Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 11 FRÉTTIR Vorið klæðir þig vel N ý j a r v ö r u r - V o r t í s k a n 2 0 0 6 Skemmtileg sýning! ANDERS Hansen og Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir hafa fyrir hönd Heklusetursins á Leirbakka á Landi sent Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra boð um að varðveita þar safn Haraldar Sigurðssonar, jarðfræðiprófessors í Bandaríkj- unum, um eldgos og eldvirkni. Haraldur hefur ákveðið að gefa Íslendingum safn sitt og ákvað ríkisstjórnin nýverið að kosta flutning þess til landsins og kanna í framhaldinu hvar og hvernig því yrði best fyrir komið. Framkvæmdir standa yfir við Heklusetrið og er stefnt að því að fyrri áfangi þess verði opnaður með vorinu. „Í Heklusetrinu verð- ur sett upp nútímaleg og fræð- andi sýning um Heklu og sögu hennar og áhrif á þjóðlíf okkar í þúsund ár,“ segir Anders Hansen í samtali við Morgunblaðið og tel- ur hann að setrið sé vel til þess fallið að hýsa áðurnefnt safn Har- aldar Sigurðssonar, ekki síst vegna nálægðar við þekktasta eldfjall landsins. Hann segir að byggt hafi verið sérstakt safna- og sýningahús efst í Landsveit þaðan sem mikið og fagurt útsýni sé til Heklu. „Ætlunin er að í safninu verði lögð sérstök áhersla á áhrif Heklu á mannlíf í næsta nágrenni fjallsins og verður saga sveitanna rakin og barátta manna við sandstorma og uppblástur,“ segir Anders ennfremur. Í Heklusetrinu verður einnig aðstaða fyrir funda- og ráð- stefnuhald og efnt verður til menningar- og listviðburða, t.d. útnefndur Heklulistamaður ársins og hefur sá fyrsti sem sýnir í sumar þegar verið valinn. Þá seg- ir Anders að lögð verði áhersla á samstarf við vísindamenn til að kynna megi nýjungar og rann- sóknaniðurstöður og ráðgert er að sinna megi bæði íslenskum og erlendum nemendum. „Við ráð- gerum einnig að hér verði upp- lýsingamiðstöð fyrir ferðamenn þar sem bæði verður hægt að sækja leiðbeiningar og fá skipu- lagðar ferðir um fjallið,“ segir Anders að lokum og telur að Heklusetrið muni veita 6–8 manns störf árið um kring auk sumarstarfsfólks. Séð frá Heklusafninu sem nú er í byggingu við Leirubakka til eldfjallsins í nágrenninu. Heklusetur býðst til að hýsa eldfjallasafn DOFRI Hermannsson hefur ákveðið að bjóða sig fram í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík 11.–12. febr- úar næstkom- andi. Hann sækist eftir stuðningi í 4.–6. sæti á framboðslista flokksins í komandi borgarstjórn- arkosningum. Dofri útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands 1993 en leggur nú lokahönd á meist- aranám í hagfræði við Við- skiptaháskólann á Bifröst. Þar hefur hann lagt áherslu á um- hverfis- og auðlindahagfræði, ný- sköpun og frumkvöðlafræði. Hann starfar jafnframt sem sér- fræðingur við Rannsóknamiðstöð Viðskiptaháskólans á Bifröst. Dofri hefur undanfarin ár setið í stjórn Náttúruverndarsamtaka Íslands en að hans mati hans er knýjandi þörf á að umhverfismál fái aukið vægi í stjórnsýslunni og að málaflokkurinn fái þá aðferða- fræði í hendur sem nauðsynleg er til að hægt sé að taka réttar ákvarðanir. Slíkt á ekki einungis við um umhverfismál á hálendinu heldur einnig og ekki síður í borgarsamfélaginu. Dofri leggur ríka áherslu á efl- ingu skapandi atvinnulífs. Hann telur brýnt fyrir Reykjavíkur- borg að snúið verði við flótta há- tæknifyrirtækjanna til útlanda og að þeim verði búin bestu mögulegu starfsskilyrði innan borgarinnar. Lista- og menning- arlíf er öflugt en gæti þó verið mun öflugra væru listamönnum búin betri skilyrði. Athuga þarf hvað Reykjavíkurborg getur gert til að styðja við og efla þau verð- mæti sem felast í kvikmyndaiðn- aði. Dofri leggur auk þess áherslu á mennta- og jafnréttismál. Brúa þurfi bilið á milli fæðingarorlofs og dagvistunar. Skapa þurfi skólastjórnendum og kennurum grunnskólans svigrúm til þróun- ar. Það verði ekki gert án sam- ráðs við samtök kennara og óvíst að ein launanefnd fyrir hönd allra sveitarfélaga sé sú leið sem best- um árangri skili. Dofri Hermannsson Býður sig fram í 4.–6. sæti TRÚNAÐARMENN leikskólakenn- ara í Kópavogi afhentu í fyrradag Gunnari Birgissyni, bæjarstjóra Kópavogs, ályktun þar sem fagnað er því frumkvæði Reykjavík- urborgar að meta störf ófaglærðra að verðleikum. Vonast er eftir að önnur sveitarfélög, og þá sér- staklega Kópavogsbær, feti í þau fótspor en leikskólakennarar í Kópavogi segjast ekki geta sætt sig við ástandið eins og það hefur verið í vetur, bæði hvað varðar álag og launakjör. Skorað er á bæjarstjórn Kópavogs að umbuna leikskólakennurum fyrir vel unnin störf en einnig er hún hvött til að nýta tækifærið á launa- málaráðstefnu sveitarfélaga og sjá til þess að laun leikskólakennara verði leiðrétt þannig að eftirsókn- arvert verði að starfa á leikskólum. Skora á bæjar- stjórn að leysa vanda leikskóla- kennara NEYTENDASAMTÖKIN hafa lýst yfir undrun sinni og vonbrigðum með að forsætisráðherra sjái ekki ástæðu til að verða við ósk samtak- anna um fulltrúa í nefnd til að fjalla um helstu orsakaþætti á háu mat- vælaverði á Íslandi, eins og segir í yfirlýsingu samtakanna. „Minnt er á að hátt matvælaverð hér á landi er afar mikilvægt neyt- endamál og því eðlilegt að Neyt- endasamtökin eigi fulltrúa í nefnd- inni,“ segir í yfirlýsingunni. Einnig er bent á að það sé tvennt ólíkt að taka þátt í mótunarstarfi eða eiga aðild að samráði. Með hlið- sjón af þessu hvetja Neytenda- samtökin forsætisráðherra til að endurskoða afstöðu sína og skipa fulltrúa Neytendasamtakanna í þessa nefnd. Vilja sæti í nefnd um matvælaverð HAFDÍS Gísladóttir hefur verið ráð- in framkvæmdastjóri Öryrkjabanda- lags Íslands og tekur hún til starfa fyrsta febrúar n.k. Frá ráðningu hennar var form- lega gengið á fundi fram- kvæmdastjórnar ÖBÍ í gær. Hafdís er leik- skólakennari að mennt með sér- kennsluréttindi frá Háskólanum í Osló. Hún er við það að ljúka meist- aranámi í stjórnsýslufræðum við Há- skóla Íslands. Hafdís var fram- kvæmdastjóri Félags heyrnarlausra frá 1997 til 2005. Á síðasta ári gegndi hún stöðu framkvæmda- stjóra Þjónustumiðstöðvar Reykja- víkurborgar– miðborgar og Hlíða. Hafdís var fulltrúi í aðalstjórn ÖBÍ frá 1997 til 2003 og átti sæti í fram- kvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins frá 1998 til ársins 2000. Ráðin framkvæmda- stjóri ÖBÍ Hafdís Gísladóttir Í NÓVEMBER síðastliðnum bárust barnaverndarnefndum landsins 480 tilkynningar varðandi 461 barn. 65% tilkynninganna (313) komu frá höfuðborgarsvæði en 35% frá landsbyggðinni (167). Af þessum 480 tilkynningum bárust 25 til- kynningar í gegnum Neyðarlínuna, 112. Ástæður tilkynninga skiptust þannig að 34,2% voru vegna van- rækslu, 14,8% vegna ofbeldis og 51% vegna áhættuhegðunar barna. Flestar tilkynningar komu frá lög- reglu og voru 48% allra tilkynn- inga. 480 tilkynningar til barnavernd- arnefnda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.