Réttur - 01.01.1959, Blaðsíða 129
RÉTTDB
129
efnisins eru langt frá því að vera óbreytanlegir, frumeindirn-
ar eru undirorpnar stöðugum breytingum.
Það var fyrsr hin dialektíska heimsskoðun, sem gerði sér
grein fyrir öllu þessu. Hún leggur einmitt áherzlu á það, að
allt breytist, ekkert stendur í stað stundinni lengur, og öll kyrr-
staða er aðeins afstæð. En öll þessi breyting stefnir stöðugt upp
á við, hún er jafnframt framþróun.
En nú vaknar sú spurning, hvað þessari framþróun valdi.
Eins og áður var sagt, viðurkenndi vélræna efnishyggjan ekki
annan aflvaka breytingar en utanaðkomandi orsakir, þ.e.a.s.
árekstur efniseinda. En þessir tilviijunarkenndu og stefnulausu
árekstrar geta ómögulega skýrt þróunina upp á við, frá lægri
tilverustigum til æðri. Hvað er það þá, sem veldur henni?. Hér
erum við komin að sjálfum kjarna dilalektískrar heimsskoðun-
ar, undirstöðunni undir allri byggingu hennar. Hún álítur sem
sé, að driffjöður þessarar þróunar séu innri mótsagnir, sem í
hlutunum búa og koma af stað átökum andstæðra afla. Til
skýringar þessu er rétt að líta á fáein dæmi. Þannig stafar
framþróun lífveranna af mótsögninni, sem er milli erfðaeigin-
leika þeirra og þess umhverfis, sem þær þurfa að laga sig að;
hún skapar sífellt æðri og hæfari tegundir. Hliðstæð þessu er
mótsögnin milli manns og náttúru, en hún er leyst á annan
hátt: með stöðugum umbótum á framleiðslutækjunum. Mann-
leg þekking vex einnig á dialektískan hátt: gamlar hugmyndir
ienda í mótsögn við nýjar uppgötvanir og er þá ýmist varpað
fyrir borð eða breytt til samræmis við kröfur samtímans. Og
þannig mætti lengi teija. Þessi átök mótsagnanna koma ætíð
fram sem barátta forms og innihalds. Innan sérhvers forms
kemur fram vísir hins nýja, vex þar og dafnar, unz hann
sprengir af sér gamla formið og skapar nýtt. Af þessu leiðir enn
eina dialektíska grundvallarsetningu. Hægfara „kvantítatívar"
eða megindarbreytingar leiða í fyllingu tímans til eigindar-
breytinga, byltinga, sem gerast með tiltölulega snöggum hætti
— eða, eins og Hegel orðaði það fyrst, megind breytizt í
eigind. Þetta kemur fram á öllum sviðum náttúru og þjóðfélags;
við getum tekið nokkur dæmi: Þegar vatn er hitað upp, ger-