Réttur


Réttur - 01.05.1933, Page 45

Réttur - 01.05.1933, Page 45
iiúrra, til dýrðar sínu mikla föðurlandi, en þeim var tafarlaust sparkað út. Þeir báru sig aumlega og fóru .að minna á sínar fornu þjónsdyggðir. Hefir Noske kannske ekki látið skjóta fjölda kommúnista? Þeir eru stórlega hneykslaðir. Það getur þó alls ekki kom- ið til mála, að farið verði að varpa þeim 1 fangelsi, innan um þessa landráðamenn, kommúnistana! Þeim finnst þeir hafa unnið til þess að fá eftirlaun og rétt til að bera fram kærur sínar fyrir ríkisréttinum. En vinir Horst Wessel njóta tilverunnar. Innanrík- isráðherra, Göring, spígsporar um götur borgarinnar í reiðbuxum. Iíann sést aldrei öðruvísi en með svipu í hendinni. Klókir náungar ræna marxistiskum skóm og alþjóðlegum pylsum úr Gyðingaverzlununum. All- ir þessir ljósfælnu einstaklingar, sem áður höfðu leynzt í hinum þröngu hliðargötum, koma nú fram á .yfirborðið og gerast óskammfeilnir — allir þessir .sadistar, morfínistar, geðsjúklingar, morðingjar. Til er teikning eftir Georg Grosz, sem sýnir einn slíkan sálsjúkling; hann er nýbúinn að myrða konu og þvær nú samvizkusamlega hendur sínar upp úr lít- illi skál. Hver veit, nema liann sé nú orðinn lögreglu- stjóri? — Fyrr meir horfðu þeir græðgiaugum á kvikmyndalér- eftið, þar sem hinir nafntoguðu læknar Mabuse og Caligari sáust að iðju sinni. Áhorfendurnir voru snoð- klipptir og höfuðlagið var með skörpum brúnum og dældum. Þeir urpu öndinni. Þeir þráðu þá stund, er einnig þeim veittist tækifæri til að tæta sundur lifandi mannakjöt. Þeir biðu. Og bið þeirra var ekki árang- urslaus. Eru það ekki einmitt þessir menn, sem hafa fengið það starf að „yfirheyra" handtekna verkamenn? Hvers vegna var eiginlega verið að taka kvenmorðingi- ann frá Dússeldorf af lífi? Hann hefði líka getað orð- Ið að liði við það að frelsa Þýzkaland úr klóm marx- Ismans. í Berlín stóð Karl-Liebknecht-húsið. Það hafði fengið 109

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.