrktar uppbyggingu Waldorfskóla á Ís-
landi.
Basar í
Waldorf-
skólanum
VEGNA 100 ára afmælis Goðdala-
kirkju í Skagafirði verður hátíð-
armessa þar sunnudaginn 14. nóv-
ember kl. 13.30. Sr. Jón
Aðalsteinn Baldvinsson vígslu-
biskup prédikar og sóknarprest-
urinn sr. Ólafur Þ. Hallgrímsson
þjónar fyrir altari. Kirkjukór
Mælifellsprestakalls syngur við at-
höfnina. Organisti er Sveinn Árna-
son.
Í tilefni þessa verða kaffiveit-
ingar í boði sóknarnefndar á
Bakkaflöt að lokinni athöfn og þar
mun sóknarprestur flytja erindi
um kirkjuna.
Goðdalakirkja í
Skagafirði 100 ára
ÞÝSKA sendiráðið mun í tilefni
af minningardegi látinna her-
manna, „Volkstrauertag“, sem er
sunnudaginn 14. nóvember, minn-
ast dagsins með breska sendi-
ráðinu, en á ensku nefnist þessi
dagur „Remembrance day“. Er
ákveðið að hittast á bifreiðastæð-
inu við Fossvogskirkju þann dag
kl. 10.45.
Athöfnina annast séra Arn-
grímur Jónsson.
Minningarathöfn
um látna hermenn
frá Þýskalandi
HINN 23. september var undirrit-
aður í Valetta á Möltu samningur
milli Íslands og Möltu sem mun
koma í veg fyrir tvísköttun á fyr-
irtækjum og einstaklingum hvors
lands fyrir sig.
Af hálfu Íslands undirritaði
samninginn Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, sendiherra Íslands á
Möltu með aðsetur í London, og
Cecilia Attard-Pirotta, ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytis Möltu.
Samningurinn var undirbúinn af
starfsmönnum fjármálaráðuneyta
beggja ríkja.
Samningurinn hefur þann tilgang
að efla fjárfestingar milli landanna
en sem kunnugt er rekur lyfja-
samsteypan Actavis lyfjaverksmiðju
á Möltu með 300 starfsmönnum.
Tvísköttunarsamn-
ingur við Möltu