Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 21 MINNSTAÐUR PÓSTSENDUM www.islandia.is/~heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Árnesaptóteki Selfossi, Yggdrasil Kárastíg 1. Fjarðarkaupum Borgartúni 24 Spektro Lyfjaval Hæðarsmára Lyfjaval Þönglabakka Stúdíó Dan Ísafirði Ein með öllu Multívítamín, steinefnablanda ásamt spírulínu, Lecthini, Aloe vera ofl. fæðubótarefnum GARÐVERKFÆRI Ármúla 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 KEÐJUSAGIR TILBOÐSDAGAR GREINAKURLARAR HEKKKLIPPUR GREINAKLIPPUR HEKKKLIPPUR ÚÐAKÚTAR GARÐSLÖNGUR SLÖNGUTENGI ÓDÝRAR HJÓLBÖRUR AUSTURLAND Kárahnjúkavirkjun | Starfsmenn Impregilo eru farnir að steypa fóðringu í aðrennslis- göng Kárahnjúkavirkj- unar næst vatnsinntak- inu í Hálslóni og einnig í hjáveitugöngunum undir Kárahnjúka- stíflu. Á vefnum kara- hnjukar.is segir að fyrsti kílómetri að- rennslisganganna hafi verið sprengdur og grafinn á hefðbundinn hátt og sá kafli verði fóðraður á þennan hátt. Aðrir hlutar aðrennslisganganna eru að mestu heilboraðir. Steypufóðringin í aðrennslisgöng- unum er gerð með sérstöku stálmóti sem tekur 12 metra í hverri færu á beinum köflum en 6 metra í beygjum. Alls verða steyptar 87 færur, tvær á viku að jafnaði. Verkið hófst í að- rennslisgöngunum um miðjan mars en í hjáveitugöngunum í síðustu viku. Stálmótið þykir merkilegt fyrir- bæri eins og margur annar tæknibún- aður við virkjunarframkvæmdirnar. Það er spennt út og dregið saman með tjökkum þegar slegið er upp eða slegið frá við hverja færu verksins. Önnur tíðindi af virkjunarsvæðinu eru þau helst að borvélarnar eru að komast á fullan skrið á nýjan leik eftir að hafa verið hægfara eða alveg stopp undanfarnar vikur vegna vatnsleka, bergstyrkingar eða bilana. Í síðustu viku var boraður meira en hálfur kíló- metri, einkum var fart á vél nr. 2. Steypa fóðringu í aðrennslisgöngum Börnin kvödd | Á sunnudag verður barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Valþjófsstaðarkirkju í Fljótsdal. Til- efnið er að formlegu barnastarfi vetr- arins er að ljúka og eru börnin og for- eldrar þeirra boðin sérstaklega velkomin. Sr. Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur á Valþjófsstað, segir vetrarstarfið hafa verið fjölbreytt og það farið fram í Fellabæ og Brúarási, bæði í leikskólanum og í yngri bekk skólans og svo í leikskólanum í Hall- ormsstað. „Það verður mikið sungið og við kveðjum Gullu gæs og Rebba ref að sinni. Eftir guðsþjónustuna, sem hefst kl. 14, bíður okkar svo hressing,“ segir sr. Lára. Söngleikur | Æfingar á söng- leiknum Í Tívolí eru nú í fullum gangi hjá Leikfélagi Seyðisfjarðar. Söngleikurinn er eftir Guðjón Sig- valdason ásamt Steingrími Guðjóns- syni, Skagaleikflokknum og NFFA og er saminn í kringum Tívolíplötu Stuðmanna. Lög eins og Hr. Reykja- vík, Í Tivolí, Ólína og Bíólagið eru sett í nýtt samhengi og verður gam- an að sjá Seyðfirðinga spreyta sig á þeim. Rúmlega 30 manns munu taka þátt í sýningunni, þar af fjöldi ung- menna. Frumsýning er áætluð 29. apríl. Frá þessu er sagt á vefnum seyd- isfjordur.is. Reyðarfjörður | Fjarðaál Alcoa hef- ur sótt um tímabundið leyfi til Fjarðabyggðar vegna þjónustu- og upplýsingamiðstöðvar við gamla þjóðveginn vestan við Sómastaði í Reyðarfirði. Um er að ræða upplýs- ingamiðstöð fyrir framkvæmdir á ál- verslóð og ferðaþjónustu í Fjarða- byggð. „Við höfum orðið vör við mikinn áhuga og athygli bæði almennra ferðamanna og hópa að koma og fylgjast með því sem er um að vera hjá okkur og á svæðinu sem slíku,“ segir Hrönn Pétursdóttir, starfs- manna- og kynningarstjóri Fjarða- áls Alcoa. „Við viljum mæta þessari þörf, og þá gefa fólki tækifæri á að nálgast upplýsingar á auðveldan hátt. Með þetta í huga tókum við ákvörðun um að koma upp upplýs- ingamiðstöð, sem stefnt er á að opni núna í maí ef undirbúningur gengur samkvæmt áætlun. Hún verður staðsett þannig að hægt verði að sjá yfir byggingarsvæðið. Þar munum við kynna starfsemi Alcoa Fjarðaáls og byggingarframkvæmdirnar, en einnig er samstarf við Fjarðabyggð um að veita upplýsingar um sveitar- félagið, þ.e. svæðið.“ Miðstöðin á að vera opin sjö daga vikunnar á meðan mesti ferða- mannatíminn stendur yfir, en utan þess samkvæmt bókunum. Að byggingaframkvæmdatíma ál- versins loknum, árið 2007, verður þessi tiltekna aðstaða fjarlægð. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Upplýsa forvitna Fjarðaál Alcoa hyggst koma á fót upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn við gamla Sómastaðabýlið gegnt innkeyrslu að álvers- svæðinu á Reyðarfirði. Fjarðaál undirbýr opn- un upplýsingamiðstöðv- ar fyrir ferðamenn SUÐURNES Reykjanesbær | Jarðvinna er hafin vegna byggingar stúdenta- garða í tengslum við Íþróttaaka- demíu í Reykjanesbæ. Hafsteinn Guðmundsson íþróttafrömuður úr Keflavík tók fyrstu skóflu- stunguna að fyrsta áfanga verk- efnisins. Fasteignafélagið Þrek ehf. fékk úthlutaðar lóðir við Kross- móa í Njarðvík til byggingar um 75 nemendaíbúða. Íbúðirnar verða byggðar á gamla tjaldsvæði bæjarins og næsta nágrenni. Á næstu lóð er verið að byggja hús fyrir Íþróttaakademíu í Reykja- nesbæ sem áætlað er að taki til starfa í haust. Fasteignafélagið Þrek byggir í upphafi fjölbýlishús með 24 íbúð- um og er stefnt að því að fyrstu tólf íbúðirnar verði afhentar leigutökum undir lok ársins. Á næsta ári er áætlað að ljúka 36 íbúðum til viðbótar og 27 haustið 2007. Íbúðirnar eru í fjölbýlishúsum, flestar tveggja herbergja en hluti þeirra einnig þriggja herbergja. Allar eru þær með sér inngangi. Í hjarta bæjarins Íbúðirnar eru í eigu Fasteigna- félagsins Þreks ehf. sem byggir þær án styrkja eða eignarhlut- deildar opinberra aðila. Mun þetta vera fyrsta einkahlutafélag- ið í slíkum rekstri hér á landi. Íbúðirnar eru ætlaðar nemend- um Íþróttaakademíu í Reykja- nesbæ og jafnvel einnig nemend- um við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Báðir þessir skólar eru í næsta nágrenni íbúðanna. Halldór Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þreks ehf., segir að staðurinn sé frábær, í hjarta bæjarins. Vekur hann athygli á því að öll þjónusta sé í göngufæri, auk skólanna beggja. „Þetta er sniðið fyrir há- skólaþorp,“ segir hann. Hafsteini Guðmundssyni líst vel á stofnun Íþróttaakademíu. Segir að hún verði góð viðbót við íþróttaaðstöðuna í bænum. „Hér er kominn vísir að háskólahverfi. Þetta hleypir nýju lífi í bæinn,“ segir Hafsteinn. Vísir að háskóla- hverfi er að myndast Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Skóflustunga Hafsteinn Guðmundsson íþróttafrömuður tók fyrstu skóflustunguna að stúdentagörðum. Halldór Ragnarsson aðstoðaði hann við verkið. Í baksýn sést Íþróttaakademían í byggingu. Stúdentagarðar í nágrenni Íþróttaakademíunnar BÚMENN hafa haldið áfram uppbygg- ingu íbúðarhúsnæðis á Suðurnesjum. Í gær voru fjórar íbúðir afhentar leigutök- um í Garði og framkvæmdir eru að hefjast við sextán íbúða í Reykjanesbæ. Á síðari hluta næsta árs verða hundrað íbúðir á vegum félagsins komnar í notkun á svæð- inu. Með íbúðunum fjórum sem afhentar voru í Garðinum í gær eru 28 Búmanna- íbúðir til komnar í gagnið í Garðinum. Bragi Guðmundsson verktaki sem byggt hefur öll húsin er að byrja á átta til víð- bótar og á næsta ári þegar þær verða af- hentar verður Búmannahverfið fullbyggt. Ásgeir Hjálmarsson, formaður Suð- urnesjadeildar húsnæðissamvinnufélags- ins, segir að vel hafi gengið að selja bú- seturéttinn í þessum húsum. „Það hefur engin íbúð enn losnað af þeim sem út- hlutað hefur verið. Fólki líður vel og virð- ist líka þetta fyrirkomulag,“ segir Ásgeir. Uppbygging hefst í Reykjanesbæ Búmenn hafa fengið lóðir fyrir 30 til 40 íbúðir í Innri-Njarðvík og eru Meistarahús að hefja byggingu fyrstu sextán íbúðanna. Verða þetta fyrstu Búmannaíbúðirnar í Reykjanesbæ. Ásgeir segir að mikill áhugi sé í Reykjanesbæ og hafi tvöfalt fleiri sótt um búseturétt í þessum fyrsta áfanga en fengu. Hefur búseturétturinn í íbúðunum sextán þegar verið seldur. Því verði vafa- laust haldið áfram að byggja þar. Í Sandgerði eru Búmenn að byggja stórt hús í miðbænum og þar verða tíu íbúðir, auk skrifstofa og stofnana á vegum bæjarfélagsins. Fyrir eru átta íbúðir á vegum félagsins í Sandgerði. Búmenn hafa fengið lóðir fyrir 10 íbúð- ir í nágrenni hjúkrunarheimilisins Víði- hlíðar í Grindavík. Fyrir eru 10 íbúðir í bænum og í Vogum eru einnig 10 íbúðir á vegum Búmanna. Þegar þessum áföngum verður lokið verða alls um 120 til 130 íbúðir á vegum Búmanna á Suðurnesjum. „Ég sé ekki annað en að þetta haldi áfram, áhuginn er það mikill,“ segir Ásgeir. Íbúðir Búmanna eru að nálgast hundraðið SMS FRÉTTIR mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.