Réttur - 01.05.1933, Page 57
ryddu réttlátu þjóðskipulagi braut, jafnaði jarðveg-
inn, svo að aldrei þyrfti að koma til byltingar. —
Reynslan hefir sannað hið gagnstæða. — Nú eru
kaupfélögin og samvinnuhreifingin í sveitum orðin
einhver sterkasta stoð ríkjandi skipulags. Kaupfélög-
unum er stjórnað gersamlega með hagsmuni efnaðra
bænda fyrir augum. Þeir óttuðust sumir hverjir í byrj-
un samábyrgðina, héldu, að það gæti orðið til þess, að
,,duglegi“ bóndinn yrði fyrir eignatjóni vegna ,,let-
ingjans", en svo heitir á þeirra máli fátæki einyrk-
inn, sem þrátt fyrir æfilangt strit frá morgni til
kvölds hefir varla ofan í sig eða á. En stjórnendur
kaupfélaganna hafa séð við og sett undir þann leka.
Nú fá ekki aðrir út en þeir, sem annað hvort greiða
í reiðu fé eða geta sett þær tryggingar fyrir úttekt-
inni, sem teknar eru gildar. Afstaða smábóndans til
kaupfélaganna verður því sú sama og afstaða hans
til kaupmannsins, áður en þau komu til sögunnar. Nú
er líka svo komið, að áhrif og fylgi ,,Framsóknar“
(sem er flokkur kaupfélaganna og þar með stór-
bændanna) fara þverrandi meðal fátækari bænda.
,,Vinstri“ armur ,,Framsóknar“ veit þetta og skilur,
hvílík hætta hreifingunni getur stafað af því, ef þeir
standa uppi með stórbændurna eina eftir. Þess vegna
er það lífsspursmál fyrir flokkinn að halda þessum
mönnum í trúnni, vekja á ný þær vonir hjá þeim, að
,,Framsókn“ vilji þeirra hag og leiði þá hægt og
hægt inn í ríki velmegunar.
Það er því engin tilviljun, heldur virðist vera
þaulhugsað herbragð, þegar tveir þingmenn úr
,,vinstra“ armi ,,Framsóknar“, þeir Steingrímur Stein-
þórsson og sr. Sveinbjörn Högnason, bera fram
frumvarp á þinginu um samvinnubyggðir. Hugmynd-
in er tekin frá Sovét-Rússlandi, þar sem samyrkju-
búin blómgast ár frá ári, og eru studd af ríkisbú-
unum og ríkisvaldinu á allan hátt. Það hefir ótvírætt
sýnt sig, að þar í landi, þar sem framleitt er með
121