Réttur - 01.09.1940, Side 58
ingar veröur því fyrst og í'remst háð af verkalýð og
beztu menntamönnum íslands gegn afturhaldi yfir-
stéttarinnar. Og sú barátta er nú þegar hafin — og
með hverjum degi skiptast gleggra í fylkingar beggja
megin í þeirri hríð.
Ofsókn afturhaldsins gegn þessari þjóðnýtingu
menningarinnar er háö undir samskonar vígorðum
og fasisminn annarsstaðar heyir baráttu sína fyrir
afturförum á öllum sviðum, — vígorðum krossferðar-
innar gegn kommúnismanum, Og á sama hátt eins
og fasisminn brennimerkir hvern frjálslyndan mann,
sem vogar að andæfa honum, sem kommúnista, á
sama hátt brennimerkir leiðtogi afturhaldsins hér á
andlega sviðinu, Jónas Jónsson, jafnvel menn eins og
Árna frá Múla og Vilmund Jónsson sem kommúnista.
— íslenzka afturhaldið virðist alveg sérstaklega hafa
tekið sér þýzka nazismann til fyrirmyndar í því að
skipuleggja ofsóknirnar gegn andstæðingum sínum,
beita slíkri skoðanakúgun að ekki hefur þekkst önn-
ur eins í lýðræðisþjóðfélögum auðvaldsins og misnota
vægðarlaust ríkisvaldiö í þjónustu flokka sinna og
blaöa.
Undir yfirskyni herferðarinnar gegn kömmúnisma
skipuleggur íslenzka afturhaldið ekki aðeins baráttu
gegn verkalýðshreyfingunni, heldur og baráttu gegn
menningunni á íslandi, gegn allri viðleitni til aö gera
þjóðarlíf og þjóðmenningu íslendinga að alþjóðar-
eign. Það sýnir sig bezt í afstöðu þess til Máls og
menningar.
Og með þessu vegur afturhaldið beinlínis að menn-
ingarlegri sjálfstæðisbaráttu íslendinga, vinnur í
þágu erlendrar yfirdrottnunar og innlimunar.
Baráttan fyrir verndun þjóðernis og menningar
veröur því óhjákvæmilega barátta gegn afturhaldinu
hér á landi, — en barátta fyrir því að hefja alla þjóð-
146