Réttur - 01.05.1933, Page 14
sem á engan sinn líka í veraldarsögunni og aldrei mun
firnast, meðan mannkyn bygg-ir þessa jörð, — en á
sama tíma hefir auðvaldsheiminum hnignað, svo að
hann er nú kominn aldir aftur í tímann og stefnir
hröðum skrefum til svartasta miðaldamyrkurs, ef ekki
tekst áð yfirbuga auðvaldið á næstunni með byltingu
verkamanna og bænda.
Og jafn þýðingarlaust er að reyna að hugga sjálfan
sig og blekkja aðra með því, að rússneska byltingin sé
byggð á „sögulegri tilviljun“ (bls. 67). Þvert á móti
er russneska byltingin tilkomin af sögulegri nauðsyn
og er aðeins einn liðurinn í heimsbyl'tingu verkalýðs-
ins — og byrjar einmitt á þessum stað, sökum þess að
auðvaldið hrynur þar fyrst, sem mótstaða þess er veik-
ust, innri mótsetningar þess mestar og yfirstéttin mest
hötuð.
Að nokkru leyti viðurkennir J. J. einmitt með lýs-
ingu sinni á ástandinu í Rússlandi hina sögulegu nauð-
syn byltingarinnar. Hins vegar reynir hann að halda
þeirri fjarstæðu fram, að bylting hefði hvergi getað
orðið annars staðar. Staðreyndirnar sýna þvert á móti,
að verkalýðurinn gerði byltingar í Þýzkalandi, Austur-
ríki, Ungverjalandi, Finnlandi, — en hann skorti hæf-
an forustuflokk til að leiða byltinguna yfir í virkilega
verkalýðsbyltingu — og á því strandaði hún. Ella
hefði þá strax 1918— 20 myndast Sovétlýðveldi alla leið
frá Rín til Kyrrahafsins.
Og J. J. gleymir því fyllilega, að í miðju Kína er
Sovétríki, sem telur ca. 120 miljónir íbúa, mestmegnis
bændur, og því ríki vex sífellt fiskur um hrygg.
Þá gerir J. J. tilraun til að gera sem minnst úr
kommúnismanum í nágrannalöndunum. Og rétt er, að
hann er veikur þar enn þá, en hins vegar i hröðum
uppgangi. í Englandi er nú t. d. Independant Labour
Party, sem J. J. er kunnugt frá dvöl sinni þar fyrr-
um, að klofna, þannig að meirihluti þess fer yfir til
kommúnista. Samfara því hruni brezka heimsveldisins,
78