Réttur - 01.09.1940, Síða 60
stétt raka saman íé þrátt fyrir neyö alþýöunnar.
Gróðinn, sem togaraeigendurnir hér fá, er í rauninni
fyrst og fremst á kostnað íslenzkrar alþýðu, því kauþ-
geta og fjármagn stríösgróðamannanna hér gefur
þeim möguleika til að sölsa undir sig bæði fram-
leiöslutæki, allskonar aörar eignir og svo neyzluvöru
frá almenningi, auk þess sem þeir meö innanlands-
lánum skattskylda sér alþýöuna framvegis, svo ekki
sé nú talaö um skattfrelsið. Svikamylla hinna brezku
og íslenzku yfirstétta í þessum leik er því auðséö. Og
það er skiljanlegt aö burgeisastétt íslands hefur ekki
mikiö viö svona innlimun að athuga,
Þaö er engin ástæða til aö ætla aö þessi fjárhags-
lega innlimun íslands í hagkerfi brezka auömagnsins
breytist verulega, ef brezka auövaldið vinnur þetta
stríö eða heldur velli. Þaö er engin dul á það dregin
af stjórnmálaleiötogum brezku og þýzku burgeisa-
stéttanna, aö smáríkin veröi ekki til í sinni gömlu
mynd eftir stríö. Meining hins sigrandi auövalds er
aö skapa utan um sig samfellt hagkerfi, er gefi því
nokkurn kost á að lina fjárhagsleg vandræöi sín á
kostnað hinna veikari þjóöa. Erindrekar Bretlands
hér á landi eru þegar teknir aö boöa þessa fjárhags-
legu innlimun sem fagnaöarboðskap.
, Ef svo færi að Bandaríkin tækju ísland herskildi, v
þá myndu aö vísu veröa ýmsar fjárhagslegar breyt-
ingar hér heima, en sjálf staöreynd hinnar fjárhags-
legu innlimunar myndi óhögguö standa, viö yröum
bara innlimaðir í hagsmunasvæði auöjötnanna í Wall
Street í staö bankavaldsins brezka.
Og nú munu flestir íslendingar spyrja: Hvernig fer
um stjórnarfarslegt sjálfstæöi vort, ef fjármálaþróun-
in verður á þessa leið?
Menn þurfa vel aö gera sér þaö ljóst, að fjárhagslega
innlimunin er aðalatriðið í málinu, hvort heldur
brezka eða Bandaríkjaauðvaldiö á í hlut. Arörán ís-
148
*