Réttur - 01.06.1955, Page 9
RETTUR
137
lagt undir sig ísland og flutt því siðmenníngu, í sumum grein-
um jafnvel á borð við það sem gerist með forgangsþjóðum, hafi
streymt hér fram fyrir tilverknað undurs, líkt og þegar Móses
drap staf sínum á klett. Fullveldinu hefur fylgt innlendur atvinnu-
rekstur, íslenskar siglíngar og íslensk utanríkisverslun; þjóðin
jókst að afli til að starfa á tæknilegum grundvelli, til að sigla og
versla, um leið og hún sleit af sér nýlenduböndin. Vinnuafl
íslensku þjóðarinnar var gert arðbært, því var beint að viðreisn
nútímalegs þjóðarbúskapar, það var gert að grundvelli undir ís-
lenskum þjóðarhag, undir sjálfstæðri nasjónalökonómíu. Og svo
mun halda áfram, siðmenníng og velmegun aukast í þessu landi
meðan — og því aðeins — starfskröftum og hugviti íslenskra
Halldór Kiljan Laxncss