Réttur


Réttur - 01.05.1933, Side 3

Réttur - 01.05.1933, Side 3
vinarins og- þykjast vilja berjast fyrir hagsmunum bænda og verkamanna, Jónas frá Hriflu hefir sýnt það áður sem dómsmála- ráðherra, að hann var óliræddur við að beita ofbeldi gegn verklýðshreyfingunni og útbreiðslu sósíalismans, bæði með brottrekstri kommúnista úr menntastofnun- um og með lögregluárásinni í garnaslagnum, fangels- un kommúnistanna út af atvinnuleysisbaráttunni o. fl. En honum er ekki síður lagin hin aðferðin, sem auð- valdinu nú kemur bezt, að reyna að blekkja einmitt hina i'átæku til fylgis við hina ríku — og þeirri aðferð reynir hann að beita í grein sinni um „kommúnisma og samvinnu“ í nýútkomnu hefti „Samvinnunnar“. — Þykist hann þar leiða „rök að því, sem ekki verða hrak- in, að kommúnisminn getur ekki orðið nema til óláns og óhamingju fyrir þjóðina, en samvinnan er aftur á móti brúin yfir til vaxandi gengis fyrir einstaklinga og þjóðarheildina“ (bls. 79). Skal nú þessi grein hans og röksemdaleiðsla tekin fyrir lið fyrir lið. Oss finnst rétt að gera honum það hátt undir höfði, þar sem vitanlegt er, að fjöldi róttækra sveitamanna lítur enn til þessa manns sem foringja í baráttu gegn íslenzka auðvaldinu, og á hann þá trú sérstaklega að þakka hinni framúr- skarandi heimskulegu og oft sérstaklega níðingslegu en samt álíka óverðskulduðu árásum Morgunblaðsins á hann. — I. Er samvinnan að sigra auðvaldið? J. J. byrjar með því að lofa mjög þær umbætur, sem samvinnan hafi komið á hér á landi, og heldur svo á- fram: „Og það sýnist sannarlega ekki útlit fyrir að hér sé um stöðvun að ræða. Samvinnan tekur þar ný og ný verkefni. Kaupmanna- og útgerðarmannavaldið hefir hrunið víða um land, síðan kreppan tók að þrengja að“ (bls. 62). Og hann álítur einu hjálpina vera sam- vinnuna. 67

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.