Fréttablaðið - 13.12.2006, Síða 35

Fréttablaðið - 13.12.2006, Síða 35
][ Mörg börn ferðast ein reglu- lega bæði innanlands og milli landa. Í flestum tilfellum eru þau að heimsækja foreldra sína sem ekki búa saman, en einnig til að heimsækja ömmur afa og aðra fjölskyldumeðlimi. Íslensk börn hafa mesta reynslu af ferðalögum í flugvélum og lang- ferðabílum en börn í öðrum lönd- um ferðast líka með skipum og lestum. Í langferðabílum á Íslandi mega börn ferðast ein frá 5 ára aldri. Það er ekki boðið upp á eftir- lit eða fylgd, en hægt er að semja við bílstjórann um að láta barnið vita hvar það eigi að fara út. Á Norðurlöndunum mælir umboðsmaður barna með að láta börn ekki ferðast ein með lang- ferðabíl fyrr en þau eru orðin átta ára. Börn upp að 12 ára aldri sem ferðast ein með langferðabíl verða að hafa skilti um hálsinn með öllum upplýsingum. Þar á að standa nafn, heimilisfang, áfanga- staður og nokkur símanúmer aðstandenda barnsins. Ef börn ferðast ein í rútum getur það borg- að sig að láta barnið sitja fremst í bílnum. Þá er auðveldara fyrir bíl- stjórann að minna barnið á að fara út en líka út af bílveiki sem mörg börn þjást af. Öll börn og farþegar í langferðabílum eiga að nota bíl- belti. Það getur verið gott að æfa barnið í að fara eitt í rútu áður en lagt er í hann fyrir alvöru. Sumir foreldrar fara í hlutverkaleik heima þar sem ömmur og afar geta verið aðrir farþegar og stóri bróðir bílstjóri. En jafnvel er hægt að segja barninu sögur og teikna myndir til að undirbúa ferðina. Það er ekki ráðlagt að láta börn fara í lengri ferðir ein í rútu. Sumir foreldrar biðja aðra far- þega að líta eftir barninu á leið- inni, en það er aldrei hægt að láta bláókunnuga taka fulla ábyrgð á ókunnu barni. Mörg börn ferðast ein í flugvél- um og það er oft ákjósanlegri ferðamáti. Þar þarf að kaupa sér- staka fylgd og það eru aðeins 3-4 börn sem fá að fara í fylgd í hverri flugferð svo að flugliðarnir geti sinnt börnunum vel. Þegar börn ferðast ein með flugi þarf að panta farið með góðum fyrirvara. Það þarf að fylla út upplýsingar um þann sem fylgir barninu og tekur á móti áður en farið er í flugið. Innanlandsflug tekur að jafn- aði klukkutíma og flest börn niður í fimm ára aldur þola það ágæt- lega. Flugfélag Íslands er með skemmtilegt tilboð fyrir börn sem ferðast oft ein. Verkefnið ber nafnið „Flugkappar“ og kemur Flugfélag Íslands til móts við for- eldra og forráðamenn með sér- stöku lágfargjaldi. En einnig fá krakkarnir bakpoka að gjöf með dvd-mynd. Millilandaflugin reyna meira á og foreldrar þurfa sjálfir að meta hvenær barnið er tilbúið. Við milli- landaflug kveður barnið foreldra við öryggishlið og er þá í gæslu þangað til tekið er á móti barninu í öðru landi. Flugfélögin bjóða upp á góða gæslu gegn vægu gjaldi. En samt er ágætt að barnið hafi farið ferðina áður með foreldri. Ekki er ákjósanlegt að láta börn faraein í lengra en fjögurra tíma flug, en þó eykst þol eftir því sem þau eldast. Ef um tengiflug er að ræða þarf að tala sérstaklega við flugfélagið til að athuga hvernig aðstoð barnið fær til að skipta um vél og hver gætir þess á meðan á bið stendur og ef vélinni seinkar. Börn sem ferðast oft eru orðin leið á leikföngunum sem þau fá hjá flugfélaginu. Flestum krökk- um finnst gaman að hlusta á hljóð- bækur sem hægt er að kaupa, leigja á bókasafni eða hlaða niður af netinu. Einnig eru alls kyns verkefnabækur, spil, tölvuspil eða teiknimyndir vinsælar. Það þarf að athuga vel hvaða matur er í boði og hvort barnið borði þennan tiltekna mat. Annars þarf að panta eitthvað annað eða senda barnið með mat sem það borðar. Það er ekki endilega ákjós- anlegt að senda barnið með fangið fullt af sælgæti, heldur ávexti og muna að hafa vatnsflösku. Það er nauðsynlegt að klæðast léttum og þægilegum fatnaði og auðveldum skóm svo vel fari um barnið og það sé auðvelt að fara á klósettið. Síðan þarf að segja barninu að það geti alltaf leitað aðstoðar hjá flugliða. Það getur verið ágætt að leyfa systkinum að ferðast saman. Samt ber að hafa í huga að eldra systkin- ið er ekki endilega nógu gamalt til að taka ábyrgð á því yngri. Það er ekki fyrr en þau eru komin á ungl- ingsaldur 14-16 ára að þau í raun geta axlað þá ábyrgð að ferðast styttri ferðir með yngra systkini. Í vélinni er passað upp á bæði börn- in og það er því ekkert vandamál. Upplýsingar: Langferðabílar: BSÍ www.bsi.is Innanlandsflug: Flugfélag Íslands www. flugfelag.is Millilandaflug:Icelandair www.icelandair.is- Iceland Express www.icelandexpress.is -rh Þegar börn fara í víking Draumaflugið Nýlega var gerð köNNuN á því hverNig draumflugi fólks yrði háttað feNgi það að ráða. langflestir vildu hafa elvis Presley eða díönu prinsessu sem sessu- naut í draumaflug- inu. aðrir frægir sem skoruðu hátt voru frank sinatra, martin luther king, madonna og Bill Clinton. ekki kemur á óvart að margir kusu að vera samferða Nelson mandela, John lennon og dalai lama enda ættu þessir menn að geta talað flugið á enda án þess að drepa sessunaut sinn úr leiðindum. William prins skoraði einnig hátt hjá yngri kynslóðinni en einnig voru valdir Jimi hendrix, Pele, george Best og audrey hepburn. yfir tvö þúsund manns tóku þátt í könnunni sem var til gamans gerð af yougov Plc. á netinu fyrir British airways. Flugfélag Íslands hefur flug milli Akureyrar og Keflavíkur sem tengist morgunflugi Ice- landair til Evrópu og Banda- ríkjanna. Næsta vor mun Flugfélag Íslands hefja flug milli Akureyrar og Keflavíkur. Fluginu er ætlað að mynda tengingu við morgunflug Icelandair til Evrópu og Banda- ríkjanna. Er þetta mikil hagræðing fyrir flugfarþega sem koma að norðan þar sem innritun, vegabréfaskoð- un og öryggisleit fer fram á Akur- eyri á útleið og síðan tollskoðun á leið til landsins. Flogið verður frá Akureyri klukkan sex að morgni og fara farþegar beint inn á frí- hafnarsvæði flugstöðvarinnar í Keflavík. Síðdegis er flogið til Akureyrar þegar vélar að utan eru lentar. Flogið verður þrjá daga í viku næsta sumar, mánudaga, fimmtudaga og föstudaga. - jóa Ný tenging við Norðurland flugfélag íslands býður upp á tengiflug að norðan við morgunflug icelandair til evrópu og Bandaríkjanna næsta sumar. Aukning hefur orðið á gistinótt- um á landinu ásamt fjölgun á farþegum sem farið hafa í gegnum Keflavíkurflugvöll. Rúmlega 133 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í nóv- ember. Samanborið við nóvember í fyrra nemur fjölgunin 15,3 pró- sent. Fjölgun er í takt við þróun farþegafjölda fyrir árið í heild þar sem farþegum hefur fjölgað um tæp 11 prósent frá áramótum eða um 188 þúsund farþega. Að sama skapi hefur gistinótt- um einnig fjölgað. Í október síð- astliðnum voru gistinætur um 97.600 en 86.000 á sama tíma í fyrra. Fjölgunin nemur um 13 pró- sentum. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suður- landi þar sem þeim fækkaði um 17 prósent. Mest var aukningin á Norðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 4.100 í 6.400 milli ára en það nemur 55 prósent aukningu. Hér er átt við við gistinætur á hót- elum eingöngu sem opin eru allt árið. - jóa Farþegum fjölgar rúmlega 133 þúsund farþegar fóru um keflavíkurflugvöll í nóvember. fréttaBlaðið/stefáN það er vel passað upp á krakka sem ferðast einir milli landa. NordiCPhoto/gettyimages Heimilið þarf alltaf að vera öruggt þegar farið er í ferðalag. kannski er heima- þjófavörn góð jólagjöf handa ferðalangnum. 4thfloorhotel Laugarvegur 101 • 4thfloorhotel.is Vetrartilboð 1. nóvember - 1. maí Útvegum miða á leiksýningar og jólahlaðborð 1 manns herbergi 2ja manna herbergi Hópar 10+ Helgarferð kr. 5.900 kr. 7.900 kr. 5.000 á mann kr. 14.000 2 nætur í hjónaherbergi KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.