Morgunblaðið - 12.11.2004, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 53
DAGBÓK
Miðstöð heilsuverndar barna heldur ídag sína árlegu haustráðstefnu áGrand hóteli Reykjavík undir yf-irskriftinni „Barnið vex ... en brókin?“
og vísar til þess að Miðstöð heilsuverndar barna
vinnur nú á landsvísu með verkefni og þróun þjón-
ustu ung- og smábarnaverndar og skólaheilsu-
gæslu.
Fjölbreytileg dagskrá ráðstefnunnar end-
urspeglar að heilsuvernd barna hér á landi sem í
nágrannaríkjunum stendur frammi fyrir nýjum
verkefnum í ljósi breyttra þjóðfélagshátta og betra
almenns heilsufars barna.
Geir Gunnlaugsson, forstöðumaður Heilsuvernd-
ar barna, segir gott þjónustustig og almenna far-
sæld í ung- og smábarnavernd hér á landi þýða að
þroskafrávik barna og greining þeirra hafi orðið
brýnna úrlausnarverkefni á sviði heilsuverndar
barna. „Einnig hafa börn með sérstakan bakgrunn
fengið vaxandi athygli, t.d. börn sem fæðast með
mjög lága fæðingarþyngd og langveik börn. Því er
nauðsynlegt að aðlaga heilsuvernd barna þessu
nýja umhverfi.“
Hversu mikilvægur er þessi málaflokkur?
„Heilsuvernd barna og framkvæmd hennar er að
mínu mati einn af hornsteinum hvers samfélags og
leggur grunn að framtíðar mannauði þjóða. Það er
ekki eingöngu heilsugæslan sem hefur hlutverk á
þessu sviði, þó hún sé mjög mikilvæg, heldur einnig
önnur svið samfélagsins, t.d. menningarstarfsemi
tengd börnum, t.d. íþróttir, tónlist, leiklist og bók-
menntir, og húsnæðis- og skipulagsmál. Mikilvægið
þarf einnig að endurspeglast í almennri umræðu
svo stjórnvöld taki mið af þörfum barna og fjöl-
skyldna þeirra í löggjöf og öðrum ákvörðunum.“
Hverjar eru helstu nýjungar á sviði heilsuvernd-
ar barna?
„Að mínu mati er ein helsta nýjungin sú áherslu-
breyting að líta á heilsuvernd barna sem samfellda
þjónustu við börn og fjölskyldur frá fæðingu til 18
ára aldurs, í anda Barnasáttmála SÞ. Með því erum
við m.a. að brjóta múra á milli ung- og smábarna-
verndar og skólaheilsugæslu og gera tilraun til að
líta á starfsemina sem eina heild þar sem einn þátt-
ur styður annan. Starfsemin í dag er þverfaglegri
en áður sem endurspeglar þá skoðun að heilsu-
vernd barna er ekki einkamál lækna og hjúkr-
unarfræðinga heldur verkefni alls samfélagsins.
Starfsemin er því eðli málsins samkvæmt í stöðugri
þróun, studd vísindalegum rannsóknum.
Betri greining þroskafrávika og inngrip fyrr en
áður er mikilvægt verkefni, en auk þess markviss
fræðsla á ýmsum sviðum, t.d. hvað varðar aga og
uppeldi, brjóstagjöf og svefn ungbarna.
Vaxandi þátttaka barna í leikskólum með vel
menntuðu starfsfólki skapar svo nýja og spennandi
möguleika til að efla enn heilsuvernd barna.“
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á www.hr.is
og fer skráning fram í síma 585 1350 eða á netfang-
inu barnapostur@hr.is. Ráðstefnan er opin öllu
áhugafólki um heilsuvernd barna á Íslandi.
Heilsuvernd | Ráðstefna um heilsuvernd barna á Grand hóteli Reykjavík
Nauðsynlegt að aðlagast nýju umhverfi
Geir Gunnlaugsson
fæddist 1951 í Gauta-
borg. Að loknu lækna-
prófi frá HÍ stundaði
hann framhaldsnám
og störf í barnalækn-
ingum og lýð-
heilsufræðum við
barnaspítala Karol-
inska/St Göran í
Stokkhólmi á árunum
1985 til 1993 og lauk þaðan doktorsprófi og
meistaraprófi. Árin 1982–85 og 1993–98
starfaði hann í Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku.
Hann var yfirlæknir Miðstöðvar heilsuverndar
barna 2000–04, nú forstöðumaður og er for-
maður Félags um lýðheilsu frá stofnun 2001.
Geir er kvæntur Jónínu Einarsdóttur mann-
fræðingi og lektor við HÍ og eiga þau þrjá syni.
Opið bréf til Sjafnar
Ingólfsdóttur
Í FRÉTTATÍMA sjónvarpsins í vik-
unni komu skólaliðar á fund formanns
síns, Sjafnar Ingólfsdóttur, til að
ræða launakjör í framhaldi af starfs-
mati á störfum starfsmanna Reykja-
víkurborgar. Þetta starfsmat virtist
ekki ná til skólaliða að svo komnu og
þegar fulltrúi úr hópi skólaliða orðaði
það svo að við værum með rétt rúmar
100 þús. krónur á mánuði í laun svar-
aði formaðurinn okkar að þetta væri
betra en ekki neitt.
Hvers eigum við að vænta með
slíkan formann í réttindabaráttu okk-
ar skólaliða? Ég tel þessi munnmæli
Sjafnar slíka mannfyrirlitningu á
störf okkar skólaliða að ég hvet hana
eindregið til að biðja okkur op-
inberlega afsökunar á orðum sínum
eða segja af sér ella.
Vestarr Lúðvíksson.
Meira um PoppTíví
MEÐ æluna í hálsinum sest ég nú
niður og skrifa þessi orð eftir að hafa
horft á 70 mínútur með dóttur minni.
Ég geri það stundum til að útskýra
fyrir henni óeðlið, ofbeldið og firr-
inguna í þáttunum. Ég var sjálf ekki
orðin kynþroska þegar fyrsti karl-
maðurinn leitaði á mig og ég þurfti að
þola klámfengna tilburði í orði og
verki. Það hefur fylgt mér síðan. Eftir
marga sálfræðitíma, fyrirbænir og
geðlækningar sem staðið hafa yfir
með hléum árum saman hef ég lært
að njóta kynlífs með manninum mín-
um. Kynlíf er frábært! En því þarf að
fylgja virðing og traust. Eitthvað ann-
að en þið boðið.
Ég bið ykkur, forsvarsmenn
stöðvarinnar, að athuga á hvaða leið
þið eruð. Hvað eruð þið að bera á borð
fyrir æsku þessa lands?! Þið hafið
e.t.v. ekki sjálfir lent í kynferðislegu
ofbeldi og finnst allt mega gera, segja
og selja. Þegar svo er þá er erfitt að
setja sig í annarra spor t.d. þeirra
sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Þið skilj-
ið ekki hvað særir blygðunarkennd-
ina. Hafið þið kannski ekki slíka
kennd lengur?
Ég geri ráð fyrir að viðbrögð ykkar
við orðum mínum séu eitthvað á þessa
leið: „Hættu þessu röfli, kelling, og
slökktu ef þú getur ekki horft.“ Ég
mun gera það framvegis því mér var
nú endanlega nóg boðið.
Móðir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
SÝNINGIN Vetrarmessa var opnuð
með pomp og prakt í Norræna hús-
inu í gær. Þar sýna verk sín fimmtán
listamenn og -konur, sem öll eiga
það sameiginlegt að hafa verið virk í
listalífinu í borginni undanfarin ár,
og sýnt víða um land og erlendis.
Vetrarmessa er framhald sýning-
arinnar „Draumar Dystópíu“, sem
haldin var í sýningarsal Klink og
Bank síðastliðið sumar.
Þátttakendur í sýningunni eru
listamennirnir Arnfinnur Amazeen,
Baldur Geir Bragason, Birta Guð-
jónsdóttir, Bryndís Ragnarsdóttir,
Darri Lorenzen, Elín Helena
Evertsdóttir, Gunnhildur Hauks-
dóttir, Hafsteinn Mikael, Jón Sæ-
mundur Auðarson, Jóní Jónsdóttir,
Markús Þór Andrésson, Páll Banine,
Ragnar Kjartansson, Sigríður Björg
Sigurðardóttir og Sirra Sigrún Sig-
urðardóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Vetrar-
messa í
Norræna
húsinu
Vetrarmessan verður opin í sýning-
arsölum og anddyri Norræna húss-
ins frá kl. 12–17 alla daga nema
mánudaga, fram að áramótum.
PLÖTUBÚÐ Smekkleysu í Kjör-
garði á Laugavegi 59 verður í dag
kl. 17 vettvangur tónleika, en eig-
endur búðarinnar segja það stefn-
una að halda þá hefð að hafa tón-
leika á hverjum föstudegi og
laugardegi. Í dag munu Plötusnúð-
arnir DJ Galdur og DJ B-Ruff leika
ásamt sveitinni Jeff Who?, sem m.a.
er skipuð meðlimum sveitanna
Ghostigital og Skakkamanage.
Sveitin leikur í dag sína aðra tón-
leikar, en þeirra fyrstu tónleikar
voru um Iceland Airwaves-helgina
og fengu þeir m.a. góða dóma hjá
vefritinu www.drownedinsound-
.com. Tónlist Jeff Who? er að sögn
meðlima í anda listrænna gít-
arrokksveita á borð Interpol og
Franz Ferdinand, nokkurs konar
listrænt dansgólfsrokk.
Á morgun kl. 15 munu hins vegar
skáldin Bragi Ólafsson og Kristín Ei-
ríksdóttir lesa úr verkum sínum,
Samkvæmisleikir og Kjötbærinn, en
hljómsveitin Steintryggur mun leika
undir. Þessi gjörningur verður und-
ir merkjunum „Orðsins tónlist“.
Í nýrri plötubúð Smekkleysu í Kjörgarði.
Tónleikar í Smekkleysu
Morgunblaðið/RAX
BRYNHILDUR Guðjónsdóttir
mun syngja nokkur lög í Bókabúð
Máls og Menningar í dag kl.
16.30 í tilefni af útgáfu nýrrar
plötu með lögum úr metsölusýn-
ingunni Edith Piaf eftir Sigurð
Pálsson, sem sýnd er í Þjóðleik-
húsinu.
Platan er gefin út af Tólf tón-
um en allar útsetningar eru eftir
Jóhann G. Jóhannsson sem leikur
á píanó og með honum leika
landsþekktir tónlistarmenn, þeir
Birgir Bragason á bassa, Jóel
Pálsson á klarinett og tenorsax,
Hjörleifur Valsson á fiðlu og
Tatu Kantomaa á harmonikku.
Útgáfugleði Edith Piaf
Morgunblaðið/Ásdís