Morgunblaðið - 12.11.2004, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
VINCE VAUGHN BEN STILLER
DodgeBall
Ó.Ö.H. DV
Toppmyndin á
Íslandi í dag
Sýnd kl. 3.20 Ísl. tal.
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI
RAUNVERULEGT?
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
Sýnd kl. 3.50 og 8.
Sýnd kl. 6 og 10.
Loksins mætast frægustu skrímsli
kvikmyndasögunnar í mögnuðu
uppgjöri!
i í li
i í
j i
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 6. B.i. 14 ára.
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 3.50
J U L I A N N E M O O R E
Frumsýnd 18. nóv
Frumsýnd 18. nóv
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
kl. 6, 8.30 og 10.40 B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 8 og 10. KRAFTSÝNING!
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI
MARGRÉT Eir Hjartardóttir, söng- og leik-
kona, gefur út sína þriðju sólóplötu á morgun.
Kallast hún Í næturhúmi og dregur nafn sitt af
samnefndu lagi sem naut mikilla vinsælda í
sumar. Í næturhúmi kemur í kjölfar plötunnar
Andartak sem naut talsverðrar hylli síðustu jól
og varð lagið „Heiðin há“ („Wuthering
Heights“ eftir Kate Bush) vinsælt og fylgdi því
myndband sem var sömuleiðis mikið spilað.
Fyrsta plata Margrétar Eirar, MEir, kom út
árið 2000.
Margrét Eir mun um helgina halda tvenna
tónleika til að fagna útkomu plötunnar nýju. Í
kvöld verður hún í Bæjarbíói í Hafnarfirði en á
sunnudaginn treður hún upp í Samkomuhús-
inu á Akureyri.
„Þessi plata er svipuð að gerð og sú síðasta,“
segir Margrét. „Það er þessi stóri hljómur,
strengir og dramatík. Svona fer þetta þegar
leikkonur gefa út plötur (hlær)!“
Það er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sem
sér um upptökur á plötunni, líkt og var með þá
síðustu.
Eins og áður segir verða fyrri útgáfu-
tónleikarnir í Bæjarbíói, en Margrét var alin
upp í Hafnarfirði og kom fyrst fyrir sjónir
landsmanna þegar hún sigraði í Söngvakeppni
framhaldsskólanna fyrir hönd Flensborg-
arskóla.
„Jú jú, dóttir Hafnarfjarðar er að koma
heim,“ segir Margrét og hlær við. „Það er ansi
langt síðan ég hef haldið tónleika í Hafnarfirði.
Húsið er æðislegt og eitthvað lék ég nú þarna
þegar ég var í Flensborg.“
Margrét starfar um þessar mundir á Ak-
ureyri en hún tekur þátt í væntanlegri upp-
færslu Leikfélags Akureyrar á Óliver! og er
einnig í sýningunni Með næstum allt á hreinu
á Broadway.
„Það er temmilega mikið að gera hjá mér.
Ég er svolítill vinnufíkill í mér. En ég stend
ennþá í lappirnar – þetta er auðvitað ofsalega
skemmtilegt. Manni finnst maður vera heims-
borgari þar sem maður er á stöðugu flakki á
milli Akureyrar og Reykjavíkur!“
Lag af plötunni er nú komið í spilun, lagið
„Einn góðan dag“ sem Margrét syngur ásamt
Stefáni Hilmarssyni. Á tónleikunum verður
Margrét Eir studd hljómsveit auk þess sem
söngvararnir Stefán Hilmarsson, Regína Ósk
og Friðrik Ómar koma fram.
Tónlist | Margrét Eir
kynnir nýja plötu
Áfram
heiðina
háu
Í næturhúmi er þriðja sólóplata Margrétar Eirar.
Hafnarfjarðartónleikarnir hefjast klukkan
21.00 en Akureyrartónleikarnir klukkan
20.00. Miðasala er í verslunum Pennans-
Eymundssonar í Kringlunni og Hafnarfirði og
einnig hjá Leikfélagi Akureyrar. Miðaverð er
2.400 krónur en korthafar Visa fá 25% af-
slátt af miðaverði og áskrifendur hjá Leik-
félagi Akureyrar fá 500 króna afslátt.
Ákveðið hefur verið að hættaframleiðslu á sjónvarpsþátt-
unum margrómuðu Undir grænni
torfu eða Six Feet Under. Höf-
undur þessa Golden Globe-
verðlaunaþáttar sem gerast á útfar-
arstofu, Alan Ball, segir að búið sé
að ákveða að framleiða ekki fleiri en
fimm þáttaraðir, en Stöð 2 hefur ný-
hafið sýningar á fjórðu þáttaröð hér
á landi. Framleiðsla á þessari loka-
þáttaröð hefst í næstu viku en það
er kapalstöðin HBO sem framleiðir
og sýnir þættina í Bandaríkjunum.
„Það hefur verið afar gefandi að
vinna að þessum þáttum,“ segir
Ball. „en ef það er eitthvað sem þeir
hafa gengið út á þá er það sú stað-
reynd að allt tekur enda.“
Leikkonan Frances Conroy, sem
leikur móðurina Fisher, fékk Gold-
en Globe-verðlaun 2004 fyrir
frammistöðu sína í þáttunum.
Leikkonurnar Fiona Shaw, semlék Petúníu frænku Harry
Potter, og Saffron Burrows, sem
lék Andromache eiginkonu Hektors
í Tróju, eru fluttar saman í London.
Þær ku vera mjög ástfangnar og
íhuga að
staðfesta
sambúð
sína. Shaw
er 45 ára
og Burrows
er 31 árs.
Breskir bíóunnendur vilja aðKate Winslet taki að sér hlut-
verk Bridget Jones í næstu mynd-
um – fari svo að Renee Zellweger
hafni því að leika hana í fleiri en
tveimur myndum. Winslet fékk yf-
irburðakosningu en 41% aðspurðra
töldu að hún passaði best í hlut-
verkið. Zellweger hefur lýst því
hversu erfitt það er að þurfa enda-
laust að fita sig fyrir hlutverkið og
grennast aftur, en þó aldrei gefið
beint í skyn að hún hafi ekki áhuga
á að leika hlutverkið aftur fari svo
að höfundurinn Helen Fielding
skrifi þriðju bókina um piparjunk-
una skondnu.
Í öðru sæti í könnuninni var
Reese Witherspoone með 21% og
Vinurinn Jennifer Aniston í þriðja
með 14%.
Fólk folk@mbl.is