Réttur


Réttur - 01.05.1933, Side 30

Réttur - 01.05.1933, Side 30
svartliða, sem dulklæða sig sem bændavini og segj- ast ætla að fá bændum bankavald í hendur og gera þá svo að þrælum þess! Það er ómögulegt fyrir fá- mennan flokk úr kaupstöðunum að gera bændur að þrælum sínum. Til þess þarf bankaauðvaldið að hafa fjölmennan flokk eins og Framsóknarflokkinn í sveitunum sjálfum — og þá getur það vel látið fá- mennan flokk stórbroddanna sitja hálaunaðan í höf- uðstað landsins til að halda bændum rólegum undir okinu með blekkingum um sigra samvinnunnar. En kommúnistabyltingin á Islandi, það er einmitt hvað annan aðalþáttinn snertir, bylting smábænda og að nokkru leyti miðlungsbænda á íslandi gegn bankaauðvaldinu og skuldafjötrum verzlunarauð- magnsins, þar sem þessir vinnandi bændur heimta aftur þær jarðir til að vinna á, sem bankarnir læ- víslega hafa af þeim tekið í reyndinni og sviftu þá nú ávöxtunum af. Það er byltingin gegn þrældómi skuldavaldsins, byltingin, sem gerir þá að frjálsum mönnum. Og þá yrði þessum bændum heldur ekki skotaskuld úr að skapa virkilegar samvinnubyggðir á samfeldu ræktuðu landi, á Suðurlandsundirlendi, í Borgarfirðinum, í Húnavatnssýslum, í Skagafirðinum, svo nefnd séu nokkur dæmi um hentugustu héruðin fyrir samyrkjubúskap íslenzkra bænda í framtíðinni. En þó þetta nú allt saman gengi, þá vonar J. J. að kommúnistaríki á íslandi myndi „skapa hungursneyð í kauptúnum og kaupstöðum, þar sem flestir lifa af störfum við útgerð og fiskvinnu“. Það þarf ekki bylt- ingu til að skapa hungursneyð á íslandi. Það er ver- ið að skapa hana með hinni rólegu, þingræðislegu, þjóðlegu þróun, sem J. J. dáist svo að. Það er hung- ursneyðin, sem er aðalbandamaður auðvaldsins og allra erindreka þess í baráttunni við verkalýðinn. Það var hungursneyðin, sem dómsmálaráðherrann Jónas Jónsson ógnaði verkalýð Siglufjarðar með í ræðunni 5. sept. 1930. Það var hungursneyðin, sem 94

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.