Réttur - 01.10.1974, Blaðsíða 55
INNLEND 5JB5 I
VÍÐSJÁ o L
Landsfundur Alþýðubandalagsins
Landsfundur Alþýðubandalagsins var hald-
inn í Reykjavík dagana 21.—24. nóvember.
A fundinum var samþykkt mjög ýtarleg al-
menn stefnuskrá flokksins, alllöng stjórn-
málaályktun og ýmsar ályktanir um önnur
mál. Þá var og samþykkt sérstakt ávarp til
þjóðarinnar, sem er prentað hér á eftir.
Formaður, varaformaður og ritari voru
öll endurkjörin: Ragnar Arnalds, Adda Bára
Sigfúsdóttir og Jón Snorri Þorleifsson. Enn-
fremur voru kosnir í miðstjórn eftirfarandi
félagar:
Alfheiður Ingadóttir, háskólanemi í Rvík,
Benedikt Davíðsson, formaður Sambands
byggingarmanna, Kópavogi, Bjarnfríður
Leósdóttir, varaform. kvennadeildar Verka-
lýðsfél. Akraness, Bjarni Þórarinsson, skóla-
stjóri, Þingborg, Eðvarð Sigurðsson, formaður
Dagsbrúnar, Rvík, Erlingur Viggósson, skipa-
smiður, Rvík, Garðar Sigurðsson, alþm., Vest-
mannaeyjum, Gils Guðmundsson, alþm.,
Rvík, Guðrún Hallgrímsdóttir, matvælafræð-
ingur, Rvík, Guðrún Haraldsdóttir, verka-
kona Hellu, Haraldur Steinþórsson, vara-
form. BSRB, Rvík, Helgi Guðmundsson, tré-
smiður , Akureyri, Hjörleifur Gttormsson,
líffræðingur, Neskaupstað, Júlíus Halldórs-
son, verkamaður, Hafnarfirði, Karl Sigur-
bergsson, skipstjóri, Keflavík, Kjartan Olafs-
son, ritstjóri, Rvík, Lúðvík Jósepsson, alþ.m.,
Neskaupstað, Magnús Kjartansson, alþm.,
Rvík, Sigurður Björgvinsson, bóndi, Neista-
stöðum, Sigurður Blöndal, skógarvörður,
Hallormsstað, Sigurður Magnússon, rafvéla-
virki, Rvík, Sigurjón Pétursson, borgarráðs-
maður, Rvík, Skúli Alexandersson, oddviti,
Hellissandi, Soffía Guðmundsdóttir, tónlist-
arkennari, Akureyri, Svavar Gestsson, ritstj.,
Rvík, Þór Vigfússon, menntaskólakennari,
Rvík og Vilborg Harðardóttir, blaðam., Rvík.
Varamenn í miðstjórn voru kjörnir í þess-
ari röð eftirtaldir: Þröstur Olafsson, hagfræð-
ingur, Rvík, Hilmar Ingólfsson, kennari,
Garðahreppi, Olafur Jónsson, bæjarfulltrúi,
Kópavogi, Guðmundur Hjartarson, banka-
stjóri, Rvík, Helga Sigurjónsdóttir, bæjarfull-
trúi, Kópavogi, Þorbjörn Broddason, lektor,
Rvík,Ragnar Geirdal, verkamaður, Rvík,
Stefán Jónsson, alþm., Rvík, Einar Karl
Haraldsson, fréttastjóri, Rvík og Eyjólfur
Magnússon, kennari, Borgarnesi.
Avarp landsfundar
Landsfundur Alþýðubandalagsins 1974 er
haldinn þegar hægri stjórn hefur stjórnað
íslensku þjóðfélagi um nokkurra mánaða
skeið. Á þeim tíma hafa landsmenn kynnst
á nýjan leik ótvíræðum íhaldsaðgerðum í
ætt við þær, sem viðreisnarstjórnin beitti á
síðasta áratug.
Hægri stjórn Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokks hefur nú þegar lækkað kaup almenns
247