Morgunblaðið - 15.04.2005, Side 26

Morgunblaðið - 15.04.2005, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF ÆSKUVINKONURNAR og mat- gæðingarnir Gunnhildur Gísladóttir, iðjuþjálfi á Reykjalundi, og Sigríður Tryggvadóttir margmiðlunarfræð- ingur voru báðar í fæðingarorlofi fyrir þremur árum þegar þær ákváðu að ráðast í gerð mynd- skreyttrar matreiðslubókar með heimilislegum uppskriftum og inn- kaupalistum fyrir vikuna. Þær bjuggu til matseðla fyrir fjór- ar vikur og fylgir hverri viku inn- kaupalisti fyrir vikuna. „Við vinkonurnar vorum að ræða það einn daginn í fæðingarorlofinu hvað við værum blankar og fórum að upphugsa einhverjar sparnaðar- leiðir. Við komumst að því að í hvert skipti sem við fórum út í búð fylltum við pokann fyrir marga þúsundkalla, en ef við einskorðuðum okkur við það að fara einu sinni í viku í heim- ilisinnkaupin eyddum við minna. Þetta var dálítið merkileg uppgötvun auk þess sem við þolum hvorugar að heyra spurninguna: „Hvað á að vera í matinn í kvöld?“ seg- ir Gunnhildur í spjalli við Daglegt líf. Vikuleg matarinnkaup Til þess að forða sér frá því að þurfa að svara spurningum á borð við þessa greip hún til þess ráðs að útbúa matarlista fyrir hvern dag vikunnar á sínu heimili svo að fjölskyldumeðlimirnir gætu einfald- lega lesið sér til um matseðilinn hverju sinni. Matseðlarnir söfnuðust upp þegar frá leið og hefur Gunn- hildur nú komið sér upp 36 vikna matseðlum og aftan á hverjum seðli er að finna innkaupalista fyrir við- komandi viku. „Við hjónin förum einu sinni í viku í Bónus og vitum þá nákvæmlega hvað við þurfum að kaupa inn. Í stað þess að þurfa að velta inn- kaupunum fyrir mér og skrifa niður innkaupalista fyrir hverja versl- unarferð er allt klappað og klárt og hef ég komist að því að góð skipu- lagning getur sparað mikla peninga, en nærri lætur að ég eyði um 45 þús- und krónum á mánuði í mat og hreinlætisvörur,“ segir Gunnhildur, sem rekur fimm manna heimili og stundum sex. Sigríður hafði tileinkað sér svip- aðar aðferðir við matarinnkaupin, en hún rekur fjögurra manna fjöl- skyldu. Eiginmennirnir kátir Þar sem þær stöllur hafa líka haft þann sið nokkuð lengi að búa sjálfar til jólagjafir til vina og fjölskyldu brugðu þær á það ráð að búa til mat- reiðslubækur með vikuáætlunum og innkaupalistum svo aðrir gætu til- einkað sér sparnaðarleiðir og skipu- lagningu vinkvennanna. „Matreiðslubókin geymir 28 upp- skriftir að fjölbreyttum og heim- ilislegum mat, allt frá súpum og pastaréttum upp í fisk- og kjötrétti. Þetta uppátæki okkar féll alveg rosalega vel í kramið hjá ættingj- unum og það er meira að segja farið að rukka okkur um annað bindi. Það varð að vonum talsverð vinna í kringum þetta stúss okkar og þurft- um við að prufukeyra uppskriftirnar áður en við lögðum blessun okkar yf- ir réttina. Við vinkonurnar vorum því í mikilli tilraunastarfsemi í eld- húsunum okkar fyrir þessi jól, ýmist hvor í sínu lagi eða saman, og urðu eiginmenn okkar mjög kátir með allan þennan myndarskap enda var alltaf verið að prófa eitthvað nýtt. Allar leiðbein- ingar við matseldina eru tíundaðar ná- kvæmlega í upp- skriftabókinni svo að sá í fjölskyldunni sem fyrstur kemur heim getur bara byrj- að á eldamennskunni. Það þarf því ekkert endilega að sitja og bíða eftir að mamman skili sér heim úr vinnu í tæka tíð fyrir mat- seldina.“ Daglegt líf falaðist eftir þremur uppskriftum úr fínu matreiðslubók- inni og urðu þær stöllur að sjálf- sögðu við þeirri bón. Fyrir valinu urðu gulrótarsúpa, ýsuflök með epl- um og gulrótum og ofnbakað læri með hvítlaukskartöflum og sælgæt- issalati. Uppskriftirnar eru fyrir fjóra til sex. Gulrótarsúpa 1 kg rifnar gulrætur 2 hakkaðir laukar 1 tsk karrí 1 msk matarolía 1 grænmetisteningur 1 lítri heitt vatn 110 g piparostur ½ tsk salt Snöggsteikið gulrætur og lauka í olíunni, bætið karríi saman við. Leysið grænmetisteninginn upp í vtninu, hellið yfir grænmetið og salt- ið. Látið krauma í 20 mínútur. Bætið ostinum saman við og bræðið án þess að súpan sjóði. Ýsuflök með eplum og gulrótum 3 meðalstór ýsuflök 1 msk matarolía til steikingar 1 msk sítrónusafi 1 tsk salt 1½ tsk gult aromat 4–6 gulrætur, skornar í sneiðar 1 rautt epli, skorið í bita 500 g kartöflur ½ haus blaðsalat, hreinsað og skorið 5 tómatar, hreinsaðir og skornir í bita Flakið og beinhreinsið fiskinn. Skerið hvert flak í 3–4 bita. Smyrjið pönnuna með matarolíu og raðið fiskbitunum á hana. Hellið sítr- ónusafanum yfir fiskinn og kryddið með salti og aromat. Dreifið gul- rótunum og eplinu yfir fiskinn. Setjið lok á pönnuna og sjóðið við vægan hita í 10–15 mín. Sjóðið kart- öflurnar í vatni í 20–25 mín. Setjið salatið og tómatana í skál og blandið saman. Ofnbakað læri með hvítlaukskartöflum og sælgætissalati Stráið season all-kryddi vel yfir lær- ið. Nuddið kjötið vel á eftir. Skerið 1 cm breiðar og 2 cm djúpar skorur í allt lærið, u.þ.b. tíu göt, og stingið hvítlauksrifjum niður í skorurnar. Bakið í potti í ofni í 1–1½ tíma við 180°C. Hvítlaukskartöflur 600 g kartöflur 1 tsk salt 1 tsk pipar ½ meðalstór laukur, saxaður 2 hvítlauksrif, söxuð 150 ml rjómi 50 ml mjólk 2 msk maizena-sósujafnari, ljós Afhýðið kartöflurnar og skerið í þunnar sveiðar. Raðið einu lagi af kartöflunum í smurt eldfast form. Stráið salti og pipar yfir. Raðið öðru lagi af kartöflum og stráið salti og pipar yfir og svona koll af kolli. Stráið, auk salts og pipars, lauk og hvítlauk yfir efsta lagið af kartöflun- um. Blandið saman mjólk, rjóma og sósujafnara og hellið yfir kartöflurn- ar. Bakið í ofni við 180°C í 50–60 mínútur. Sælgætissalat 2 búnt spergilkál 1 rauðlaukur, saxaður 1 dl sólblómakjarnar 1½ dl majones 1 dl sykur 3 tsk rauðvínsedik 300 g beikon í strimlum Skerið stilkana af spergilkálinu, skerið það í greinar og blandið því, ásamt lauk og sólblómakjörnum, saman í skál. Hrærið saman majones, sykur og rauðvínsedik, hellið sósunni yfir sal- atið og látið standa í ísskáp í þrjá tíma. Steikið og kælið beikonið og stráið því yfir salatið áður en það er borið fram.  MATARKISTAN | Æskuvinkonur bjuggu til matreiðslubók með innkaupalistum Góð skipulagning sparar peninga Morgunblaðið/Þorkell Æskuvinkonurnar Gunnhildur Gísladóttir og Sigríður Tryggvadóttir. Útlit möppunnar utan um upp- skriftabókina, matseðlana og innkaupalistana er skemmtilega úthugsuð hjá vinkonunum. Matseðlar og innkaupalistar. Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.