Réttur - 01.09.1940, Page 59
ina upp á hærra stig menningar en hún nokkurntíma
hefur staöið á áöur.
Frelsisbarátta alþýðunnar og menningarbarátta
allra þeirra, er varðveita vilja og efla hið bezta í þjóð-
ararfi vorum, hlýtur því óhjákvæmilega að fara sam-
an.
Baráttan gegn fjárhagslegri og pólitískri innlimun
íslands.
Fjárhagsleg tengsl íslands við Bretland voru sterk
fyrir stríð, en íslendingum var þó frjálst aö mestu
hvar þeir seldu vörur sínar og hvar þeir keyptu,
nema kolin.
En með hertökunni er hafin fjárhagsleg innlimun
íslands í hagkerfi Bretlands. íslendingum er nú ó-
heimilt að selja vörur sínar, nema meö leyfi brezku
auðmannastjórnarinnar. Og íslendingum er óheimilt
að kaupa nema frá Englandi og það, sem þeim “af
náö” er leyft að kaupa í Bandaríkjunum ,svo þeir
geti haldið áfram að vinna fyrir Breta.
íslendingum er greitt hátt verð fyrir útflutnings-
vörur — í pappírspundum, sem ekki fást yfirfærð í
dollara. Og pappírspundið er á frjálsum markaði í
New York metiö aðeins sem hálfviröi þess, sem það
er skráö hér í hlutfalli við dollar. íslendingar fram-
leiða og vinna og eiga eftir fyrsta stríðsárið yfir 50
milljónir pappírskróna inni í Englandi. Meöan þessi
inneign fæst ekki yfirfærð í dollara eða vörur keypt-
ar fyrir hana á heimsmarkaðsverði, þá er brezka auö-
valdið með þessu aö láta íslendinga lána, sér fé eða
að hafa af þeim fé meö okri á vörum til þeirra. Brezka
auðvaldið leiðir með þessu yfir ísland smámsaman
samsvarandi vöruskort og dýrtíð og það hefur leitt
yfir Bretland. En með venjulegri yfirstéttarslægð
sinni, þá tryggir það um leiö íslenzkri yfirstétt gróða
á vandræðunum eins og það lætur brezka auömanna-
147