Fréttablaðið - 13.12.2006, Síða 72

Fréttablaðið - 13.12.2006, Síða 72
MARKAÐURINN Á dögunum sendi Lánstraust hf. út bréf til fjölda fyrirtækja þar sem stjórnendum og forsvars- mönnum þeirra var bent á að tímasetning skila ársreiknings fyrir árið 2005, sem eru liðin, geti haft áhrif á lánshæfismat þeirra. Í bréfinu kemur fram að nýjar upplýsingar um fyrirtæki gefi réttari mynd af þeim og auki jafnframt líkurnar á réttum viðskiptakjörum. „Rökin fyrir skilaskyldu árs- reikninga eru þau, að um nokk- urs konar gagngjald sé að ræða fyrir hagræðið af því að fá að stunda atvinnurekstur með tak- markaðri ábyrgð. Aðrir eigi á móti þessu hagræði rétt á að fylgjast með rekstrinum,“ segir í frétt frá Lánstrausti. á ANNAÐ þúsUNd fyRIRtæKjA veRÐA ógjAldfæR Lánstraust gefur út tölfræðilegt áhættumat, LT-skor, sem metur líkur á ógjaldfærni íslenskra fyr- irtækja til eins og þriggja ára og byggjast útreikningar meðal annars á upplýsingum úr árs- reikningum. Með ógjaldfærni (probability of default) er átt við líkur á því að fyrirtæki verði gjaldþrota eða fái á sig árangurslaust fjárnám. Björg Arnardóttir, lánasérfræð- ingur hjá Lánstrausti, segir að LT-skorið spái því að 7,1 prósent af hlutafélögum og einkahlutafé- lögum verði ógjaldfær innan tólf mánaða, eða um 1.695 fyrirtæki. LT-skorið eykur öryggi í láns- og reikningsviðskiptum til muna því fyrirtæki geta hraðað og bætt ákvörðunartöku við lánveitingar til nýrra eða eldri viðskiptavina, dregið áhættu í láns- og reikn- ingsviðskiptum og auðveldað ákvarðanir við greiðslukjör. BetRI fyRIRtæKI hAgNAst á BAsel II Útlánaáhætta er mæld með mörgum mælistikum. „Ein þeirra er notkun tölfræðilegs áhættu- mats. Matið gengur út á að meta hæfni viðskiptamanns til fram- tíðargreiðslugetu með það fyrir augum að lágmarka útlánatap í framtíðinni,“ segir Björg. Nýjar tilskipanir ESB sem nefndar eru einu nafni Basel II til einföldunar, voru staðfestar 14. júní 2006 og taka þær gildi um áramótin. Basel II regluverk- ið gerir fjármálafyrirtækjum kleift að reikna út eiginfjárkröfu útlána í samræmi við niðurstöðu innri matsaðferða. „Einstaklingar og fyrirtæki munu verða láns- hæfismetin. „Betri“ fyrirtæki munu líklega hagnast af innleið- ingu þessara reglna, og eiga auð- veldara með öflun lánsfjár og fá lánað á lægri kjörum.“ Það má segja að Basel II hafi sett leiðbeinandi reglur fyrir fyr- irtæki í útlánastarfsemi til að meta útlán eftir líkum á ógjald- færni. Fyrirtæki geta jafnframt fundið út þessar líkur með ytra mati líkt og LT-skori. tíU áhættUfloKKAR Reiknilíkanið, sem er undir- staða LT-skors, er hannað af norskum sérfræðingum hjá Creditinfo Decision, systurfé- lagi Lánstrausts. Björg segir að þegar þær breytur sem segja til um ógjaldfærni fyrirtækja eru rannsakaðar þá eru gögn um öll íslensk hlutafélög skoðuð fjögur ár aftur í tímann ásamt ógjald- færnigögnum ári síðar. Þannig er fundið með línulegri aðhvarfs- greiningu (línuleg tengsl milli tveggja breyta) hvað er í raun sameiginlegt með þeim fyrir- tækjum sem verða ógjaldfær. Þær upplýsingar sem hafa áhrif við útreikning á ógjaldfærni eru meðal annars upplýsingar úr árs- reikningum, skiladagur til árs- reikningaskrár Ríkisskattstjóra, vanskilaupplýsingar, starfsemi fyrirtækis, upplýsingar um stjórnarmenn og framkvæmda- stjóra og aldur fyrirtækis. Reiknilíkanið setur viðkomandi fyrirtæki í einn af tíu áhættu- flokkum. „Það sem hefur mest að segja við útreikning á ógjald- færni eru vanskilaskrá og árs- reikningar. Því hærri sem lík- urnar eru á ógjaldfærni þeim mun hærri áhættuflokki lendir fyrirtækið í,“ bendir Björg á. Upplýsingar úr ársreikningi hafa ýmist jákvæð eða neikvæð áhrif þegar líkur á ógjaldfærni eru reiknaðar. Björg segir að félög með hátt hlutfall fastafjár- muna af heildareignum séu ólík- leg til að verða ógjaldfær en fyrirtæki sem hafa hátt hlutfall veltufjármuna (viðskiptakrafna og vörubirgða) eru hins vegar líklegri til þess. Einnig hefur eiginfjárstaða fyrirtækis áhrif á góða niðurstöðu. áhRIf sKIlA á áRsReIKNINg „Þá hafa skil á ársreikningi áhrif á niðurstöðu. Tölur okkar sýna að 20 prósent af þeim fyrirtækjum, sem hafa ekki skilað inn árs- reikningi árið áður, verða ógjald- fær innan tólf mánaða, hlutfall ógjaldfærra er mun lægra þegar skoðuð eru fyrirtæki sem hafa skilað ársreikningi eða um þrjú prósent,“ bætir Björg við. Vanskilaupplýsingar eru einnig notaðar við útreikning LT-skors en þar hefur fjöldi færslna úr vanskilaskrám Lánstrausts og aldur vanskilafærslna áhrif. „Helmingur fyrirtækja með þrjár vanskilafærsl- ur árið 2004 urðu ógjald- fær innan 12 mánaða. Þá var eftirtektarvert að fyrirtæki með þrjá van- skilafærslur, sem hafa skilað inn ársreikningi, eru mun ólíklegri til að verða ógjaldfær en sams konar fyrirtæki sem hafa ekki skilað ársreikningi.“ Vanskil stjórnar- manna eða framkvæmda- stjóra hafa einnig áhrif á ógjaldfærni fyrirtækja og til lækkunar á áhættu- flokkun viðkomandi fyr- irtækis. Fyrirtæki er einn- ig líklegra til að verða ógjaldfært ef stjórnarmenn þess eru á rekstrarsöguskrá, en þá hafa þeir verið tengdir gjald- þrota fyrirtækjum með ákveðn- um hætti. Ennfremur hafa þættir á borð við starfsemi fyrirtæk- is áhrif, enda fylgir mismikil áhætta einstaka atvinnugreinum. Aldur fyrirtækis skiptir máli að sögn Bjargar. „Áhætta vex þar til fyrirtæki ná þriggja ára aldri en minnkar eftir það. Áhættan er tvöfalt meiri hjá eins árs fyrir- tæki en tíu ára gömlu félagi.“ 13. desember 2006 miðvikudagur18 f y r s t o g s í ð a s t 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 0 1 2 3 >3 fjöldi vanskilafærslna Ó gj al df æ rn ih lu tfa ll Ógjaldfærnihlutfall Ógjaldfærnihlutfall án ársreikninga Björg ArnArdóttir, lánAsér- fræðingur hjá lánstrAusti „Það sem hefur mest um að segja við útreikn- ing á ógjaldfærni eru vanskilaskrá og ársreikningar. Því hærri sem líkurnar eru á ógjaldfærni þeim mun hærri áhættuflokki lendir fyrirtækið í.“ markaðurinn/rósa Benda á veiku blettina hjá fyrirtækjum Á annað þúsund fyrirtæki gætu orðið gjaldþrota eða fengið á sig árangurslaust fjárnám innan tólf mán- aða gangi spár LT-skors Lánstrausts eftir. Upplýsingar úr ársreikningaskrá og vanskilaskrá eru veiga- mestu upplýsingarnar við útreikninga á ógjaldfærni. Björg arnardóttir, hjá Lánstrausti, benti Eggerti Þór Aðalsteinssyni á að fimmtungur fyrirtækja sem skilar ekki ársreikningum verði ógjaldfær innan árs. Það sem hefur mest að segja við útreikning á ógjaldfærni eru vanskilaskrá og ársreikningar. Því hærri sem líkurn- ar eru á ógjald- færni þeim mun hærri áhættu- flokki lendir fyr- irtækið í ... félög með hátt hlutfall fastafjármuna af heildareignum séu ólíkleg til að verða ógjaldfær en fyrirtæki sem hafa hátt hlutfall veltufjármuna Með ógjaldfærni (probability of default) er átt við líkur á því að fyrirtæki verði gjaldþrota eða fái á sig árangurslaust fjárnám.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.