Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 69
MICHAEL HANEKE
DANIEL AUTEUIL
JULIETTE BINOCHE
A FILM BY
BESTI LEIKSTJÓRI EVRÓPU 2005 · BESTI LEIKARI EVRÓPU 2005 · BESTA KLIPPING EVRÓPU 2005 · GAGNRÝNENDA VERÐLAUN EVRÓPU 2005
★★★★
„MARGBROTIN OG SPENNANDI
MYND SEM KEMUR STÖÐUGT Á
ÓVART OG HITTIR BEINT Í MARK!“
- Roger Ebert, Chicago Sun-Times
„STÓRKOSTLEGA ÓNOTALEGT
MEISTARAVERK!“
- David Ansen, Newsweek
„KEMUR MANNI VIRKILEGA
SKEMMTILEGA ÚR JAFNVÆGI!“
- Lisa Schwarzbaum, Entertainment Weekly
„FLÉTTAN KEMUR EKKI Í LJÓS
FYRR EN Í SÍÐASTA ATRIÐINU,
EF MAÐUR HELDUR YFIRSPENNTUM
AUGUNUM VEL OPNUM.
STÓRKOSTLEG KVIKMYND!“
- Richard Corliss, Time
CANNES 2005:
BESTI LEIKSTJÓRI
CANNES 2005:
SÉRSTÖK VERÐLAUN DÓMNEFNDAR
CANNES 2005:
VERÐLAUN GAGNRÝNENDA
BESTA MYND EVRÓPU 2005
Besta mynd Evrópu
árið 2005 frumsýnd
í kvöld kl. 22:30
á Franskri kvikmyndahátíð
í Háskólabíói. Aðeins
er um þrjár sýningar
að ræða í heildina.
Ekki missa af þessu
meistaraverki sem
kom sá og sigraði
bæði á Cannes
kvikmyndahátíðinnni
og Evrópsku
kvikmyndaverðlaununum.*
www.graenaljosid.is
Skráðu þíg á póstlistann og þú gætir
farið frítt á allar myndir Græna ljóssins!
* Myndin er sýnd með enskum texta.
FRUMSÝND Í KVÖLD!
Leikkonan Reese Witherspoonvar ekki ánægð þegar hún frétti
af því að Chanel-kjólinn sem hún var
í á Golden Globe-verðlaunahátíðinni
hefði skotið upp kollinum á Kirsten
Dunst í
veislu í til-
efni af
sömu hátíð
þremur ár-
um fyrr.
Kynn-
ingarstjóri
With-
erspoon,
Nanci
Ryder, hef-
ur sitt að
segja um
málið: „Það
var svekkj-
andi að
kjólinn
hefði verði
notaður áð-
ur en
Reese var
mjög falleg
í honum.
Aðalmálið
er að Reese
hreppti verðlaunin fyrir leik sinn í
Walk the Line.“
Ryder er sögð vera reið vegna
þessa og er haft eftir henni á ýmsum
netmiðlum að enginn skjólstæðinga
hennar muni nokkru sinni klæðast
Chanel eftir þetta. Hún er fulltrúi
m.a. Jennifer Lopez og Renée
Zellweger.
Witherspoon hefur hingað til verið
mikill aðdáandi Chanel og nefndi hún
hund sinn eftir Coco Chanel.
„Árgangskjóll (vintage) þýðir að
kjólinn er ekki úr nýjustu línunni.
Kirstn Dunst notaði ekki kjólinn á
rauða dreglinum á Golden Globe
heldur í eina veisluna. Af okkar hálfu
var þetta ekki vandamál.“
Fólk folk@mbl.is
Hvað segirðu gott?
Ég segi allt hið besta, orðinn spennt-
ur fyrir úrslitakvöldinu sem við í
Breakbeat.is erum að halda í dag.
Ætlum að gera upp árið 2005 og
koma árinu 2006 vel af stað með
heljarinnar dansiballi.
Ertu búinn að sjá Túskild-
ingsóperuna? (Spurt af síðustu að-
alskonu, Höllu Vilhjálmsdóttur.)
Ég sá uppfærslu af henni hjá Nem-
endaleikhúsinu fyrir nokkrum árum,
en hef ekki séð þá sem nú er á fjöl-
unum.
Kanntu þjóðsönginn?
Já, get tekið undir með öðrum í það
minnsta.
Hvenær fórstu síðast til útlanda og
hvert?
Til London, fyrir rétt rúmu ári.
London er mekka drum & bass-
aðdáenda, maður reynir að fara í
pílagrímsferð öðru hverju. Kaupa
plötur og fara á klúbba.
Uppáhaldsmaturinn?
Lambahryggurinn hennar mömmu.
Bragðbesti skyndibitinn?
Thai Style á Smiðjuvegi.
Besti barinn?
Kaffibarinn, annars vantar Reykja-
víkurborg almennilegan nætur-
klúbb.
Hvaða bók lastu síðast?
Beneath the Underdog, sjálfs-
ævisögu Charlies Mingus. Skemmti-
leg bók þótt það sé stundum erfitt að
sjá hvað er satt og hvað skáld-
skapur, skrautleg ævi hjá kauða.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Gestinn í Borgarleikhúsinu, ef ég
man rétt, fyrir þónokkrum árum
samt.
En kvikmynd?
Jarhead, ágætis mynd, aðeins öðru-
vísi stríðsmynd.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Undanfarna mánuði hefur Second
Sun með Calibre verið í mikilli spil-
un. Bumbur og bassar og brotnir
taktar (drum & bass) fyrir dans-
gólfið sem og stofuna heima. Plata
ársins 2005!
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Xið 97,7, sérstaklega þátturinn
Breakbeat.is á miðvikudagskvöldum
23–01!
Besti sjónvarpsþátturinn?
Extras eru magnaðir, þótt þeir nái
ekki alveg sama stalli og Office
gerði.
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í
raunveruleikaþætti í sjónvarpi?
Nei, finnst þetta flestallt frekar lág-
kúrulegt og leiðinlegt.
G-strengur eða venjulegar nær-
buxur?
Fer eftir veðri …
Helstu kostir þínir?
Ég er traustur og duglegur, sam-
kvæmur sjálfum mér.
En gallar?
Ég er oft óþolinmóður og get líka
verið húðlatur.
Besta líkamsræktin?
Tröppurnar á Aðalbyggingu Há-
skóla Íslands eru hressandi á
morgnana.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Rakspíra frá Issey Miyake, svona til
hátíðabrigða í það minnsta.
Ertu með bloggsíðu?
Nei og þyki ég samt netverji mikill.
Pantar þú þér vörur á netinu?
Já geri töluvert af því. Plötur, bæk-
ur, föt, tæki og tól. Tollurinn er samt
ekki mikill vinur manns í þeim efn-
um.
Flugvöllinn burt?
Já það hlýtur að vera hægt að gera
miklu skynsamlegri hluti með allt
þetta land þótt þetta sé mýri.
Að hverju viltu spyrja næsta að-
alsmann?
Hefurðu haldið nýársheitin þín?
Íslenskur aðall | Karl Tryggvason
Ýmist duglegur
eða húðlatur
Aðalsmaður vikunnar er einn umsjónarmanna
útvarpsþáttarins og vefjarins Breakbeat.is sem
heldur árslistakvöld sitt á NASA í kvöld. Sér-
stakur gestur verður El Hornet úr hljómsveit-
inni Pendulum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Tröppurnar á Aðalbyggingu Háskóla Íslands eru hressandi á morgnana.“