Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 70

Fréttablaðið - 13.12.2006, Page 70
MARKAÐURINN 13. desember 2006 miðvikudagur16 h é ð a n o g þ a ð a n hólmfríður helga Sigurðardóttir skrifar Símafyrirtækið Sko hefur á und- anförnum mánuðum náð góðri fótfestu á íslenska símamarkaðn- um. Um fimm þúsund manns eru nú í viðskiptum við félagið sem er vel umfram þau markmið sem stjórnendur félagsins settu sér í upphafi. BTnet, sem Ódýra síma- félagið tók yfir í sumar, miðar að því, líkt og Sko, að bjóða ódýrustu vöruna á markaðnum með því að veita alla þjónustu í gegnum netið. Ragnhildur Ágústsdóttir var nýlega ráðin framkvæmda- stjóri Ódýra símafélagsins sem rekur bæði fyrirtækin. Hún tók þátt í uppbyggingu Sko og starf- aði sem þjónustu- og vefstjóri frá stofnun þess fyrr á þessu ári. Sko hefur frá upphafi haft það að markmiði að halda ekki úti kostnaðarsömum verslunum. Því er engar Sko-verslanir að finna vítt og breitt um landið og ekki er hægt að kaupa hleðslu í verslunum, eins og hægt er með frelsi hinna símafyrirtækjanna. Þjónusta Sko fer nefnilega að langmestu leyti fram á netinu þótt hægt sé að hafa samband við þjónustuver á annatíma, milli 12 og 18 virka daga. Þetta fyrirkomulag hefur að sögn Ragnhildar reynst vel og stendur ekki til að breyta því. Sko skil- greinir meginmarkhóp sinn út frá ungu fólki, á bilinu 20 til 35 ára, sem er tilbúið að nota internetið og borga minna fyrir vikið. „Á netinu geta viðskiptavinir okkar skoðað nákvæmt yfirlit yfir við- skipti sín, frá því hversu oft er hringt í ákveðna manneskju til þess hve lengi er talað við hana. Þannig er hægt að sjá upp á krónu í hvað hleðslan fer. Við erum með talsvert lægra verð en samkeppnisaðilarnir og auk þess er frítt að hringja innan kerfis í alla aðra viðskiptavini Sko. Þetta er eingöngu mögulegt af því að við höfum svo litla yfirbyggingu og því mun lægri kostnað en stóru fyrirtækin.“ Ódýra símafélagið tók yfir rekstur BTnets í lok síðasta sum- ars og er nú í því ferli að skoða og endurskilgreina reksturinn. Markmiðið er að félagið verði ekki ósvipað Sko að uppbygg- ingu. Ekki stendur endilega til að bjóða þjónustu fyrirtækjanna tveggja saman í pakka. „Þetta verður ekki spurning um bind- ingu og fá þannig besta samning- inn. Við ætlum að vera ódýrust á hverju sviði þannig að það borgi sig alltaf að vera hjá okkur, hvort sem er með GSM eða ADSL.“ RagnhilduR ÁgústsdóttiR, fRamkvæmdastjóRi ódýRa símafélagsins Ódýra símafélagið rekur Sko og BTnet sem bæði bjóða ódýra þjónustu í gegnum netið. Markaðurinn/VilhelM Fimm þúsund manns hjá Sko jón kR. gíslason, staRfsmanna- stjóRi ÖssuRaR Össur hefur tekið mörg fyrirtæki yfir í gegnum tíðina. Það ferli er rétt að byrja miðað við þau áform sem félagið hefur á prjónunum um frekari vöxt. Jón sagði frá því hvern- ig skýr fyrirtækjamenning hafi skipt sköpum fyrir hversu vel yfirtökurnar hafi heppnast. Félagið hafi þrjú megingildi: heiðarleika, hugrekki og hagsýni, sem séu alltaf höfð að leiðarljósi og leitast við að innleiða þau eins fljótt og auðið er í hinum yfirteknu félögum. skiptiR fyRiRtækjamenning mÁli? Þannig var yfirskrift morgunverðarfundar sem Viðskiptafræðistofnun háskóla Íslands efndi til í síðustu viku. Þar leituðust þeir Jón kr. Gíslason, starfsmannastjóri Össurar, og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, við að lýsa menningu sinna fyrirtækja og skýra hvernig hún hefur hjálpað til við að fleyta fyrirtækjunum þangað sem þau eru í dag. eins og sjá má hlustuðu gestirnir á frummælendur af mikilli athygli. Heiðrún Jónsdóttir hefur verið ráðin sem fram- kvæmdastjóri starfsþróunar- og samskiptasviðs Eimskips, auk þess sem hún sinnir lögfræðilegum verkefnum. Um leið og Heiðrún tók við nýju starfssviði um síðustu mánaðamót létu af störfum Ingunn B. Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri starfsþróunar- sviðs og Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmda- stjóri stefnumótunar- og samskiptasviðs. Heiðrún segir starfið leggjast vel í sig og að sér hafi verið vel tekið á nýjum stað. Hún er fædd á Húsavík árið 1969, lauk kandidatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og varð héraðs- dómslögmaður haustið 1996. Hún tók próf í starfs- mannastjórnun frá HA 1999 og lauk löggildingu í verðbréfamiðlun árið 2006. Heiðrún hefur marg- víslega starfsreynslu bæði af lögfræði og stjórnun. Síðast var hún framkvæmdastjóri og meðeigandi á Lex lögmannsstofu, en þar áður gengdi hún starfi upplýsingafulltrúa Símans. Heiðrún er í sam- búð með Jóhannesi Sigurðssyni, aðstoðarforstjóra Milestone. Hún á tvö börn og þrjá stjúpsyni. - óká heiðRún jónsdóttiR heiðrún, sem áður var upplýsingafulltrúi Símans, hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra starfsþróunar- og samskiptasviðs eimskips. Markaðurinn/GVA Mannabreytingar hjá Eimskipi Síminn hefur hafið þjónustu sem gerir athafnafólki og öðrum áhugasömum kleift að fá fjár- málaupplýsingar sendar beint í GSM-símann sinn. Þjónustan sem um ræðir er svokölluð SMS-mark- aðsvakt. Gagnagrunnur er tengd- ur beint við Kauphöll Íslands og þannig er mögulegt að fylgjast með í rauntíma hvenær breytingar gerast á markaði. Viðskiptavinir SMS-markaðsvaktarinnar geta skilgreint fyrirfram þær upplýsingar sem þeir vilja fá sendar. Um leið og einhverjar breytingar eiga sér stað fá viðskiptavinir Símans þær sendar með sms í símann sinn. Í fréttatilkynningu frá Símanum kemur fram að Þjónusta SMS-markaðs- vaktarinnar sé fimmþætt og skiptist í það helsta af fjármálamarkaði, fréttavakt, gjaldeyrisvakt, vísitöluvakt og verðbréfavakt. Hægt er að fylgj- ast með því helsta sem gerist á fjármálamarkaðnum á hverjum degi og eru listar sendir dag- lega sem sýna fimm mestu h æ k k a n i r og lækkan- ir hverju s i n n i . M e ð frétta- vakt- i n n i geta viðskiptavinir fylgst með öllu því markverðasta sem á sér stað í Kauphöll Íslands. Um leið og Kauphöllin gefur frá sér til- kynningu kemur sms í símann með fyrirsögn fréttar, flokki hennar og auðkenni þeirra félaga sem hún tengist. Með gjaldeyris- vaktinni er hægt að fylgjast með og fá upplýsingar um gjaldeyris- viðskipti. Hún færir upplýsingar um stöðu gengisvísitölu krónunn- ar auk þess að birta gengi helstu gjaldmiðla. Vísitöluvaktin veitir upplýsingar um stöðu úrvals- og aðalvísitölu Kauphallar Íslands og að lokum lætur verðbréfa- vaktin vita um allar meiri háttar breytingar á gengi viðkomandi verðbréfs og sendir allar fréttir sem tengjast félaginu. - hhs síminn býðuR sms-maRkaðsvakt Viðskiptavinir Símans geta fylgst með í rauntíma hvenær breytingar verða á mark- aði í gegnum SMS-markaðsvakt. Síminn stendur markaðsvaktina
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.