Réttur


Réttur - 01.06.1955, Side 8

Réttur - 01.06.1955, Side 8
HALLDÓR KILJAN LAXNESS: Ræða flutt á fullveldisdaginn 1. desember 1955 „ /j fullveldisdaginn, sem jafnan hefur verið haldinn hátíðleg- ur síðan 1918, sérstaklega af æskumönnum undir forusm háskólastúdenta, er eðlilegt að á hugann leiti nokkrar spurníngar um tilverurök þessarar norrænu eyþjóðar, sem lærðir útlendíngar telja að búi á ystum takmörkum þess að lifað verði siðmenníngar- lífi. Þessi minníngardagur stúdenta um fullveldi íslands er hald- inn að upphafi hávetrar, á árstíma sem þessi hluti jarðhvelsins fer að nálgast mestan skugga. Það útheimtist meira siðferðisþrek til að svara spurníngum um tilverurök á degi með hörðum vindum og þúngu skýafari, og næstumþví aungri dagsbirm, heldur en á blíðum vordegi þegar alt leikur í lyndi. En það er bót í máli á okkar dögum, að hugsa til þess að hér var oft dekkra umhorfs í inngáng jólaföstu heldur en nú. Hér stóðu áður í dölum og með ströndum fram lág torfhróf eða moldar- bíngir í stað húsa á víð og dreif, með næstumþví aungvum ljós- um á þessum tíma árs utan ósýnilegu ljósi fornsögunnar í brjósti þjóðarinnar. Það hefur aldrei verið bjartara hið ytra í íslenzku skammdegi en á okkar tíð. Island hefur, einsog er, tækni á valdi sínu til jafns við fiest önnur lönd, og jafnvel meiri en þau lönd sumhver, sem liggja við suður á heimskrínglunni, lönd þar sem vitrum útlendíngum hefur virst náttúrlegt að siðmenníng yxi af sjálfu sér einsog blóm. Alþjóðleg tækni heimsins hefur flutt okkur siðmenníng híngað. En það má ekki fara að ímynda sér að sú alþjóðleg tækni sem hefur

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.