Morgunblaðið - 20.01.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
YFIRMAÐUR hjá japönsku verðbréfafyrir-
tæki, sem tengdist yfirtökusamningum hjá net-
fyrirtækinu Livedoor, fannst látinn á miðviku-
dag, að sögn lögreglu. Talið er að hann hafi stytt
sér aldur.
Yfirmaðurinn, Hideaki Noguchi, sem var 38
ára, fannst látinn í hótelherbergi á eyjunni Ok-
inawa. Að sögn yfirvalda á eftir að rannsaka
dánarorsökina. Kyodo-fréttastofan kvaðst í gær
hafa heimildir fyrir því að Noguchi hefði skorið
sig á púls á herbergi sínu í bænum Naha. Hann
var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést.
Noguchi starfaði fyrir verðbréfafyrirtæki
(H.S. Securities), sem tengdist yfirtöku fyrir-
tækisins ValueClick á útgáfufyrirtækinu Money
Life, en ValueClick er forveri dótturfyrirtækis
Livedoor, sem heitir Livedoor Marketing.
Verið er að rannsaka þennan samning og
leiddi það til þess að gengi hlutabréfa í kauphöll-
inni í Tókýó hríðféll á miðvikudag. Loka þurfti
kauphöllinni 20 mínútum fyrr til að tölvukerfið
léti ekki undan, en það hefur aldrei gerst áður að
kauphöllinni hafi verið lokað snemma.
Þetta varð til þess að gengi hlutabréfa á öðr-
um mörkuðum, þ.á m. í Evrópu og Bandaríkj-
unum, féll sömuleiðis. Nikkei-vísitalan náði sér
þó aftur á strik í gær.
Fyrirfór sér eftir
verðbréfahrun
Bagdad. AP. | Tuttugu og þrír týndu
lífi í tveimur sprengjuárásum í
Bagdad í Írak í gær. Þá var óttast
um afdrif þrjátíu og fimm Íraka,
sem höfðu viljað ganga í lögregl-
una, en rútu þeirra var rænt í norð-
urhluta Bagdad og ekið út í eyði-
mörkina.
Fyrra sprengjutilræðið í gær átti
sér stað með þeim hætti að maður
gekk inn á kaffihús í miðborg Bag-
dad og sprengdi sig þar í loft upp,
með þeim afleiðingum að sextán
óbreyttir borgarar biðu bana og
fjöldi manna særðist. Andartökum
síðar sprakk bílsprengja ekki þar
langt frá og týndu sjö manns lífi.
Móðir bandarísku blaðakonunnar
Jill Carroll biðlaði í gær til mann-
anna, sem halda Carroll í gíslingu,
að þyrma lífi hennar en mennirnir
hafa sagt að þeir muni taka Carroll
af lífi í kvöld hafi Bandaríkjaher
ekki sleppt úr haldi öllum kven-
föngum sem nú gista fanga-
geymslur á þess vegum.
Tuttugu og þrír féllu í Bagdad
Reuters
Íraki sem lifði af sprengjutilræði í miðborg Bagdad í gær.
MIKLIR kuldar eru í Rússlandi og Austur-
Evrópu og bendir flest til, að þeir muni standa
mánuðinn út. Í Rússlandi hafa meira en 30
manns orðið úti, þar af sjö í fyrrinótt, og óttast
er, að grípa verði til orkuskömmtunar vegna
gífurlegrar notkunar.
Rússneska dagblaðið Gazeta sagði í gær, að
aðeins tvö dæmi væru um álíka kuldakast á síð-
ustu 100 árum, það fyrra 1940 og það síðara
1979 en þá náði frostið 40 gráðum á Celsíus. Í
gær var það um 30 gráður í Moskvu og búist var
við, að það færi í 37 til 40 í nótt er leið.
Mörg kuldamet hafa fallið á síðustu dögum.
ITAR-TASS-fréttastofan sagði, að til dæmis
hefði frostið farið í 61 gráðu í Jamalo-Nenetskíj,
héraði, sem er um mitt Rússland norðanvert, og
hefur það aldrei mælst meira. Af þeim sökum
lagðist þar niður öll olíuvinnsla.
Umferðin í Moskvu og öðrum rússneskum
borgum er óvenjulítil enda halda sig margir
heima eða geta ekki komið bílunum í gang. Hafa
sumir reynt að taka rafgeyminn inn að kvöldi til
að unnt sé að koma bílnum í gang að morgni en
jafnvel það hefur ekki alltaf dugað til.
Veðurfræðingar spá því, að heldur hlýni um
helgina, að frostið verði ekki nema um 20 gráð-
ur, en síðan kólni aftur í næstu viku.
Í A-Evrópu er kuldinn líka mjög mikill, víða
um 30 gráður í Eystrasaltslöndunum, og þar
hefur verið gripið til sérstakra ráðstafana til að
bjarga útigangsfólki. Á síðustu níu dögum hafa
19 manns orðið úti í Póllandi og 122 alls á þess-
um vetri. Kuldinn hefur valdið miklu álagi á
orkukerfið í Rússlandi og víðar. Rafmagnsnotk-
unin er gífurleg og svo er líka um gas- og olíu-
notkun. Vegna þess dró nokkuð úr gasflutningi
til Evrópu í gær en orkurisinn Gazprom sagðist
þó standa við alla samninga. Tilkynntu stjórn-
völd að gengið yrði á sérstakar olíubirgðir og
m.a. send 60.000 olíutonn til St. Pétursborgar.
Íbúar Rússlands fastir
í klóm fimbulkulda
Frostið 30 gráður á
daginn í Moskvu og
enn meira um nætur
Reuters
Engu var líkara en hann væri höfuðlaus þessi einmana vegfarandi á Rauða torginu í Moskvu í
gær. Hafði hann keyrt höfuðið niður á bringu og dregið frakkann yfir enda frostið um 30 gráður.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
er hins vegar
fimm sinnum
lægra.
Bandaríkja-
stjórn flokkaði
Túrkmenistan
sem „algert ein-
ræðisríki“ í des-
ember. Landið
er undir stjórn
Saparmurats
Niyazovs, sem
nefndur er Túrkmenbasi, eða
„Faðir allra Túrkmena“, og var
lýstur forseti til lífstíðar árið
1999.
Túrkmenistan er auðugt af olíu
og jarðgasi. Gasframleiðslan mun
hafa aukist um 8% á liðnu ári og
Niyazov hefur sagt að hún eigi að
aukast um 37% í ár.
Ashgabat. AFP. | Hagvöxturinn í
Mið-Asíulandinu Túrkmenistan
var 20,7% á liðnu ári samkvæmt
opinberum hagtölum sem birtar
voru í fyrradag. Þær þykja þó
ekki áreiðanlegar.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
(IMF) beitir þeirri aðferð að deila
með þremur í opinberu hagvaxt-
artölurnar til að meta raunhag-
vöxtinn í Túrkmenistan. Vöxtur-
inn mun því hafa verið um 7% á
liðnu ári.
Hagstofa Túrkmenistans spáði
svipuðum hagvexti á þessu ári og
sagði að meðalárstekjur
landsmanna hefðu numið 7.500
dollurum, sem samsvarar um
460.000 krónum, miðað við op-
inbert gengi gjaldmiðils landsins,
manat. Raungengi gjaldmiðilsins
Ótrúleg hagsæld
Túrkmena
Saparmurat
Niyazov
FINNAR geta nú fengið sem sam-
svarar um 200 þúsund íslenskum
krónum í skattafrádrátt á ári ef
þeir kaupa heimilishjálp. Þessu fyr-
irkomulagi var komið á í Finnlandi
árið 2001 og byrjaði sem skattafrá-
dráttur vegna viðhalds á fasteign-
um en hefur verið þróað síðan. Af-
leiðingarnar eru m.a. að
atvinnulausum hefur fækkað og
færri vinna „svart“.
Í sænskum fjölmiðlum er nú tals-
verð umræða um að þetta fyrir-
komulag gæti hentað vel í Svíþjóð.
Málið hefur reyndar verið rætt í
heilan áratug án þess að niðurstaða
hafi fengist, en nú þegar skattafrá-
drátturinn hefur verið tvöfaldaður í
Finnlandi hefur umræðan aftur
komist á flug.
Æ fleiri fjölskyldur, hvort sem er
í Svíþjóð, Finnlandi eða Íslandi,
nýta sér heimilishjálp til að spara
sér fyrirhöfnina og nýta frítímann
frekar með börnunum eða í áhuga-
mál. En margir borga „svart“ og
hafa ekki hátt um að þeir nýti sér
þessa þjónustu.
Í Dagens Nyheter er rætt við
Ulla-Maj Wideroos, fjármálaráð-
herra Finnlands, sem sjálf nýtir sér
skattafrádráttinn vegna heimilis-
hjálpar og er þeirrar skoðunar að
slíkt ætti ekki að vera umdeilt. Hún
vitnar í starfsmanninn sem þrífur
heima hjá henni: „Maður fær vart
meira trúnaðarstarf en að sjá um
heimili einhvers annars.“
Árið 2004 sköpuðust tíu þúsund
ný störf í Finnlandi, átta þúsund
heilsársverk. 175 þúsund heimili í
Finnlandi nýttu sér skattafrádrátt-
inn árið 2004 og að mati Wideroos
mun þeim fjölga í allt að 400 þús-
und, þ.e. sjötta hvert heimili í Finn-
landi, að því er fram kemur í Dag-
ens Nyheter. Kostnaður finnska
ríkisins var 111 milljónir evra eða
um 8,2 milljarðar íslenskra króna.
18.000 ný störf
Á móti kemur að ríkið getur
fengið meiri skatttekjur þegar þeir
sem kaupa þrif eða aðra heimilis-
þjónustu nýta tímann sem sparast í
meiri vinnu og greiða því meiri
skatt. Einnig að „svörtum“ störfum
fækkar um 2.000 og þeir sem þeim
sinna koma upp á yfirborðið. Ríkið
fær því skatttekjur af þeim en þarf
ekki að borga þeim atvinnuleysis-
bætur.
Í leiðara Göteborgs Posten er
fjallað um málið en blaðið er því
hlynnt að taka finnska fyrirkomu-
lagið upp í Svíþjóð en segir sænska
jafnaðarmenn og vinstrimenn hafa
talað gegn þeim hugmyndum og
leitt umræðuna á villigötur með
röngum tölum. Þar segir m.a.: „Af
einhverjum sökum þykir fínt að fá
hjálp frá málara en skömm að því
að ráða starfsmann við þrif. And-
staðan er svo ákveðin að rangar
upplýsingar eru m.a.s. notaðar sem
vopn.“ M.a. hefur verið haft eftir
Maritu Ulvskog, ritara sænska
Jafnaðarmannaflokksins, að fyrir-
komulagið hafi aðeins skapað 800
ný störf í Finnlandi.
Í grein sem Maud Olofsson, for-
maður sænska Miðflokksins, skrif-
ar ásamt Wideroos í Dagens
Nyheter, kemur fram að fyrir-
komulagið er atvinnuskapandi, það
eykur þátttöku kvenna á vinnu-
markaði og fjölgar þeim einnig í
hópi atvinnurekenda. Í greininni
kemur fram að 160 þúsund sænsk
heimili kaupi heimilishjálp og yfir
helmingur borgi „svart“. Ef finnska
fyrirkomulagið yrði tekið upp í Sví-
þjóð, myndi það skapa um 18 þús-
und ný störf.
Skattafrádráttur
vegna heimilishjálpar
Rætt um það í Svíþjóð hvort feta beri í fótspor Finna
Eftir Steingerði Ólafsdóttur í Gautaborg
steingerdur@mbl.is
Búdapest. AFP. | Að minnsta kosti 44 manns fór-
ust í gærkvöldi þegar slóvakísk herflugvél
hrapaði í norðaustanverðu Ungverjalandi, ná-
lægt landamærunum að Slóvakíu.
Flugvélin var á leiðinni frá Kosovo til Slóvak-
íu. „Vélin var í lágflugi og eldur kom upp. Við
getum ekki veitt frekari upplýsingar sem
stendur,“ sagði talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins.
Í vélinni voru alls 48 menn og fyrstu fregnir
hermdu að 44 þeirra hefðu látið lífið, að sögn
talsmannsins. Ekki var vitað um orsök slyssins.
Minnst 44 fór-
ust í flugslysi
♦♦♦