Réttur - 01.09.1940, Qupperneq 17
að hafa séð heræíingarnar, við fréttaritara blaðsins
Pravda (Pravda, 14. sept. 1936):
“Skriðdrekastjórar ykkar hafa náð fullkominni
leikni í stjórn véla sinna. Þeir sýndu hæsta stig
tæknilegrar getu, sem hægt er aö ná, og þaö við
öll skilyrði nútíma orustu”.
Pierre Cot, fyrrverandi flugmálaráðherra Frakka,
ritar í franska tímaritið Vu, 10. júlí, 1935, eftir að
hafa dvalið í Sovétríkjunum og kynnt sér RauÖa her-
inn:
“Þeir (foringjar Rauða hersins, — ritstj.) eru
menn, sem hafa nútíma hernaðarfræði og hernaö-
artækni fullkomlega á valdi sínu. Þeir eru ungir,
gagnrýnigáfa þeirra er vel þroskuð, og þeir bera
það með sér, að þeir eru greindir og einbeittir.
Menningarlegur sjóndeildarhringur þeirra er víð-
ur, og andleg forvitni þeirra (undirstaöa allrar
menningar) og hin víötæka þekking þeirra gerðu
mig undrandi”.
Enski hershöfðinginn Wavell, sem var viðstaddur
æfingar Rauöa hersins 1936 (sá, sem stjórnar þessa
dagana hinni sigursælu sókn brezkra vélahersveita á
hendur ítölum í Egyptalandi og hefur auðsjáanlega
allgott vit á nútíma hernaði), segir 1 viðtali, sem
Pravda birti 14. sept. 1936:
“Hinir æðri foringjar Rauða hersins eru yngri en
í flestum öðrum herjum, þar með töldum þeim
brezka. Það er mjög ákjósanlegt atriði. Herinn
þarfnast ungra og athafnasamra foringja”.
í þingræðu 28. febr. 1936 sagði Pierre Cot (skýrsla
franska hermálaráðuneytisins):
“Flugfloti Sovétríkjanna er orðinn hinn öflugasti
í heimi, og hann heldur áfram að eflast óðfiuga”.
Þýzki ofurstinn von Biilow ritar í málgagn þýzka
hermálaráðuneytisins í desember 1935:
“Á undanförnum árum hefur loftfloti Sovét-