Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Staða málsins á morgun „ÞAÐ hefði átt að gefa út 100.000 tonna loðnukvóta til bráðabirgða í byrjun ársins. Það hefði leitt til þess að það hefðu alltaf verið skip á mið- unum og því miklu meiri líkur en ella á því að loðnan fyndist. 100.000 tonn til eða frá skipta litlu sem engu máli fyrir stofninn, því það er ekkert sem bendir til þess að hann sé í sérstakri lægð,“ segir Marteinn Einarsson, skipstjóri á Engey. Marteinn segir ennfremur að það sé einkennilegt að skip Hafrann- sóknastofnunarinnar skuli ekki vera á miðunum í stað þess að leita síldar. Það sé miklu meiri þörf á því að leita loðnunnar því þar sé mun meira í húfi nú. Verið ræddi við hann í gær en þá voru þeir inni á Reyðarfirði að frysta. Alls reiknar Marteinn með því að í þessum túr frysti þeir 1.300 til 1.400 tonn af loðnu og þar með sé heimildum þeirra til loðnuveiða lokið um sinn að minnsta kosti. Engeyin hefur verið að veiða úr svokölluðum leitarkvóta sem færður var yfir á hana. Mikið að sjá „Við vorum um 55 mílur norður af Langanesinu á miðvikudag og þá var mikið að sjá af loðnu. Þetta var vax- andi dag frá degi og við fengum mik- ið af loðnu í trollið. Mér virðist það mikið vera á ferðinni að það sé fylli- lega óhætt að hefja veiðar. Við vor- um nokkru austar um daginn og þar var töluvert af loðnu, en við urðum að fara út úr því vegna þess að það var áta í henni. Það er líka örugglega kominn loðna sunnar en þetta og hún gæti líka verið utar en í kant- inum, þar sem við höfum haldið okk- ur. Fyrir jólin var kanturinn nánast nakinn, en nú er alls staðar líf. Það er nauðsynlegt að fylgjast vel með loðnunni á þessum tíma og því þarf Hafró á vera á slóðinni ásamt fleiri skipum. Loðnan er svo dyntótt áður en hún gengur inn á grunnið að það verður að taka hana þegar hún gefst. Finni maður blett í dag er ekkert hægt að ganga að honum vís- um á morgun. Hins vegar er ekki ástæða til að hafa miklar áhyggjur strax. Það hefur oft komið fyrir að loðnan hafi ekki verið byrjuð að veið- ast á þessum tíma en vertíðin hafi samt orðið mjög góð,“ segir Mar- teinn. Vaxandi frá degi til dags Mikið að sjá af loðnu norður af Langanesi Morgunblaðið/Eyþór Loðnuveiðar Engey RE var í gær inni á Reyðarfirði að frysta loðnu. Gert var ráð fyrir að í túrnum yrðu fryst allt að 1.400 tonnum. ÚR VERINU NÝTT skip East Greenland Codfish AS kom til Neskaupstaðar í vik- unni. Útgerðin festi kaup á skipinu á haustmánuðum frá Noregi. Skipið er smíðað 1986 og hét upphaflega Atlantic Challenge og nú síðast Staaloy. Skipið er með 4.500 hest- afla Wichmann aðalvél frá 2001, nánast allur búnaður skipsins var endurnýjaður á árunum 1998 til 2003. Burðargeta skipsins er 2.100 tonn í 9 tönkum. Skipið, sem leysir af hólmi eldra skip í eigu félagsins, er með heimildir til loðnuveiða í ís- lenzkri lögsögu samkvæmt sam- komulagi við Grænlendinga, einnig er skipið með heimildir í norsk- íslenzkri síld og kolmunna. Síld- arvinnslan á 25% eignarhlut í félag- inu. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Nýtt skip til Neskaupstaðar BOÐUÐ hefur verið verðlækkun í Laxá í Nesjum og að auki verður leyft að veiða með maðki út tímabilið en síðustu sumur hefur einungis mátt veiða með flugu í ágúst. Að sögn Þrastar Elliðasonar, sem er með ána í umboðssölu, er um að ræða 20–30% lækkun miðað við fullt verð á ákveðnum tímum, en áin hafi verið fullhátt verðlögð undanfarið. Þá sagði hann nánast uppselt í Hrútafjarðará og salan gengi einnig vel í Breiðdalsá, en um nokkra verð- hækkun er að ræða í báðum ám. Kæmi þar til að staðið væri að mikilli ræktun í báðum ánum og kostaði það mikla fjármuni, þótt hann sem leigutaki hefði tekið kostnaðinn á sig fyrstu árin. „Veiðin hefur verið mjög góð síðustu ár, Hrútan með 5–600 laxa á þrjár stangir og Breiðdal- urinn fór yfir 800 laxa í fyrra. Þar er líka að aukast eftirspurnin eftir sil- ungsveiði á vorin, en þá geta menn búið í lúxusveiðihúsi og eldað fyrir sig sjálfir.“ Sagði hann rækt- unarátakið í Hrútafjarðará ganga mjög vel, sem sæist m.a. á því að veiðin hefði aukist mikið í neðri hluta árinnar. Þröstur segir leyfi á Seglbúða- svæðið í Grenlæk hækka nokkuð, um verðlagshækkun sé að ræða á ákveðnum tíma en nokkuð umfram það á öðrum. „Dýrustu leyfin eru á 28.800 eða álíka og í Tungufljótið.“ Nær uppselt í Víðidalsá Að sögn Stefáns Sigurðssonar, sölustjóra Lax-ár, verður nýtt veiði- hús tekið í notkun við Blöndu í sum- ar, en það rís þessa dagana við svæði tvö í ánni. „Þetta er glæsilegt hús og ekkert til sparað. Það verður tilbúið 20. maí, tímanlega áður en veiðin hefst 5. júní.“ Sagði Stefán stóru hollin í lax- veiðiánum hafa selst strax í haust en þessa dagana séu menn að kaupa stakar stangir, einn og tveir saman. Nú selji Lax-á leyfi í Víðidalsá og þrátt fyrir talsverða hækkun á leyf- um sé sáralítið eftir. „Hún er næst- um uppseld, ekki nema þrjú laxaholl laus. Þá selst ágætlega á sil- ungasvæðið, leyfin eru að tínast út. Til að byrja með voru menn að mót- mæla verðhækkunum þar, ég fékk nú að heyra það, en það er ekkert við þessu að gera,“ sagði hann og bætti við að nú opnaðist leið fyrir nýja veiðimenn til að komast á þetta róm- aða silungasvæði. Fullyrt hefur verið í vefmiðlum að Lax-á sé að ganga frá samningi um leigu á Svartá frá og með næsta ári, en SVFR er með ána sem stendur. Varðist Stefán allra fregna af því máli. Ef rétt reynist eru aðilar tengdir Lax-á orðnir mjög um- svifamiklir í sölu laxveiðileyfa í Húnavatnssýslum. Sagði Stefán sölu leyfa í Miðfjarðará ganga ágætlega, en þau hækkuðu talsvert milli ára og hefði heyrst af óánægju veiðimanna sem stundað hafa ána. Stefán sagð- ist kannast við þær raddir en við því væri lítið að gera, veiðifélögin vildu hækka leiguna; leyfin í allflestar stóru árnar væru að hækka. Nánast uppselt er í Blöndu í júní og júlí og sömu sögu má segja um Eystri-Rangá, þar er ekki mikið eft- ir af leyfum. Nýtt veiðihús í Kjósinni Hafin er bygging nýs veiðihúss við Laxá í Kjós. Að sögn Guðmundar Magnússonar í Káraneskoti, vara- formanns veiðifélagsins, verða 12 svefnherbergi í húsinu og verður að- staðan fyrir veiðimenn og starfsfólk 570 fermetrar. „Nýja húsið verður í brekkunni fyrir neðan það gamla, sem verður nýtt fyrir starfsfólkið,“ sagði Guð- mundur. „Þetta verður algjör bylt- ing. Húsið verður glæsilegt með ein- stöku útsýni niður ána, upp að Bugðu og upp dalinn.“ Fyrirhugað er að húsið verði tilbúið þegar veiðin hefst 15. júní. Guðmundur segir nýtt veiðihús hafa verið eina af forsendunum fyrir samningnum við nýja leigutaka, en það hafi verið farið að há ánni að hafa ekki fyrsta flokks veiðihús eins og eru við helstu samkeppnisárnar. „Auðvitað erum við í samkeppni um veiðimennina,“ sagði hann. Ný veiðihús við Blöndu og í Kjósinni Morgunblaðið/Einar Falur veidar@mbl.is STANGVEIÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.