Morgunblaðið - 15.04.2005, Side 54
Risaeðlugrín
© DARGAUD
HVAÐ Á ÞETTA EIGINLEGA AÐ ÞÝÐA?
HVERNIG EIGUM VIÐ AÐ HANDSAMA
MORÐINGJANN EF FÓRNARLAMBIÐ ER
RISIÐ UPP FRÁ DAUÐUM?
ÞETTA ER ALVEG HREINT SKAMMARLEGT!
ÞAÐ ER RÉTT! HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ
AÐ ÞÚ VARST DAUÐUR FYRIR FIMM
MÍNÚTUM SÍÐAN EN ERT LIFANDI NÚNA?
Ö... ÉG SKIL EKKI ALVEG HVAÐ ÞÚ ERT AÐ FARA. ÉG
KOM HINGAÐ Í MORGUN TIL ÞESS AÐ VEIÐA BJELEMIT
VEIÐA
HVAÐ?
BJELEMIT ERU SKELJAR SEM ÉG NOTA OFT Í SALAT EÐA
SÚPU. ÉG HEF AÐ ÖLLUM LÍKINDUM BORÐAÐ OF MIKIÐ
AF ÞEIM, ÞVÍ MÉR VARÐ ILLT Í MAGANUM OG ÞESS
VEGNA LAGÐI ÉG MIG
OG ÞETTA! HVAÐ ER ÞETTA?!
ÞETTA ER SKELIN UTAN AF
BJELEMINUM. ÞAÐ ER EKKI HÆGT
AÐ BORÐA HANA
ANSANS!
ÞAÐ ÞÝÐIR
AÐ ÞÚ ERT...
FÓRNARLÖMIN Í ÞESSU MÁLI ERU GREINI-
LEGA SKELFISKARNIR. ÞAÐ HEFUR VERIÐ
FRAMIÐ FJÖLDAMORÐ! OG MORÐINGINN ER...
HANN!!
HVAÐ?!?
BEINA LEIÐ Í
STEININN MEÐ ÞIG!
STJÓRI, GÆTIRÐU NOKKUÐ KALLAÐ Á LIÐSAUKA TIL
ÞESS AÐ GERA ÚTLÍNUR Í KRINGUM ÖLL
FÓRNARLÖMBIN
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ ER FALLEGT VEÐUR
HÉRNA Á VELLINUM...
FYRIR HEIMSMEISTARAKEPPNINA Í
ÞVÍ AÐ DREKKA ÚR
KLÓSETTINU
SLURP
SLURP
SLURP
SLURP
SLURP
ALDREI LEYFA HUNDI
AÐ VELJA Á HVAÐ ER
HORFT
HALLÓ? ER
ÞETTA
HUNDABÝLIÐ?
ÉG ER AÐ HRINGJA FYRIR
VIN MINN... MÁ HANN TALA
VIÐ EINA TÍKINA YKKAR...
HANN VEIT EKKI HVAÐ HÚN
HEITIR... LÝSA HENNI?
HÚN ER
MEÐ MJÚKA
LOPPU
NEI MAMMA! EKKI
FARA MEÐ MIG Í RÚMIÐ
ÞÚ GETUR EKKI LÁTIÐ MIG
FARA AÐ SOFA! ÉG SAGÐI
HOBBES AÐ GLEYPA HVERN
ÞANN SEM KEMUR INN Í
HERBERGI FYRIR KL. 9
TÍGRISDÝRIÐ ÞITT ER Í
ÞVOTTAVÉLINNI
GÓÐUR
TÍMI TIL
AÐ FARA Í
BAÐ
BARA VEGNA
ÞESS AÐ ÞÚ
VILT VERA
SKÍTUGUR...
Dagbók
Í dag er föstudagur 15. apríl, 105. dagur ársins 2005
Stundum skiptir einbeygja öllu máli.
Víkverji er ekki kunn-
ugur í Vík í Mýrdal og
er yfirleitt á leið eitt-
hvert annað þegar hann
ekur þar um. Til þessa
hefur hann því bara
brunað beint í gegnum
þorpið og ekki komið
auga á neitt til að
staldra við – þjóðvega-
sjoppurnar eru hver
annarri líkar.
x x x
En svona er nú Vík-verji mikill vitleys-
ingur. Í vikunni var
hann á ferð um Suður-
land með fólki, sem þekkti sig í Vík
og benti Víkverja á að taka hægri-
beygju þegar inn í þorpið er komið,
niður að útsýnisstað, þar sem hægt
er að virða fyrir sér Reynisdranga
og tignarlegt brimið í fjörunni. Leið-
in liggur um elzta hluta þorpsins,
þar sem er að finna falleg gömul hús,
sem sum hver hafa verið gerð
skemmtilega upp. Þar skipar Bryde-
búð virðulegastan sess, en Víkverja
skilst að þar sé bæði upplýsinga-
miðstöð fyrir ferðamenn og kaffihús
á sumrin. Víkverji gægðist á
gluggann og þótti verst að ekki
skyldi vera opið á þess-
um árstíma.
x x x
Svona getur einbeygja breytt fram-
tíðaráformum fólks. Nú
er Víkverji alveg stað-
ráðinn í að leggja leið
sína til Víkur með fjöl-
skylduna í sumar,
skoða sig um í gamla
þorpinu, horfa á brimið
og Reynisdranga, fá sér
kaffi í Brydebúð og
kynna sér það sem
ferðaþjónustan í ná-
grenninu hefur upp á
að bjóða. Enda er það
auðvitað hneyksli að
sjálfur Víkverji skuli aldrei hafa
skoðað sig almennilega um í Vík.
x x x
Víkverji hefur gaman af því hvaðbörn eru fljót að læra það sem
fyrir þeim er haft í fjölmiðlunum,
jafnvel frasa sem ekki eru algerlega
til fyrirmyndar. Á dögunum var
hann að skera matinn ofan í þriggja
ára dóttur sína þegar gall í sjö ára
systur hennar: „Hey, af hverju fær
hún hærra þjónustustig en ég?“
Þessi dama verður vonandi einhvern
tímann afar meðvitaður neytandi.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tónleikar | Popphljómsveitin Ísafold er ný af nálinni og hefur verið að vekja
þó nokkra athygli undanfarið. Hún er skipuð hljóðfæraleikurum sem leikið
hafa í sveitum á borð við 200.00 naglbíta, The Flavors og Engla en söngkonan
er að stíga fram á sjónarsviðið, nær fullsköpuð, að sögn kunnugra. Hún heitir
Lísa Einarsdóttir og hafði áður getið sér gott orð með laginu Litir. Lagið Afi
með Ísafold er nú komið í spilun á FM957 og mun hún halda tónleika á Gauki
á Stöng í kvöld.
Spánnýja Ísafold
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til
dýrðar. (Róm. 15, 7.)