Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 25 DAGLEGT LÍF MEÐ vorinu er tímabært að draga fram garðhúsgögnin og undirbúa ánægjustundir sumarsins í garð- inum. Á vefsíðu dönsku Neytenda- samtakanna www.forbrug.dk er að finna leiðbeiningar um meðferð garðhúsgagna. Þar segir að af tré- húsgögnum sé minnst viðhald á hús- gögnum úr tekki. Í reynd sé óhætt að leyfa þeim að standa úti allan árs- ins hring en flestum finnist sjálfsagt að bera á þau olíu einu sinni á ári. Aðrar viðartegundir hafi einnig gott af olíu eftir veturinn en olían hindra að viðurinn þorni og liturinn fölni. Gagnvarið, málað eða lakkað  Gagnvarin húsgögn þurfa ekkert viðhald. Þau geta staðið úti og þau má mála eða lakka að vild.  Máluð og/eða lökkuð húsgögn þurfa mikið viðhald. Þau þarf að þrífa vel og slípa áður en þau eru máluð eða lökkuð. Nauðsynlegt er að fara í það minnsta tvær umferðir yfir húsgögnin og ekki má gleyma að nudda vel endatrén.  Fara yfir skrúfur og festingar og skipta út ef þess gerist þörf. Nýju skrúfurnar verða að vera aðeins sverari en þær, sem fyrir voru til að ná góðu gripi. Húsgögn úr plasti  Garðhúsgögn úr plasti er best að þvo vel með góðu sápuvatni.  Óhreinindi sem erfitt er að ná af plasthúsgögnum má nudda með slípiefni fyrir bíla. Hafa verður í huga að efnið getur rispað yfirborðið og í rispurnar safnast skítur þegar líður á sumarið.  Óhreinindi smita með tímanum inn í plasthúsgögn og getur oft verið erfitt að ná þeim vel hreinum.  Hvít plasthúsgögn hafa ekki gott af sól. Hitinn mýkir húsgögnin og þá er hætt við að stólar brotni þegar sest er á þá. Auk þess verður yf- irborðið matt og skítsælla eftir sól- ina.  VORVERKIN | Tré- og plasthúsgögn Tímabært að yfirfara garðhúsgögnin Morgunblaðið/Sverrir Gott er að bera olíu á garðhúsgögnin fyrir sumarið. www.forbrug.dk ÞEGAR fólk er að hugsa um að fá sér ný útihúsgögn ætti það að taka umhverfisvernd með í reikning- inn. Útihúsgögn úr tekki eða öðr- um harðviði ættuðum frá SA-Asíu eru ekki góður kostur þar sem framleiðsla þeirra er ekki í sam- ræmi við kröfur um umhverf- isvernd og getur hafa haft nei- kvæðar félags- og efnahagslegar afleiðingar, að því er m.a. er haft eftir talsmanni sænsku Nátt- úruverndarsamtakanna (SNF) í Göteborgs Posten. Viðartegundirnar sem SNF mæla gegn því að fólk kaupi eru tekk, balau, keruing, nyatoh og shorea. Allar eiga þær sameig- inlegt að koma frá SA-Asíu, t.d. Malasíu, Búrma eða Indónesíu, annaðhvort úr náttúrulegum skógum eða sérstöku rækt- unarlandi, og hefur hvort tveggja haft neikvæð umhverfisáhrif. Að sögn SNF hefur spilling grafið um sig í tengslum við framleiðsluna og algengt að framleiðsluvottorð séu fölsuð. Garðhúsgögn af þessu tagi hafa þó átt vinsældum að fagna víða í Evrópu, m.a. vegna þess að þau eru endingargóð. SNF mæla frekar með útihúsgögnum úr ösp og þó sérstaklega eik, sem einnig er endingargóð. Enn- fremur geta garðhúsgögn úr áli eða plasti verið góður kostur. Tekkhúsgögn ekki fyrir umhverfisverndarsinna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.