Réttur - 01.05.1933, Page 62
um þess skilyrðislaust. Töluðu þarna fulltrúar frá
verkalýð flestra landa Evrópu og hafði fjöldi þeirra
orðið að fara huldu höfði til að komast á þingið.
íslenzkir antifasistar höfðu kosið 4 fulltrúa til að
mæta á þinginu í Höfn, en sökum þess, að það á
síðustu stundu var flutt til París, gátu þeir ekki set-
ið þingið.
Aðaláhersla var á það lögð, sérstaklega af þýzku
fulltrúunum, að a'ðalbaráttan gegn fasismanum væri
baráttan gegn auðvaldi síns eigin lands. Ef menn
berðust aðeins gegn fasisma annara landa, þá væru
menn í rauninni að gerast áhangendur þjóðremb-
ingsstefnunnar. Það volduga afl, sem eitt saman get-
ur nú sigrað fasismann og auðvaldsstríðið, sem hon-
um er svo nátengt, er alþjóðastefna öreigalýðs allra
landa.
Sosialistinn Poupy sleit þinginu með þessum orð-
um: ,,Vér getum slitið þessu þingi, vopnaðir til bar-
áttunnar og fullir eldmóði til að skipuleggja vörnina
gegn fasismanum, eyðileggja hann og feta áfram til
frelsis verkalýðsins".
Og í ávarpi þingsins stendur: „Raunveruleg bar-
átta gegn fasismanum er ómöguleg nema hún sé um
leið barátta gegn auðvaldsskipulaginu“.
Víðsjá
Um víða veröld harðnar baráttan milli auðvalds
annarsvegar og undirokaðra stétta og þjóða hinsveg-
ar og nálgast óðum úrslitahríðin.
í Þýzkalandi rís verkalýðurinn og hinar fátæku,
blektu millistéttir meir og meir gegn Hitlersstjóm-
inni. Hin 'vaxandi dýrtíð, aukna atvinnuleysi og sí-
versnandi lífskjör hafa nú þegar sýnt niiklum hluta
alþýðunnar að loforð nasista reyndust eingöngu
126