Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 47 MINNINGAR Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því, sem kemur, í æsku sinnar tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki. (Tómas Guðmundsson.) Pabbi og mamma. Elsku Ásgeir Þór, mig langar til að setja nokkrar línur á blað, nú þegar leiðir skilja. Ásgeir og Birkir voru tvíburabræður, Birkir lést í bílslysi 2001. Þeir áttu eldri bróður, Hjalta Hauk, sem dó af hjartaslagi ári síðar. Við sáum vaxa upp sjálfstæðan einstakling sem bjó einn í sinni íbúð og sinnti sínum áhugamálum. Hann hafði yndi af að ferðast og fékk tækifæri til þess bæði innanlands sem utan og naut þar aðstoðar for- eldra sinna. Þú varst mjög glaður yfir því að hafa séð örn í einni af ferðum þín- um í Gottorp. Þú varst mjög ánægður með ferðalögin síðastliðið sumar þegar þið fjölskyldan fóruð um Vestfirði og einnig varstu ánægður með ferð ykkar feðga á Austfirði nú í haust. Þú komst síðast til mín um jólin ásamt pabba þínum, þú varst glæsi- legur að vanda, í síða leðurfrakk- anum þínum og með ljósa hárið bundið í tagl. Ég mun geyma minninguna um þig í hjarta mínu, elsku Ásgeir minn. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku Ásgeir og Stefanía, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur og styðja í sorg ykkar. Amma Kolbrún. Mig langar að kveðja frænda minn, Ásgeir Þór, með örfáum orð- um. Ásgeir var sonur bróður míns Ásgeirs og Stefaníu konu hans, Þau eignuðust þrjá syni; Hjalta Hauk sem var elstur og svo tvíburana Ás- geir og Birki. Nú hafa þau misst alla syni sína á tæpum fimm árum. Ásgeir ólst upp í Kópavoginum með bræðrum sínum og foreldrum. Hann var afskaplega fallegt barn, ljóshærður og glaðsinna. Hann lenti í erfiðu slysi þegar hann var unglingur þegar hann missti stóran hluta annarrar handarinnar af völd- um flugelds. Hann lét það ekki aftra sér frá því að stunda lyftingar, sem hann náði góðum árangri í og einnig fékk hann sér mótorhjól sem hann hafði mjög gaman af. Ásgeir veiktist af sjúkdómi sem ÁSGEIR ÞÓR ÁSGEIRSSON ✝ Ásgeir Þór Ás-geirsson fæddist í Reykjavík 10. nóv- ember 1977. Hann lést 9. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Ásgeir Þór Hjaltason, f. 9. mars 1953, og Stefanía Kristjánsdóttir, f. 30. apríl 1956. Bræður Ásgeirs eru Hjalti Haukur, f. 31. október 1973, d. 20. júní 2002, og Birkir Þór Ásgeirsson, f. 10. nóvember 1977, d. 12. ágúst 2001. Útför Ásgeirs fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. ekki var læknanlegur, þegar hann var vart af barnsaldri, þessi sjúkdómur hamlaði honum á ýmsa vegu og það var margt sem hann ekki gat gert vegna hans. Ásgeir var listrænn og hafði mikinn áhuga á mynd- og leirlist og var hann duglegur að mála myndir og gerði fallega hluti úr leir. Hann hafði gaman af að ferðast og voru þau foreldrar hans ólöt að fara með hann í ferðalög, bæði innan og utan- lands. Síðastliðið sumar fóru þau í hálfsmánaðar ferðalag um Vestfirði með fellihýsið, þar skoðuðu þau marga fallega staði og höfðu þau öll gaman af. Ekki er hægt annað en að minn- ast á áhuga Ásgeirs á veiðum, hvort heldur fiskveiðum eða skotveiðum, hann fékk skotveiðileyfi fyrir nokkrum árum og höfðu þeir feðgar farið í nokkrar veiðiferðir og nú síð- ast í haust fóru þeir á hreindýra- veiðar sem var hápunkturinn á veiðiferðunum. Þar sýndi Ásgeir snilldartakta þegar hann felldi hreindýrstarf. Hann naut þess að vera með pabba sínum á veiðum og gat talað endalaust um upplifanir sínar í þessum ferðum. Elsku Ásgeir og Stebba, mamma og pabbi, ég bið góðan Guð um að styrkja ykkur og vera hjá á þessum erfiðu tímum og við skulum minn- ast orðanna sem Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.“ (Jóh.11:25.) Kær kveðja Ingibjörg. Í blóma lífsins kvaddir þú þennan heim. Þín stutta ævi var bæði blóm- um skrýdd og þyrnum stráð. Þú ólst upp hjá yndislegum foreldrum ásamt tvíburabróður þínum Birki og stóra bróður Hjalta. Margt var brallað, þið allir þrír bræðurnir voruð góðir vinir og æskan leið. Þú slasaðist alvarlega á hendi 12 ára gamall, þegar þið bræðurnir voruð að leika ykkur með rakettur og setti það mark sitt á þig, en þú lést það ekki hindra þig í því sem þú ætlaðir að gera. Þú varst mikill keppnismaður og gafst aldrei upp fyrr en toppár- angri var náð. Ég man að ég fór einu sinni með þér þegar þú varst að æfa lyftingar. Þá hættir þú ekki fyrr en tilætluðum árangri var náð, þó þú værir orðinn ansi þreyttur og bakið aumt. Á eftir sagðir þú mér að þér þætti gott að reyna svona mikið á þig því á eftir gætir þú slak- að á og hvílt líkama og huga. Ekki veitti af því þú varst búinn að missa bæði Birki og Hjalta og syrgðir þá sárt. Síðastliðið sumar hefur trúlega verið þitt besta sumar síðustu 5 ár- in, en þá fórst þú með foreldrum þínum í ferðalag um landið. Náttúr- an var skoðuð og fuglalífið kannað. Þú varst mikið náttúrubarn í þér, fannst gaman að veiða og liggja úti í náttúrunni. Nú ert þú kominn til þeirra Birk- is og Hjalta og þið þrír eruð örugg- lega að tala við hana Fjólu ömmu ykkar og sólin skín í heiði. Elsku Stefanía og Ásgeir. Missir ykkar er ólýsanlegur. Við Guð- mundur sendum ykkur okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum þess að þið megið finna styrk til að takast á við þessa miklu sorg. Helga frænka. Ásgeir Litli eða Yngri... eins og hann var yfirleitt kallaður vegna samnefnis við pabba sinn var 28 ára gamall síðan í nóvember. Það er ekki hár aldur. Ásgeir átti tvo bræður, þá Hjalta, sem var fjórum árum eldri og lést 2002, og tvíbura- bróður sem hét Birkir sem dó 2001. Nú eru þeir allir hjá Guði. Ásgeir var frændi minn en við höfðum ekki mikið samband, lík- lega vegna aldursmunar, þangað til 2001. En þá var ég í 10. bekk í grunnskóla, og fór að venja komur mínar til hans. Ásgeir var frábær vinur og frændi og vildi allt gott fyrir alla. Svo kom í ljós að við höfð- um svipuð áhugamál og gátum því spjallað saman heilu tímana. Ég var í boxi á þeim tíma en Birkir hafði verið í boxi líka, svo við töluðum mikið um hann. Ásgeir var líka með áhuga á boxi en þó meiri á lyftingum sem hann stundaði með hléum en þá íþróttagrein stunda ég núna. Ásgeir átti það til að fá dell- ur... eins og með lyftingarnar, byss- urnar, ferðalögin, mótorhjólið og minjagripasöfnunina. Ásgeir var mjög sterkur maður. Og hans sérgrein var bekkpressan. en vegna þess að hann var fatlaður á hendinni frá sprengjuslysi frá því hann var 13-14 ára, þar sem hann missti þrjá putta, keppti hann bara sem gestur á þeim mótum sem hann fór á. Frá Ásgeiri gengum við alloft niður í miðbæ en þangað var stutt að labba. Við fórum alltaf til að skoða í búðina hjá Magna, í Skífuna eða Mál og menningu þar sem við lás- um bækur um heimstyrjöldina. Svo var það tónlistin sem samein- aði okkur, við spiluðum oft tónlist- ina í botni hjá honum í græjunum hans sem voru mjög kraftmiklar. Einnig sömdu við lög saman og yf- irleitt spilaði ég á gítarinn meðan hann söng og eru til upptökur af okkur bæði á video og kasettum sem eru verðmætustu minningarn- ar mínar um hann og þá góðu tíma sem við áttum saman. Það var hleg- ið mikið og sagðar sögur um liðna tíma. Til þín Ásgeir: ég þakka þér fyrir allar stundir sem við áttum saman og Guð geymi þig, „þú átt öll mín tár“. Til Ásgeirs og Stefaníu: Á svona stundu er erfitt að ímynda sér líðan ykkar og finna huggunarorð. Ég bið Guð að blessa ykkur. Þið eruð í öllum mínum bænum. Davíð frændi. Elsku Ásgeir minn, það er erfitt að þurfa að horfa á eftir þér og ég er ekki enn búinn að sætta mig við að þú sért farinn. En ég ætla að virða þína ákvörðun þó að það sé erfitt og geyma minningarnar um góðan dreng í hjarta mínu. Því mið- ur var lífið þitt enginn dans á rósum og þú þurftir að berjast við erfiðan sjúkdóm. En það var sama í hvaða ástandi þú varst, þú varst alltaf þessi frábæri strákur með fallega persónuleikann og fyndna hlátur- inn. Það var þessi hlátur þinn sem gat komið mér í gott skap hvenær sem var og ég sakna þess að fá ekki að heyra hann aftur. Ég sakna þess líka að fá ekki taka aftur þátt í skemmtilegum samræðum við þig um lífið og tilveruna. Þú varst frábær vinur og ég sakna þín sárt. Hvíl í friði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Fjölskyldu Ásgeirs sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Hugur minn er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Ásrún Eva. Elsku Ásgeir. Við viljum þakka þér fyrir góð kynni. Okkur þótti öllum vænt um þig og söknum jafnt ljúfu og erfiðu stundanna með þér. Þú kenndir okkur svo margt. Meðan veðrið er stætt, berðu höfuð hátt og hræðstu eigi skugga á leið. Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans ljóð upp um ljóshvolfin björt og heið. Þó steypist í gegn þér stormur og regn og þó byrðin sé þung sem þú berð, þá stattu fast og vit fyrir víst, þú ert aldrei einn á ferð. (Þýð. Óskar Ingim.) Við sendum foreldrum Ásgeirs innilegar samúðarkveðjur. Starfsfólk og skjólstæðingar iðjuþjálfunar við Hringbraut. Elsku Ásgeir Þú reyndist mér traustur vinur. Til þín gat ég leitað þegar líf mitt var sem erfiðast. Ég fékk að kynn- ast yndislegri hlið á þér og hæfi- leika þínum til að hugga og sefa sársauka, sem erfitt er að takast á við. Baráttu þinni fyrir betra lífi er lokið. Veikindin sigruðu og hvíldina hefur þú fengið. Nú dvelur þú í faðmi englanna, þar sem þú ert um- vafinn kærleika og þar sem enginn sársauki er til. Oft ræddum við um Guð og til hans hefur þú leitað. Nú færðu þá hjálp og huggun sem þú þarfnast, kæri vinur. Ég votta foreldrum Ásgeirs mína dýpstu samúð, megi Guð styrkja ykkur og styðja í gegnum þessa miklu sorg. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Hvíldu í friði, elsku Ásgeir, þín vinkona Svala. Allt varð dimmt og allt varð hljótt það augnablik sem mér bár- ust þær fréttir að þú værir farinn yfir móðuna miklu, elsku frændi minn, Ásgeir Þór. Það er svo óraunverulegt og hræðilegt að hugsa til þess að þú svona ungur ert dáinn. Ég bið Guð um að leiða þig undir verndarvængjum sínum inn í ljósið til eilífðar friðar með stóra bróður þínum Hjalta Hauk og tvíburabróð- ur þínum Birkir Þór sem var kippt svo snögglega út úr þessum heimi með svo stuttu millibili fyrir fáum árum síðan. Nú eru þið farnir allir þrír og eftir liggur stór sorgargjá í fjölskyldu okkar. Ég sakna ykkar mikið og þeirra góðu stunda sem við áttum saman þar sem við töluðum um allt mögu- legt milli himins og jarðar. Allir höfðuð þið gaman af mynd- list og það voru ófá listaverkin sem þið gerðuð. Það voru engar óper- sónulegar uppstilltar kyrralífs- myndir heldur listaverk sem voru uppfull af mögnuðum pælingum um lífið og tilveruna: Hvað er til og hvað er ekki til? Hvað er rétt? hvað er rangt? Hvað er frelsi? Hvað er ekki frelsi? Og við vorum sammála um að það væri betra að kunna lítið af ritningunni og fara eftir henni en að kunna alla ritninguna og fara ekki eftir helmingnum sem þar stendur. Þegar við vorum krakkar man ég hvað það var spennandi þegar þið komuð í heimsókn með mömmu ykkar og pabba, þið voruð svo mikil krútt. Tvíburarnir svo líkir að það tók oft smá tíma að þekkja ykkur í sundur. Seinna gerðuð þið okkur hinum auðveldara með að þekkja ykkur í sundur þegar þið voruð með sitthvora klippinguna. Stundum voruð þið með sítt hár, langt niður á bak, með ykkar stóru bláu augu og fallega bros sem heillaði marga upp úr skónum. Eftir að þið uxuð úr grasi urðuð þið bara sætari og sætari og hugs- uðu vel um útlitið og höfðu gaman af allskonar sporti sem þið æfðuð og náðuð góðum árangri. Þið voruð miklir dýravinir eins og foreldrar ykkar og áttuð margar góðar stundir með þeim. Það er aðdáunarvert hvað þið bræðurnir þrír og foreldrar ykkar voruð miklir vinir og veittuð hvert öðru mikla hjálp og stuðning á erf- iðum stundum. Það var ekki alltaf dans á rósum hjá ykkur og þurftuð þið að draga þungan bagga snemma á ykkar ævi vegna hræðilegra slysa og veikinda sem herjuðu á ykkur. Ég loka augunum og sé ykkur í huga mér og hjarta: brosandi, glað- ir, skemmtilegir, fallegir strákar, litlu frændur mínir, og mun ég varðveita þá minningu. Elsku Stefanía og Ásgeir, Guð veiti ykkur styrk, að eilífu, amen. Samúðarkveðja Brynja Grétarsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN ÞORVARÐARDÓTTIR, áður til heimilis á Kleppsvegi 120, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 15. janúar. Útför hennar fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 26. janúar kl. 13.00. Unnar Jónsson, Auðbjörg Jónsdóttir, Kristín Schmidhauser Jónsdóttir, Ulrich Schmidhauser, Áslaug Jónsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI HALLDÓRSSON skólastjóri, Skúmsstöðum, Vestur-Landeyjum, verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju laugardaginn 21. janúar kl. 14.00. Guðríður B. Ársælsdóttir, Ragnheiður Þorvaldsdóttir, Ófeigur Grétarsson, Ólafía Ásbjörnsdóttir, Hafsteinn Sigurjörnsson, Grétar, Guðríður Bjartey, Ragnheiður Lilja og Heiða Sigríður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.