Réttur - 01.10.1949, Síða 87
RÉTTUR
279
BÓKAFREGNIR
ENSKAR BÆKUR:
A. L. Morton: A People’s
Históry of Englantl.
Bók þessi kom fyrst út 1938 og
hefur verið prentuð í mörgum
' uþþlögúm, hún var m. a. ein
þeirra bóka, sem kom út í „Left
'Book Club“ fyrir heimsstyrjöld-
ina síðari. 1948 kom hún út í auk-
inni og endurbættri útgáfu. Hún
hefst á því að segja frá forsögu
Bretiands og élztú frumbyggjum,
Iberum og Keltum, og nær allt
fram að síðari heimsstyrjöldinni
(563 bls. alls). Þetta er Englands-
saga, rituð út frá sjónarmiði
marxismans. Einkalífi kónga og
drottninga er lítill gaumur gef-
inn, en lögð því meiri rækt við að
lýsa þróun landsins 1 hagsöguleg-
um Qg þjóðlegum efnum. Bókin
er skemmtileg og létt aflestrar og
einkar hentug þeim, sem ekki eru
á hnotskóg eftir sérþekkingu í
þessum efnum.
T. A. Jackson: Ireland her
own, London, Cobbelt Press
1946.
Höfundurinn, T. A. Jackson,
inun ýmsum hér á landi kunnur
af fyrri bókum sínum, t. d. Dia-
lecties, the Logie of Marxism og
Charles Dickens, the progress of
a radical. Ireland her ówn er sam-
kvæmt undirtitlinum söguágrip
um þjóðfrelsis- og sjálfstæðisbar-
'áttu íra, en er reyndar miklu
meira. Þetta er írlandssaga, sem
nær frá elztu tímum til vorra
daga. Hér er ekki sagt frá stjórn-
málabaráttunni einni, hún er
tengd við hagrænar og félagsleg-
ar aðstæður hvers tímabils og
margt séð í nýju ljósi.
M. Ilin heitir kunnur rússnesk-
ur höfundur, sem einkum hefur
fengizt við að rita bækur fyrir
unglinga um ýmis konar fræðileg
efni. Efnistök, framsetning og
stíll hafa þótt með slíkum ágæt-
um, að bækur hans hafa verið
þýddar á margar þjóðtungur og
jafnvel orðið fyrirmynd um gerð
slíkra bóka. Og þótt þær séu eink-
uin miðaðar við unglinga, má
gegja að þær séu engu síður við
hæfi fullorðinna. Þar er fjallað
um alls konar fróðleik, einkum
um eðlisfræðileg efni, og frásögn-
in svo fjörug og skemmtileg, að
maður hrífst með. Af fyrri bók-
um hans má nefna hér t. d. „What
time is it“ (um sögu klukkunnar),
„Black on white“ (saga letur-
gerðarinnar), „Turning night
into day“ (um ljósagerð) o. s. frv.
Nú er Ilin ásamt félaga sínum
E. Legal að semja eins konar
þróunar- og menningarsögu
mannkynsins í svipuðum stíl og
fyrri bækur sínar. Þrjú bindi
þessa verks eru þegar komin út á
ensku. 1. bindið heitir „How Man
became a Giant“ og greinir frá
frumsögu mannsins, félagsháttum
hans, verkfærum, siðum og trú og
baráttunni við Náttúruöflin — og
nær fram á fyrsta skeið svo-
nefndrar siðmenningar. II. bindið
„Giants at the Crossroads" nær
yfir fornöldina — og fjallar mest
um sögu grísk-rómverskrar
menningar. Því lýkur á hruni
Rómaveldis. Þriðja bindið er ný-
komið út og kallast á enskunni
„The Giant widens the world“ og
fjallar um miðaldirnar til renais-
sansatímans.
Bækur þessar munu ekki ætl-
aðar sérfræðingum á þessu sviði,
en allir aðrir geta sótt þangað
mikla fræðslu og ánægju — og þá
trú á lífið, sem þeir þurfa að eiga
sem erfa skulu landið.