Réttur - 01.09.1940, Blaðsíða 40
Höfuöverkefnum flokksins í nánustu framtíð má
skipta í þrjú aöalatriði, sem þó eru nátengd hvert
ööru og veröa ekki aöskilin í starfi flokksins:
I. Baráttan fyrir daglegum hagsmunum og réttind-
um alþýðunnar í landinu gegn afturhaldinu, hinni
opinberu spillingu og fasistisku þróun.
II. Baráttan fyrir sjálfstæöi landsins.
III. Undirbúningur alþýðunnar undir valdatökuna
og framkvæmd sósíalismans.
í einstökum atriöum verður flokkurinn aö leggja
áherzlu á eftirfarandi mál:
1. Djarfleg barátta fyrir hagsmunum og rétti ís-
lendinga í viðskiptunum viö brezka setuliöiö eöa hvert
þaö hervald, sem tökum nær á íslandi.
2. Frelsi og eining verkalýðssamtakanna og afnám
ófrelsisákvæða vinnulöggjafarinnar.
3. Hækkuö laun með vaxandi dýrtíð.
4. Barátta gegn atvinnuleysinu, fyrir auknum verk-
legum framkvæmdum, fyrir aukningu fiskiflotans,
nýjum verksmiöjum fyrir sjávarútveginn og annarri
hagnýtingu landsgæða.
5. Barátta gegn dýrtíðinni; afnám innflutningshaft-
anna.
6. Barátta gegn drottnun Thorsara- og Landsbanka-
klíkunnar í fjármála- og atvinnulífi þjóðarinnar.
v 7. Barátta gegn spillingunni og mútukerfinu í op-
inberu lífi.
8. Barátta fyrir lýðréttindum fólksins, gegn ein-
ræðis- og ofsóknarstefnu þjóöstjórnarliðsins.
9. Barátta fyrir endurbótum á tryggingalöggjöf-
inni og fátækralöggjöfinni, fyrir ráöstöfunum til að
tryggja fólki sæmilegt húsnæði og annari félagsmála-
löggjöf.
10. Barátta fyrir margháttuöum ráðstöfunum til
hagsmuna fyrir fátæka bændur, umbótum á skipun
afurðasölunnar, umbótum á jarðræktarlögunum,
128