Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 76
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi Jóhanna Thorsteinson – þinn liðsmaður 2. sætiðwww.johanna.is Framboð til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi 21.janúar 2006 „ÞAÐ er ekki ofsögum sagt að þetta er rot- högg, eða nánast dauðadómur,“ sagði Sigfús Vilhjálmsson, hreppstjóri og oddviti á Brekku í Mjóafirði, þegar hann var spurður um hvað endalok laxeldis í firðinum þýddu fyrir byggð- arlagið. Sæsilfur hefur sagt upp fjórum af ell- efu starfsmönnum sínum þar sem hætta á laxaframleiðslu fyrirtækisins árið 2008. „Því miður eru ekki þeir atvinnumöguleikar hér að við getum veitt öllu þessu fólki vinnu. Því miður eru stjórnvöld ekki að gera eitthvað fyrir þessar strjálu byggðir. Það er ekki gert nógu mikið, alla vega. Mér finnst það allt of lít- ið, eins og með raforkuverðið. Hvað á þetta að þýða?“ Í Mjóafirði búa nú innan við 40 manns. Mjó- firðingar samþykktu nýverið að sameinast í nýtt sveitarfélag, ásamt Fjarðabyggð, Fá- skrúðsfjarðarhreppi og Austurbyggð. | 6 „Þetta er rothögg“ RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI hefur til rann- sóknar meint fjármálamisferli á tæknifrjóvgun- ardeild Landspítalans – háskólasjúkrahúss (LSH). Einn starfsmaður er talinn hafa verið viðriðinn málið og var honum vikið úr starfi þeg- ar grunur kom upp um misferlið við innra eft- irlit árið 2004. Talið er að misferlið hafi átt sér stað frá árinu 2002 til 2004. þeirra til að afhenda ríkislögreglustjóra upplýs- ingar um greiðslur sem þeir hafa innt af hendi til deildarinnar. Að sögn Jóhannesar hafa við- brögð við þessum óskum almennt verið góð. „Við viljum þó gefa fólki tíma til að gera það upp við sig hvort það vill og er tilbúið til taka þátt í rannsókn málsins,“ segir Jóhannes. „Það er ekki verið að spyrja að neinu varðandi meðferð, eingöngu varðandi hvernig fjármunum var ráð- stafað í málinu og hvernig fólkið greiddi fyrir þjónustuna. Rannsóknin beinist að því hvernig tekið var á móti greiðslum fyrir meðferð.“ Að sögn Jóhannesar Pálmasonar, yfirlög- fræðings LSH, var þegar óskað eftir rannsókn Ríkisendurskoðunar. „Í framhaldi af rannsókn Ríkisendurskoðunar var ákveðið að senda málið til Ríkislögreglustjóra og var það kært þangað,“ segir Jóhannes sem kveður mögulegt að fjár- hæðin sem um ræðir geti skipt milljónum. Hann segir að þjónustan og aðgangur að henni hafi ekki skerst á því tímabili sem um ræðir. Framkvæmdastjóri lækninga á LSH hefur skrifað rúmlega 100 fyrrverandi skjólstæðing- um tæknifrjóvgunardeildar og beðið um leyfi Grunur um fjárdrátt á tæknifrjóvgunardeild LSH Eftir Svavar Knút Kristinsson Svavar@mbl.is STÚLKA, rétt innan við tvítugt, fórst í umferðarslysi sem varð á Hnífsdalsvegi, milli Ísafjarðar- kaupstaðar og Hnífsdals, síðdegis í gær. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði var mikil hálka á veg- inum. Bíll stúlkunnar mun hafa runnið út af veginum og hafnað á varð sumum þeirra mjög kalt. Þar eð ekki var vitað í fyrstu hvort fleiri hefðu verið í bílnum leituðu björgunarsveitarmenn með strandlengjunni við slysstað- inn. Lögreglan á Ísafirði rannsakar tildrög slyssins. mjög erfiðar aðstæður. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins var þung alda á slysstaðnum, sjórinn mjög kaldur og lofthiti um frostmark. Björgunarmenn- irnir þurftu margir að standa í sjónum í 20–25 mínútur meðan þeir sinntu björgunarstörfum og hvolfi í sjónum. Stúlkan var ein í bílnum. Neyðarlínan fékk tilkynningu um slysið klukkan 16.19 í gær, að því er fram kom á mbl.is. Slökkvilið, lögregla og björgunar- sveitir komu á vettvang og hófu þegar björgunaraðgerðir við Morgunblaðið/Halldór SveinbjörnssonBjörgunarmenn unnu við erfiðar aðstæður í ísköldum sjónum. Banaslys á Hnífsdalsvegi JARÐSKJÁLFTAHRINA varð á Tjörnesgrunni í gær. Stærsti skjálftinn var 3,9 stig og mældist kl. 15.43. Upptök hans voru um 25 km norðan við Tjörnes. Þá höfðu orðið tveir skjálftar 3,5 að stærð. Laust eftir kl. 22 í gærkvöldi höfðu orðið 63 skjálftar frá mið- nætti, samkvæmt Skjálftavefsjá Veðurstofu Íslands. Upptök jarð- skjálftanna eru á svonefndu Grímseyjarbelti í Tjörnesbrotabelt- inu. Að sögn Gunnars B. Guðmunds- sonar jarðskjálftafræðings höfðu engir gefið sig fram sem urðu stóra skjálftans varir, þegar rætt var við Gunnar í gær. Ekki var hægt að greina gosóróa í þessum jarðhræringum, sem gæfi til kynna að um eldsumbrot væri að ræða. Skjálfta- hrina út af Tjörnesi                  *  2 $ )# + 3& % 2+   -/. 4) #) 1/ #) 5 %                 MEIRIHLUTI efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis leggur til að frumvarp ríkisstjórnarinnar um Kjaradóm og kjaranefnd verði sam- þykkt óbreytt frá Alþingi. Frumvarpið var afgreitt frá nefndinni á sjötta tímanum í gær. Önnur umræða um frumvarpið hefst á Alþingi fyrir hádegi í dag og að sögn Péturs H. Blöndal, for- manns nefndarinnar, er stefnt að því að það verði afgreitt frá Alþingi fyrir helgi. Efnahags- og viðskipta- nefnd fjallaði um frumvarpið í gær- morgun og aftur síðdegis. Hún kall- aði til sín ýmsa sérfræðinga og hagsmunaaðila, m.a. formenn Kjaradóms og kjaranefndar, og lagaprófessorana Eirík Tómasson og Sigurð Líndal. Telja frumvarpið gallað Minnihluti nefndarinnar telur frumvarpið gallað og hyggst leggja til breytingar á því. Að sögn Ög- mundar Jónassonar, sem sæti á í nefndinni, notaði stjórnarandstaðan tímann í gær til að samræma sjón- armið sín í málinu og muni það skýrast fyrripart dagsins í dag hvernig hún komi til með að af- greiða málið frá sér. Hins vegar megi ljóst vera að stjórnarandstað- an vilji greiða fyrir því að málið verið afgreitt með ákveðnum breyt- ingum. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Frumvarp um Kjaradóm verði samþykkt óbreytt YFIRTAKA Dana á Össuri var ein af þeim hugmyndum sem Jafet Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfastofu, viðraði á morg- unverðarfundi Sparisjóðs vélstjóra í gær. Sagði Jafet að ekki væri útilokað að William Demant, sem er fyrirtæki skráð í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn og á um 37% hlut í Össuri, myndi yfirtaka Össur. Jafet sagði að eign erlendra fjárfesta í ís- lenskum félögum skráðum á hlutabréfamark- að væri lítil, eitthvað væri um að erlendir fjár- festar ættu hluti í KB banka, Bakkavör og Nýherja en mest ættu erlendir fjárfestar þó í Össuri, eða um 40%. | 10 Dönsk yfirtaka á Össuri? ÞAÐ sem af er janúarmánuði hefur verið mjög lífleg sala á nýjum fólksbílum. Sem kunnugt er var metsala á fólksbílum á síð- asta ári og yfir 52% söluaukning frá 2004. Fyrstu tvær vikur þessa árs höfðu selst um 1.000 fólksbílar sem er nálægt 2–3% aukning miðað við fyrstu tvær vikurnar 2005. Farið er yfir bílasöluna á árinu 2005 í blaðinu í dag. | C4 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Mikil bílasala í janúarmánuði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.