Réttur - 01.06.1955, Page 53
RÉTTUR
181
þing yrði rofið, enda aðhefðist stjórnin ekki neitt sem væri
í andstöðu við alþýðusamtökin:
1. Alþingi samþykki þingsályktun eða frumvarp um end-
urskoðun og uppsögn samningsins við Bandaríkin er gerð-
ur var 5. maí 1951.
2. Alþingi samþykki frumvarp um kaup á nýjvun tog-
urum og stuðning við sveitarfélög til atvinnuframkvæmda
í samræmi við frumvarp fjögurra þingmanna úr þeim
flokkum sem væntanlega mundu veita stjórninni stuðning
eða hlutleysi.
3. Ákveðin verði og framkvæmd stækkun landhelginnar
þar sem þörfin er brýnust í samræmi við fram komnar til-
lögur á Alþingi.
4. Þegar verði hafizt handa tun lánsútvegun til nýrra
virkjana Sogs og annarra raforkuframkvæmda.
Á það var bent að Alþýðuflokkurinn og Framsókn hefðu
látið í veðri vaka að þeir væru hlyntir öllum þessum málum.
Svar Framsóknarflokksins var afdráttarlaust. Kvaðst
flokkurinn líta á svar Sósíalistaflokksins sem neitun og
ekki kæmi til mála að fallast á nein skilyrði.
27. marz lagði Ólafur Thors fram lausnarbeiðni fyrir
sig og ráðuneyti sitt. Sama dag var gefið út forsetabréf um
þingrof frá 24. júní að telja og skulu kosningar til Alþing-
is fara fram þann dag. Stjórninni var falið að gegna störf-
um fram yfir kosningar.
4. april voru stofnuð kosningasamtök þeirra vinstri
manna, sem lýst 'hafa fylgi sínu við stefnuyfirlýsingu Al-
þýðusambands Islands og tillögu þess um samstöðu í
kosningum og á Alþingi. Hlutu samtök þessi nafnið Al-
þýðubandalagið.
Miðstjórn þess er skipuð 9 mönnum, 4 sósíalistum og
4 vinstri Alþýðuflokksmönnum, en níundi miðstjómar-
maðurinn er Finnbogi R. Valdimarsson.
1 öllum kjördæmum skulu starfa kosninganefndir banda-
lagsins. Skulu þær gera tillögur um framboð. og koma
fram fyrir kosningaflokksins hönd í kjördæminu. Endan-