Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 48

Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 48
MARKAÐURINN 13. desember 2006 miðvikudagur10 u t t e k t Fyrirkomulag gengismála hér á landi hefur verið mjög í brennidepli efna- hagsuræðunnar allt frá því að lögum um Seðlabankann var breytt í mars 2001 og krónan sett á flot samtímis því sem 2,5 prósenta verðbólgumarkmið var tekið upp. Reyndar nær umræðan um fyrirkomulag gengismála hér á landi allt aftur til þess tíma þegar íslenska krónan var tekin upp árið 1885. Og enn eru skoðanir mjög skiptar á því hvað sé hentugasta fyrirkomulagið. Sífellt fleiri virðast vera þeirrar skoðunar að einhvers konar tenging við evru væri heppilegri kostur en núverandi peningastefna. Seðlabankinn geti einfaldlega ekki með þeim tækj- um sem hann nú hefur til ráðstöfun- ar náð tilætluðum árangri í baráttu við verðbólguna án þess að sveiflur í gengi krónunnar verði of miklar. Slík hagstjórn sé einfaldlega of dýru verði keypt. Forsvarsmenn stórfyrirtækja sem mörg hver reka umfangsmikla starfsemi erlendis hafa haft stór orð uppi um að tími íslensku krónunnar sé liðinn og því einungis tímaspursmál hvenær evran ryðji sér til rúms í auknum mæli, hvort sem mönn- um líkar það betur eða verr. Svipaðan tón hefur mátt greina í málflutningi ýmissa bankamanna sem virðast í auknum mæli líta á krónuna sem eins konar viðskiptahindrun í heimi alþjóðlegra fjármagnsviðskipta. Nú síðast hafa svo fræði- menn í háskólasamfélaginu sem fram til þessa hafa fremur talað fyrir núverandi fyrirkomulagi í peningamálum snúið baki við krónunni. HveRs vIRÐI eR sjálfstæÐ peNINgAstefNA? En hvað þýðir það að taka upp evruna? Er það yfirleitt hægt fyrir hagkerfi eins og það íslenska sem er ekki á leið inn í Evrópusambandið í bráð? Svarið við fyrri spurningunni er í raun fremur einfalt. Með því að taka upp evruna er verið að draga umtalsvert úr möguleikum stjórnvalda til innlendrar hagstjórnar. Gengi íslensku krónunnar er tvímælalaust ein mikilvægasta hagstærðin í okkar hagkerfi og jafnvægisaðlögun hefur í gegn- um tíðina oftast gerst fyrir tilstuðlan gengisins. Það er því erfitt að ímynda sér að slík aðlögun geti átt sér stað með jafn áhrifaríkum hætti og áður ef sveigjanleikinn í gengismálum er horfinn. Við upptöku evrunnar ráðast grunnvextir ekki lengur af innlendum aðstæðum heldur af aðstæð- um á evrusvæðinu í heild. Aðlögun efnahagsstærða verður því að gerast með öðrum hætti, ýmist með stjórn ríkisfjármála, eða verður einfaldlega að byggjast á innri sveigjanleika hagkerfisins. Hvort réttlætanlegt sé að gefa frá sér möguleikann á hagstjórn með því að reka sjálfstæða peninga- stefnu hlýtur því að ráðast af því hvað fæst í stað- inn með því að taka upp evruna. Sveiflur í íslenskum þjóðabúskap hafa sögulega séð fyrst og fremst átt rætur að rekja til sjávar- útvegsins og þess óstöðugleika sem honum fylgir, hvort sem hann má rekja til breytilegra afla- bragða eða verðbreytinga á erlendum mörkuðum. Eftir því sem mikilvægi sjávarútvegsins minnkar og öðrum atvinnugreinum, eins og álframleiðslu og fjármálastarfsemi, vex fiskur um hrygg má segja að tengingin við sjávarútveginn verði sífellt léttvægari. Auk þess virðist sem viðhorf í sjávar- útvegi hafi breyst töluvert upp á síðkastið þar sem kostir stöðugleika í gengismálum eru nú meira metnir en áður. Þetta á ekki hvað síst við eftir að ljóst er orðið hversu öfgakenndar gengissveifl- urnar geta orðið í núverandi kerfi. Sveiflur í gengi krónunnar upp á síðkastið end- urspegla fyrst og fremst þá staðreynd að íslenska krónan gengur kaupum og sölum á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Aðstæður á þessum mörkuðum hafa að mörgu leyti verið óvenjulegar vegna lágra vaxta. Fyrir lönd eins og Ísland með háa vexti og gott lánshæfismat myndast því kjöraðstæð- ur fyrir innstreymi erlends fjármagns, eins og t.d. jöklabréfin eru gott dæmi um. Í eðli sínu er stór hluti þessa flæðis skammtímaflæði í leit að hámarksávöxtun og því þarf ekki mikið til þess að töluverðar sveiflur komi fram þegar aðstæður breytast. Hinn agnarsmái íslenski markaður virð- ist því ofurseldur alþjóðlegum fjármagnsmörkuð- um sem geta á stundum sveiflast mun meira en íslenskur sjávarútvegur. Það er því ef til vill ekki að undra að þessar markaðsdrifnu gengissveiflur geri það að verkum að stjórnendur í atvinnulífinu kalli á gengisfyrirkomulag sem skilar meiri stöð- ugleika en núverandi kerfi gerir. Auk stöðugleikans í gengismálum og þar með væntanlega einnig stöðugra verðlags, má ganga út frá því sem vísu að velheppnuð evruvæðing hefði í för með sér umtalsvert lægri fjármagnskostnað til hagsbóta fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Mikilvægt er að undirstrika að veruleg óvissa ríkir um efnahagsleg áhrif evruvæðingar, sérstak- lega ef hún er framkvæmd einhliða. Hið endan- lega markmið með slíkri aðgerð er að sjálfsögðu aukinn efnahagslegur stöðugleiki og hagræði af beinni tengingu við það myntsvæði sem er mik- ilvægast í okkar utanríkisviðskiptum. Eins og gefur að skilja er hér um mjög róttæka aðgerð að ræða og því mikilvægt að líkur á jákvæðum árangri séu miklar. Varðandi stofnanalega þáttinn skiptir tvennt sennilega mestu. Í fyrsta lagi er það trúverðugleiki og geta stjórnvalda til þess að takast á við breytingu af þessu tagi. Ef t.d. ekki ríkir víðtæk pólitísk eining um evruvæðinguna er hætt við að hún verði ekki trúverðug í huga erlendra fjárfesta og þar með náist ekki fram það hagræði sem stefnt er að. Styrkur fjármálakerfis- ins í víðum skilningi er síðan hinn lykilþátturinn sem hefur afgerandi þýðingu. Hér er átt við stöðu ríkisfjármála, bæði stöðu ríkissjóðs í þröngum skilningi, en einnig hugsanlegar skuldbindingar eða ábyrgðir sem kunna að vera til staðar og ríkið þarf að axla. Fjárhagslegur styrkur bankakerfis- ins skiptir einnig máli þar sem einhliða evruvæð- ing dregur úr getu Seðlabankans til þess að koma bankakerfinu til aðstoðar í neyð. Að síðustu má nefna lífeyrissjóðakerfið sem sífellt verður mikil- vægara í okkar fjármálaumhverfi. Hugsanlegt er að evruvæðing á Íslandi hefði í för með sér að erlend lánshæfisfyritæki lækkuðu lánshæfiseinkun ríkisins og/eða viðskiptabank- anna sem myndi óhjákvæmilega leiða til þess að aðlögun vaxta á Íslandi að vaxtaumhverfi evru- svæðisins yrði hægari en ella. Í þessu sambandi kann að vera mikilvægt að einhverskonar samráð sé haft við stjórnvöld eða yfirvöld peningamála á evrusvæðinu, þó svo að formlega séð væri um einhliða evruaðlögun að ræða. Ef til vill má líkja sjálfstæðri peningastefnu við einskonar hagrænan öryggisventil sem sér um að leiðrétta þrýstinginn í okkar íslenska hagkerfi þegar hlutirnir fara úr böndum. Vera má að við séum að nálgast þann tímapunkt að kostir evr- uvæðingar vegi þyngra en sveigjanleikinn sem flotgengisfyrirkomulagið veitir vegna alþjóða- væðingar og breyttrar hagsveiflu. Einhver kynni þó að benda á að sennilega væri heppilegt að tappa aðeins betur af kerfinu áður en núverandi fyrir- komulagi er fórnað. evRAN áN esB Hvort hægt er að taka upp evruna án þess að ganga í Evrópusambandið er síðan annað mál. Evran er sameigin- leg mynt flestra landa í ESB og mynd- ar kjölfestuna í myntbandalagi þessara þjóða. Þátttaka í myntbandalaginu felur í sér, auk sameiginlegrar myntar, aðild að stjórn sameiginlegs Seðlabanka sem fylgja bæði réttindi og skyldur. Til að teljast fullgildur meðlimur verða aðild- arþjóðirnar að undirgangast og uppfylla skilyrði um efnahagsstöðugleika sem meðal annars gerir kröfu um að verð- bólgan fari ekki yfir ákveðin mörk, hall- inn á opinberum fjármálum sé ekki yfir ákveðnu marki og opinberar skuldir séu lægri en ákveðið hlutfall af landsfram- leiðslu. Ísland uppfyllir þessi skilyrði að hluta en bein aðild að myntbandalaginu gerist ekki nema með aðild að ESB og ljóst að slíkt er ekki á dagskrá eins og staðan er í dag. Þjóðir sem standa utan myntbanda- lagsins geta að sjálfsögðu reynt að færa sér í nyt kosti hinnar sameiginlegu myntar án þess að gerast beinir aðilar. Hér koma nokkrar leiðir til greina. Sú einfaldasta er gamaldags fastgeng- isstefna þar sem lýst er yfir fastri tengingu ýmist einhliða eða með tvíhliða ákvörðun. Þetta er gert án þess að grundvallarbreyting á peningakerfinu eigi sér stað að öðru leyti en því að fast skipta- hlutfall er ákveðið sem peningamálayfirvöld lýsa yfir ásetningi um að verja. Það fer síðan eftir trúverðugleika efnahagsstefnunnar almennt og styrk Seðlabankans hversu árangursrík stefnan verður. Dómur sögunnar yfir gengisfyrirkomu- lagi af þessum toga er langt frá því að vera góður. Fjöldinn allur er til af dæmum um misheppnaða fastgengisstefnu og þarf ekki að leita út fyrir landsteinana til að finna slík dæmi. Róttækasta aðferðin er sennilega sú að skipta eigin gjaldeyri algerlega út fyrir nýjan, t.d. evr- una. Þetta hefur verið kallað „dollarisering“ og hefur til dæmis verið gert með ágætis árangri í Panama. Innlendu peningamagni er einfaldlega skipt út fyrir nýja mynt sem ýmist er fengin að láni eða keypt á markaði. Til að fara þessa leið hér á landi þyrfti Seðlabankinn að útvega sér evruseðla og mynt að andvirði um 14 milljarða eða sem samsvarar um 20 prósentum af núverandi nettó gjaldeyrisforða. Þessi upphæð er í sjálfu sér ekki stór miðað við heildarmagn seðla og myntar sem eru í umferð á evrusvæðinu, eða rétt um 0,02 prósent. Þriðja leiðin til að tengjast evrunni án þess að ganga í myntbandalagið er s.k. myntráð eins og ríkir í Eystrasaltslöndunum og Hong Kong. Þetta fyrirkomulag á sér reyndar langa sögu og hefur verið prófað í fjöldamörgum löndum með mis- jöfnum árangri. Misheppnuð tilaun í Argentínu á árunum 1991 til 2001 hefur komið fremur slæmu orði á þetta fyrirkomulag sem þykir á margan hátt gamaldags og þunglamalegt. Reyndar hafa frændur okkar Færeyingar búið við eins konar myntráðsfyrirkomulag um áratuga skeið eftir að þeir tóku upp eigin mynt með fasttengingu við dönsku krónuna. Allar götur síðan hafa þeir haldið þessu fyrirkomulagi með þokkalegum árangri þó svo að gefið hafi á bátinn á stundum. peNINgAlAUst HAgKeRfI Hugmyndin á bak við myntráð er sú að baktryggja innlendu myntina algerlega með erlendri mynt sem kölluð er akkerismynt. Strangur lagalegur rammi fylgir myntráðsfyrirkomulaginu þar sem kveðið er á um fast og óbreytanlegt gengi auk þess sem heimild innlendra stjórnvalda til lántöku hjá myntráðinu eru ekki til staðar. Í raun er því algerlega komið í veg fyrir að hægt sé að beita peningamálastjórn til hagstjónar. Í myntráðsfyr- irkomulaginu er gert ráð fyrir að haldið sé úti gjaldeyrisvarasjóði sem að lágmarki er jafn stór og innlendir seðlar og mynt í umferð. Breytingar á innlendu peningamagni eru því að fullu bakkaðar upp af breytingum á erlendum gjaldeyri. Þótt svo að ýmsum finnist hugmyndin um Björn rúnar Guðmundsson, sérfræðinGur GreininGardeildar landsBanka Íslands Greinarhöfundur er sprenglærður hagfræðingur með mikla reynslu. Hann er með BS gráðu í þjóðhagfræði frá Háskólanum í Gautaborg og DEA gráðu í þjóðhagfræði frá EHESS í París. Áður en hann gekk til liðs við greiningardeild Landsbankans starfaði hann meðal annarS sem forstöðumaður á Þjóðhagsstofnun, hagfræðingur á efna- hagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins og hjá greiningardeild Búnaðarbankans. Markaðurinn/ Anton Brink Myntráð án myntar - leiðin inn í evruna? Umræða um framtíð krónunnar sem gjaldmiðill landsins hefur verið áberandi á þessu ári og forsvarsmenn stærri fyrirtækja á markaði gjarnan bent á að hún standi í vegi fyrir erlendri fjárfestingu hér. Þá setur óstöðugur gjaldmiðill strik í allar rekstraráætlanir fyrirtækja sem eiga viðskipti við útlönd. Björn Rúnar Guðmundsson, sérfræðingur greiningardeildar Landsbanka Íslands, veltir hér að neðan í grein sinni upp nýrri hugmynd um framtíðarskipan gjaldeyrismála hér á landi. Hann segir að þótt „dollaravæðing“ gjaldmiðils hafi fengið á sig óorð í Argentínu og myntráð þyki á margan hátt gamaldags og þunglamaleg leið kunni millivegurinn að henta okkur hér. Hér yrði þá evran tekin upp sem viðmiðunargjaldmiðill um leið og Íslandi yrði breytt í peningalaust hagkerfi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.