Réttur


Réttur - 01.09.1940, Page 9

Réttur - 01.09.1940, Page 9
undirmatstilfinninguna sem lífsveganesti og hávaða- > mennska þeirra er mótvægi hennar. Þeim hættir oft við að halda að nauðsyn' sé að losna við allt, sem kallast borgaraleg menning og borgaralegt siðgæði. Á seinni árum hafa menn með þessu gáfnafari flest- f ir hafnað í nazisma. Þá eru og til menn, sem viö getum kallað skinsó- síalista — samanb. skinhelgi — það eru mennirnir, sem nota stéttarbaráttuna sjálfum sér til framdrátt- ar. Þetta eru siðferöilega gallaðir menn, sem ekki eru færir um að uppfylla þær siðgæðiskröfur, sem hvert þjóðfélag þarf aö gera til þegna sinna. Þessvegna prédika þeir afnám hinna fornu dyggða. Þeir skilja ekki ættjarðarástina af því þá skortir félagskennd. Þeir slá undan í baráttunni af því að þeir eru snauð- ir af hugrekki. Og af því að þá skortir þegnskap svíkja þeir hugsjón sína og stétt, verkalýðinn og mannkyn- ið og níðast á því, sem þeim er tiltrúað. V, * Mun nú ekki komið mál til aö láta sér skiljast að allir þeir sem af einlægni unna menningunni eiga samleið og þurfa aö skipuleggja krafta sína í bar- áttunni hversu margt sem annars kann aö skilja þá; og hvort, sem þeir standa nær hinum íslenzka menntafrömuöi eöa erlenda byltingamanni þá er tak- markið það sama. Alþýðan, sem ann góðvild og göfgi, hjálpfýsi, sann- leik, þegnskap og réttlæti, hlýtur að skapa sér það þjóöfélagsform, sem er fært um að fóstra slíkar dyggðir. 97

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.