Réttur - 01.05.1933, Page 40
sameinuð í frjálsri samvinnu þeirra til að verða.
aðnjótandi kostanna við rekstur í stórum stíl.
Þegar þessir kraftar fátækra bænda og samvinnu-
manna, sem nú liggja í læðingi Framsóknar, losna
— þá er líka verklýðs- og bændabyltingunni á fs-
landi sigur vís.
Einar Olgeirsson.
Horst Wessel,
Skáldmæringur nationalsósíalista
eftir ílja Ehrenburg.
Þeir voru skólapiltar með allavegalitar húfur. Þeir
hrópuðu ,,svei, svei“, þegar stríðsvagnarnir voru
leiddir gegnum strætin. Þeir öskruðu: „Guð refsi
Englandi!“ Þeir sungu: „Hver byssuhvellur — einn
Frakki fellur!“ Þeir byrjuðu lífsferil sinn með her-
söngvum og hvellbaunum.
í stríðslokin voru þeir táplitlir og lífsgramir ungl-
ingar. í Weimar reyndu sósíaldemokratarnir að hefja
bjórkollur sínar til himins. En raddir þeirra voru hás-
ar og enginn vildi hlusta á þá. Verkamennirnir vildu
fá að lifa og borða. Þá skipuðu sósíaldemokratamir:
„Skjótið þá niður!“ Þeir voru að framkvæma stjórn-
arskrána, sem þeir voru nýbúnir að samþykkja. Þeir
vildu ekki. sleppa valdinu í hendur hershöfðingjun-
um og tóku því sjálfir að sér hin þýzku hlutverk
Cavaignacs og Gallifets1).
Cavaignac er herforinginn, sem kæfði i blóði júni—uppreisn
verkalýðsins í París 1848. Gallífet er böðull sá, sem hefndi bur-
geisanna svo grimmilega á verkalýð Parísar eftir uppreisnina og,
«kommúnana« 1871.
104