Réttur


Réttur - 01.05.1933, Side 36

Réttur - 01.05.1933, Side 36
tryggja arðrán og kúgun auðvaldsins gagnvart vei'ka- lýð og bændum. Og ,,lýSræði“ J. J. gerði meira en afhjúpa sig sem nýtc drottnunarfyrirkomulag fyrir Hambros Bank, Kveldúlf, Shell og Co. Það þroskaði jafnframt vísan að hinum opinbera fasisma auðvaldsins. Því lýð- ræði J. J. hélt auðvitað auðvaldsskipulaginu við og olli með því komu kreppunnar — þessarar óviðráð- anlegu fylgu auðvaldsskipulagsins — og hvað er nú orðinn árangurinn eftir 6 ára starf og tvöfaldar sam- steypustjómir Framsóknar með bræðingum á báða vegu: Atvinnuleysi eins og fsland hefir aldrei þekkt það áður, síversnandi lífskjör verkamanna og smá- bænda, óbærilegar skuldabyrðir sveitafólksins. hrun millistéttanna í bæjunum. Og það er þetta ástand, þessi kreppa, sem fram- kallar fasismann. Þegar auðmannastéttin hefir ekki lengur ráð á að halda verkalýðnum rólegum með smáendurbótum, kaupa skást settu hlutana úr al- þýðunni til sjávar og sveita í lið með sér með sér- stökum fríðindum, þegar sívaxandi hluti lýðsins rís upp gegn ófamaði og vitfirringu yfirráða hennar, — þá grípur auðvaldið til nakins ofbeldis til að halda lýðnum undir okinu áfram. Og einmitt dómsmálaráð- herrann, Jónas Jónsson ruddi brautina fyrir þeirri beitingu ofbeldisins með því að siga lögreglunni á verkalýð Reykjavíkur í garnadeilunni, hilma yfir með Keflavíkurræningjunum og ofsækja kommún- ista, sem þátt tóku í atvinnuleysisbaráttunni 1980. J. J. er því einn aðalbrautryðjandi fasismans á ís- landi — eins og raunar allir hinir svokölluðu lýðræð- isforingjar. Hafi hann fengið verðugan eftirmann í verklýðsofsóknum, þar sem Magnús Guðm. er, þá er það ennfremur hans sök í og með. ef Gísli Bjarna- son yrði svo eftirmaður þeirra beggja síðar meir. En þetta brautryðjendastarf J. J. fvrir fasism- ann, hindrar ekki að fasistaflokkur kaunmanna- 100

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.