Réttur


Réttur - 01.10.1980, Page 60

Réttur - 01.10.1980, Page 60
að skipa sér um það og gera úr því það baráttutæki sem sæmt getur verkalýð Siglufjarðar. Það má enginn verkamaður láta sig það henda, að standa utan við Verka- mannafélagið Þrótt. Sá verkamaður sem það gerir, er að vinna á móti sínum hags- munum og hagsmunum okkar allra. Að síðustu viljum við fastlega skora á önnur þau verkalýðsfélög, sem enn eru klofin, að sameinast nú þegar. Við vilj- um skora á Verkakvennafélag Siglufjarð- ar og Verkakvennafélagið Osk að taka nú þegar upp skipulegt samstarf um sam- einingu félaganna. Sams konar áskorun viljum við beina til verkalýðsfélaganna á Akureyri og í Glerárþorpi. Athugið, að það eru aðeins hagsmunir atvinnurek- endanna að samtök verkalýðsins séu klof- in, en aftur á móti hagsmunir verkalýðs- ins að samtiik lians séu voldug og sterk. Með stéttarkveðju, Verkamannafélag Siglufjarðar." í lok fundarins var lirópað ferfalt húrra fyrir Verkamannafélaginu Þrótti og alþjóðasöngur verkamanna, Internat- ionalinn, sunginn. Að því búnu lýsti for- maður Verkamannafélag Siglufjarðar lagt niður. Það liðu þó tvö ár þar til Verkakvenna- félögin voru sameinuð. Tregða alþýðu- flokkskvenna var meiri en karlmann- anna, því að það var fyrst í ársbvrjun 1939 sem samþykkt var að viðlagðri alls- herjaratkvæðagTeiðslu í Verkakvennafé- lagi Siglufjarðar með 48 atkvæðum gegn 39 að leggja félagið niður gegn því að Verkakvennafélagið Ósk yrði einnig lagt niður og stofnað nýtt félag. 14. janúar 1939 samþykkti fundur í Osk einróma að það félag yrði lagt niður og 22. janúar var svo haldinn stofnfund- ur hins nýja félags, sem hlaut nafnið Verkakvennafélagið Brynja. Þar með var lokið klofningi verkalýðs- samtakanna á Siglufirði. Það átti sér svo ennþá lengri aðdrag- anda að verkalýðshreyfingin á Akureyri yrði við áskoruninni og sameinaðist. En það er saga, sem ekki verður sögð hér. Ég hygg að það sé rétt með farið, að sameining verkamannafélaganna á Siglu- firði hafi verið fyrsta skrefið sem stigið var til að græða þau sár, sem verkalýðs- hreyfingunni voru veitt með hinni ó- lieillavænlegu klofningsstarfsemi. En hvers vegna var það Siglufjörður sem ruddi brautina? Því er ekki auðvelt að svara. Þó má benda á að róttækni og 252

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.