Réttur - 01.10.1980, Side 29
okurskattinn til konmngs. - Hið „mennt-
aða“ auðvald Evrópu hræsnaði heima-
fyrir með hjali um lýðræði, mannréttindi
og annað, sem alþýðan hafði kúgað auð-
valdið til að láta í té — í Belgíu með alls-
herjarverkföllum - en sýndi hið gráðuga
andlit hýenunnar gagnvart þeim stóra,
fjölmemma heimi, sem það enn gat drottn-
að skefjalaust yfir í krafti kúgunar lier-
valds síns.
I landi því, sem eitt sinn var „frelsis-
ins fimbulstorð“, Bandaríkjunum, hafði
auðmannastéttin stórgrætt á manndráp-
unum miklu í Evrópu, auðhringirnir
margfaldað vald sitt og hugðust nú ganga
milli bols og höfuðs á róttækri verklýðs-
hreyfingu og sósíalisma í landi sínu :
1915 var Joe Hill,11 verkalýðssöngvar-
inn, drepinn af dómstólum Bandaríkj-
anna. 1918 var Eugene Debs, besti verk-
lýðsleiðtogi landsins, dæmdur í langa
fangelsisvist á sjötugsaldri og eyðilögð
heilsa hans í dýflissum. Sökimi var andúð
á manndrápum auðvaldsins og samúð
með rússnesku byltingunni. — 1920 voru
Sacco og Vanzetti saklausir dæmdir til
dauða af dómstólum ylirstéttarinnar,
haldið í fangelsi í sjö ár sökum mótmæla
heimsins — og drepnir samt í ágúst 1927.
Betta eru aðeins nokkrar myndir af of-
sóknum auðvaldsins gegn allri frelsis-
hreyfingu alþýðu. Auðvaldið ameríska
er orðinn sá óvættur, er Abraham Lin-
coln óttaðist 1865.1 -
II. Frelsisbarátta íslenskrar
alþýðu hafin
1. Sósíalisminn kveður .
sér hljóðs á íslandi
Þannig blasti, á árunum 1914—30, ver-
öld auðs og alþýðu og saga stéttabarátt-
unnar milli drottnara heims og kúgaðra
verkamanna og bænda við íslenskum sós-
íalistum og þeirri alþýðu íslands, er nú
var að vakina til meðvitundar um mátt
sinn og eignast framtíðarhugsjón frelsis
og sósíalisma. Fyrstu verklýðsfélögin
höfðu þegar hafið göngu sína.13
Brautryðjendunum miklu var ljós
harmleikurinn, sem gerst hafði í ágúst
1914.
Þorsteinn Erlingsson, sem talað hafði
af hrifningu um ákvarðainir Basel-fundar
sósíalista um allsherjarverkfall gegn
stríði á Dagsbrúnarfundinum í desember
1913,14 átti skammt eftir ólifað, er ógæf-
an dundi yf'ir (dó 27. sept. 1914). Ég
spurði Guðrúnu ekkju hans 1925 um við-
brögð hans og kvað hún hann hafa verið
ákaflega vonsvikiinn.
Stephan G. Stephansson, hinn hugum-
221