Réttur - 01.10.1980, Qupperneq 65
Þótt ,,kókmálið“ haíi verið það sem
vakti athygli heimsins á Guatemala og
ástandinu þar, er það í sjálfu sér aðeins
ein þáttur í harmsögu almennings þar í
landi. Verkafólk í öðrum fyrirtækjum
hefur einnig orðið að þola margs konar
ofbeldisaðgerðir af hálfu eigendanna,
sem studdir haaf verið dyggilega af lög-
reglu landsins og her. Starfsmönnum hef-
ur verið rænt og undir hælinn lagt livort
þeir liafa komið í leitirnar aftur, og þá
raunar hvort þeir hafa verið lífs eða liðn-
ir þegar þeir fundust. Þeir sem hafa fund-
ist lifandi hafa undantekningarlítið ver-
ið pyntaðir lirottalega, og þau lík sem
fundist hafa, hafa verið illa farin af bar-
smíðum og annars konar pyntingum.
Auk jress hefur svo talsverður fjöldi
verkamanna, menntamanna og háskóla-
kennara verið myrtur.
Sök þessa fólks hefur verið augljós:
Það hefur unnið að því að skipuleggja
verkalýðshreyfingu og önnur almanna-
samtök gegn ógnarstjórn herforingjanna.
Það hefur reynt að gera almenningi ljósa
þá staðreynd, að gegn kúgunarstjómum
dugir ekkert afl nema almenningsaflið,
afl alþýðunnar. Og það er ekkert afl sem
kúgarinn óttast fremur.
Verkalýðshreyfingin skipuleggur sig
Eftir valdarán hersins og bandarísku
leyniþjónustunnar CIA árið 1954, hefur
ríkt ömurlegt ástand í Guatemala. En
það var ekki fyrr en tuttugu árum síðar
að verkalýðshreyfingin fór að endur-
skipuleggja sig, eftir að henni hafði ver-
ið bannað að starfa frá valdaráninu. Þeir
sem hvað mestum árangri náðu voru ein-
mitt starfsmenn Embotelladora Guate-
malteca SA, framleiðsluaðila Coca Cola
í landinu.
Haukur Már Haraldsson.
Eftir launadeilu við fyrirtækið, tókst
verkafólkinu við kókverksmiðjuna að
stofna verkalýðsfélag, sem meirihluti
starfsfólksins gekk í. Félagið var jafnvel
viðurkennt lagalega, þótt dómstólar í
Guatemala reyni með öllum tiltækum
ráðum að komast hjá því að viðurkenna
samtök verkafólks í landinu.
Aðaleigandi og forstjóri kókverksmiðj-
unnar í Guatemala City var John Clin-
ton Trotter. Trotter er lögfræðingur frá
Houston í Texas, alræmdur andstæðing-
ur allar verkalýðshreyfingar og alþýðu-
samtaka yfir liöfuð, náinn vinur lierfor-
ingjanna sem með völd fara í Guatemala
257