Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 15
FRÉTTIR
RAGNHILDUR Helgadótt-
ir, jafnréttisráðgjafi hjá
ÍTR, býður sig fram í 3. sæti
í prófkjöri Samfylkingarinn-
ar í Kópavogi vegna sveitar-
stjórnarkosninganna í vor.
Ragnhildur hefur verið þátt-
takandi í félagsstarfi um
árabil, situr í stjórn Kvenna-
hreyfingar Samfylkingar-
innar, stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og æskulýðsnefnd hestamannafélagsins
Andvara. Ragnhildur var fulltrúi R-listans í
stjórn Sorpu og varafulltrúi R-listans í um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd.
Ragnheiður leggur áherslu á að Kópavogur
verði fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem eft-
irsóknarvert sé að búa fyrir alla aldurshópa.
Ragnheiður telur mikilvægt að Kópavogur og
ÍTK móti sérstaka stefnu í útivistarmálum al-
mennings innan bæjarmarka og í næsta ná-
grenni. Bæta þarf aðstöðu til frístundaiðkunar
og aðgengi að útivistarsvæðum og stígum fyrir
gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur.
Treysta þarf grundvöll hestamennsku í bænum
og skipuleggja framtíðarstað fyrir hestamanna-
félagið Gust, leggja áherslu á almenningsíþrótt-
ir og stuðla að aukinni þátttöku barna, unglinga
og aldraðra í heilbrigðum tómstundum. Leik-
skólapláss verði niðurgreidd og tryggt að börn
fái dagvistun eftir að fæðingarorlofi foreldra
lýkur. Ragnheiður telur mikilvægt að bæta þá
neikvæðu ímynd sem Kópavogsbær hefur feng-
ið á sig undanfarið vegna launamála.
Ragnhildur Helgadóttir
Býður sig fram í 3. sæti
SIGRÚN Elsa Smáradótt-
ir markaðsstjóri hefur
ákveðið að bjóða sig fram í
2.–4. sæti, í opnu prófkjöri
Samfylkingarinnar í
Reykjavík sem fram fer
11.–12. febrúar.
Sigrún Elsa hefur verið
varaborgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans sl. tvö
kjörtímabil. Hún á sæti í menntaráði Reykja-
víkur, áður í fræðsluráði og leikskólaráði, og
var m.a. formaður starfshóps sem mótaði
stefnu um gjaldfrjálsa vistun fyrir fimm ára
börn í leikskólum sem verið er að hrinda í
framkvæmd um þessar mundir. Sigrún er enn
fremur formaður samstarfsnefndar um lög-
reglumálefni, varaformaður stjórnar Orku-
veitu Reykjavíkur og formaður hverfisráðs
Hlíða. Hún hefur einnig átt sæti í umhverfis-
og heilbrigðisnefnd og íþrótta- og tómstunda-
ráði. Fyrir síðustu alþingiskosningar starfaði
hún sem pólitískur aðstoðarmaður Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur.
Á næsta kjörtímabili leggur Sigrún Elsa
áherslu á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og
leikskólavistar, laga grunnskólann frekar að
breyttum tímum og skapa aðstæður sem
hvetja til einstaklingsmiðaðs náms. Hún vill
stuðla að uppbyggingu Orkuveitu Reykjavík-
ur og auka þar vægi umhverfisvænna
áherslna við ákvarðanatöku. Með þessum og
öðrum vill Sigrún skapa hagstæð skilyrði
bæði fyrir fyrirtæki og mannlíf í borginni.
Sigrún Elsa Smáradóttir
Býður sig fram í 2.–4. sæti
FERÐUM um Hvalfjarðargöng
fjölgaði á síðasta ári um 12% en
þá voru farnar 1,6 milljón ferðir
um göngin. Nettótekjur Spalar
ehf. af hverri ferð um göngin eft-
ir að veggjaldið í göngunum
lækkaði 1. apríl eru rétt liðlega
500 kr. á ferð, að sögn Marinós
Tryggvasonar, starfsmanns Spal-
ar ehf.
Lætur nærri að lækkunin milli
mars- og aprílmánaðar sé 24%
en þegar litið er á tímabilið til
októbermánaðar er lækkunin um
17%.
Lyklanotkun hefur hins vegar
aukist stórlega eftir lækkunina
og eru nú í umferð um 25 þúsund
lyklar sem er áttfalt meira en
upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir um göngin.
Áhrif lækkunar veggjaldsins á
tekjustreymi Spalar ehf. er í
samræmi við áætlanir en umferð-
araukningin er hins vegar langt
umfram spár og brúar tekjutapið
vegna lækkunarinnar.
Gísli Gíslason, stjórnarformað-
ur Spalar ehf., gat þess á aðal-
fundi félagsins í nóvember sl. að
það væri flestum hulin ráðgáta
eftir hvaða lögmálum þróun um-
ferðar væri um Hvalfjarð-
argöngin. Umferðaraukningin
hafi komið Speli afskaplega vel á
nýliðnu rekstrarári og fróðlegt
verði að sjá þróunina á því
rekstrarári sem nýhafið er.
Upplýsingar um tekjur og af-
komu Spalar staðfestu hins vegar
að vegfarendur, viðskiptavinir fé-
lagsins, njóta mikillar lækkunar
veggalds.
Hefur veggjaldið hefur lækkað
um tugi prósenta frá því göngin
voru opnuð sumarið 1998, hvort
heldur horft er við nafnvirðis eða
raunvirðis. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Um 25 þúsund lyklar í
Hvalfjarðargöngunum