Réttur


Réttur - 01.09.1940, Side 51

Réttur - 01.09.1940, Side 51
um itrasta hlutleysis verði komizt hjá allri hættu um skerðingu á því. Um leið og rikisstjórnin hefur nú svarað áður- nefndu erindi yðar, með ósk um, að svarið verði eins íljótt og mögulegt er kunngert brezka utanríkismála- ráðherranum, vil ég að endingu láta í ljós þá einlægu von mína, aö bfezka ríkisstjórnin muni taka þessari ákvöröun íslenzku ríkisstjórnarinnar með velvild og skilningi. Kveðjuorð”. i Þaó hafa menn fyrir satt, að Héðinn Valdimarsson hafi á þessum leynifundi þeirra höfðingjanna mælt með því að gengið væri aö því tilboöi Englenúinga að gerast hernaöaraöili og bandamaöur þeirra, enda haföi hann áöur lagt til að ísland geröist hluti af hinu brezka heimsveldi. En Alþingi var algerlega leynt því sem fram fór — sem og öll þjóðin. Er ekki ólíklegt að síðar meir eigi fleiri kurl éftir að koma til grafar um undirbúning hertökunnar hér á landi og vitorð íslendinga þar á. Einkum hvílir hula mikil yfir starfi og samningum ^ hinnar svokölluðu viðskiptanefndar, er send hafði verið til Englands eftir að styrjöld hófst og dvaldist i Englandi um langt skeiö. Hin opinbera yfirlýsing Alþingis um að konungs- * valdið væri flutt inn í landiö, var af hálfu ríkisstjórn- arinnar að því er næst verður komizt, umsamið mál við stjórnir Bretlands og Bandaríkjanna, er strax “viðurkenndu” ísland sem óháð danska konunginum, en auösjáanlega hafði ríkisstjórn íslands ekki hirt um að hafa neitt samband við önnur hlutlaus ríki og stór- veldi um þetta mál. Var einmitt tilætlunin sú að gera með þessu ísland algerlega háð hinum engilsaxnesku herveldum. t Þegar svo hertakan gerðist 10. maí varð þetta allt enn augljósara. Hver óspillt stjórn hefði tekið inn- rásarhernum sem fjandmönnum, þó ekki dygði að 139

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.