Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 14

Morgunblaðið - 20.01.2006, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BRAGI Michaelsson, ráðgjafi og varabæjar- fulltrúi í Kópavogi, býður sig fram í 2. sæti í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Bragi á að baki mikla reynslu í félags- og stjórnmál- um, hefur verið formaður Týs félags ungra sjálfstæðis- manna í Kópavogi, Sjálfstæð- isfélags Kópavogs og átti lengi sæti í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópa- vogi og sá þá um útgáfu og ritstýrði Vogum, blaði sjálfstæðismanna í Kópa- vogi. Bragi var formaður kjördæmaráðs Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi og sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Hann var vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi 1983–1987. Bragi gegndi formennsku í skólanefnd Kópavogs 1990–2002 og er formaður vinabæjarnefndar í Kópavogi og á sæti í félags- málaráði Kópavogs. Hann hefur gegnt embætti forseta bæjarstjórnar og setið í bæjarráði. Bragi sat sem varaformaður í stjórn knattspyrnudeild- ar Breiðabliks 1994–1999 og er formaður Skóg- ræktarfélags Kópavogs og er félagi í Rótarý- klúbbi Kópavogs. Bragi leggur áherslur á að áfram verði haldið öflugum stuðningi við íþrótta- og æskulýðsmál í Kópavogi. Einnig vill hann að skóla- og leik- skólamál hafi forgang og starfsemi þeirra stofn- ana verði bætt. Bragi Michaelsson Býður sig fram í 2. sæti JÓN Júlíusson, íþrótta- fulltrúi í Kópavogi, gefur kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingar- innar í Kópavogi sem fram fer 4. febrúar nk. Sem íþróttafulltrúi Kópavogsbæjar í tæpa tvo áratugi segist Jón hafa öðlast yfirgrips- mikla reynslu og þekkingu á rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins, þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar og uppbygg- ingu íþrótta- og æskulýðsaðstöðu í bænum á undanförnum árum. Jón hefur jafnframt verið virkur í félagsmálum, sem formaður í Starfsmannafélagi Kópavogs um 12 ára skeið, stjórnarmaður í BSRB og varafor- maður í Lífeyrissjóði starfsmanna Kópa- vogsbæjar. Helstu áherslur Jóns lúta að hinum fé- lagslegu gildum samfélagsins. Hann telur mikilvægt að samhliða örum vexti byggðar fylgi nægt framboð þjónustu við Kópavogs- búa á öllum aldri. Sjá má helstu baráttu- mál á heimasíðunni www.jonjul.is. Jón Júlíusson Gefur kost á sér í fyrsta sæti LÝÐHEILSUSTÖÐ, talsmaður neytenda og umboðsmaður barna hafa farið fram á það við útvarpsrétt- arnefnd að kannað verði formlega hvort íslenskar sjónvarpsstöðvar hafi brotið gegn ákvæðum útvarps- og áfengislaga með heimilun á birt- ingu bjórauglýsinga, kostun dag- skrárliða af hálfu bjórframleiðenda og að áfengi og tengd vörumerki séu áberandi í ákveðnum vörumerkjum. Ef svo reynist vera sem grunur er á er farið fram á að gripið verði til áminningar, sem getur verið nauð- synlegur undanfari stjórnvaldssekta og afturköllunar útvarpsleyfis, skv. útvarpslögum. Í bréfi til útvarpsréttarnefndar, dagsettu 10. janúar sl., kemur m.a. fram að auglýsingar á áfengi, þá að- allega bjór, hafi verið áberandi á auglýsingatímum ljósvakamiðla á nýliðnu ári en einnig virðist sem bæði útvarps- og sjónvarpsþættir séu styrktir af umboðsaðilum eða framleiðendum áfengis. Rakin eru nokkur dæmi þar sem ljósvakamiðl- ar hafa gerst brotlegir og varða þau Ríkissjónvarpið, Sirkus, Skjá Einn og Stöð 2. Sjónvarpsþættir hugsanlega kostaðir ólöglega Meðal þess sem gerð er athuga- semd við er að þátturinn Ástarfleyið, sem sýndur er á sjónvarpstöðinni Sirkus, sé kostaður af Egils Lite bjór, þ.e.a.s Ölgerð Egils Skalla- grímssonar hf., en fram kemur við lok auglýsingahléa í þættinum og í lok hans að Egils Lite bjóði upp á umræddan dagskrárlið, auk þess sem þátttakendur drekki Egils Lite í þáttunum. Þá þykir bera óvanalega mikið á bjórtegundinni Carlsberg og tengd- um vörum í sjónvarpsþættinum Kallakaffi, sem hefur verið á dag- skrá Ríkissjónvarpsins í vetur og eru sem dæmi nefnd vörumerki utan á húsinu sem birtist í upphafi þáttar- ins, bjórdælur, bjórflöskur og annar varningur sem tengist vörunni. Íslenski „Bachelorinn“ er einnig tekinn fyrir en þar þykir bjórteg- undin Tuborg áberandi ásamt öðrum drykkjarvörum sama framleiðanda. Í bréfi Lýðheilsustöðvar, tals- manns neytenda og umboðsmanns barna segir að aðeins sé álitamál og rannsóknarefni hvort greiðsla komi fyrir og ritstjórnarlegu sjálfstæði sé um leið haggað, en í útvarpslögum segir m.a. að útvarpsdagskrá megi ekki vera kostuð af aðilum sem bannað er að auglýsa vöru sína eða þjónustu. Áfengisauglýsingar í prent- miðlum þrefaldast á tíu árum Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna hjá Lýð- heilsustöð, segir allt benda til að áfengisauglýsingar hafi bein og óbein áhrif á væntingar ungs fólks og jákvæð viðhorf til áfengisneyslu. Hann telur það vissulega sigur fyrir forvarnarstarfið ef útvarpsréttar- nefnd muni áminna ljósvakamiðlana og gæti málið orðið fordæmisgef- andi. Ekki hefur aðeins orðið aukn- ing á auglýsingum áfengis í ljósvaka- miðlum, því samkvæmt rannsókn sem Lýðheilsustöð lét gera á síðasta ári á umfangi áfengisauglýsinga í prentmiðlum, kom í ljós að tíðnin hefur þrefaldast síðustu tíu ár. Aðspurður hvort ekki verði herjað frekar á prentmiðla í kjölfarið segir Rafn að reglulega séu áfengisauglýs- ingar í prentmiðlum kærðar til sak- sóknara. Hann segir hins vegar hugsanlegt að menn þurfi að beita öðrum sektarákvæðum því sennilega hætti menn ekki að auglýsa áfengi ef sektirnar séu minni en ágóðinn af aukinni sölu. Rafn segir að stjórn- völdum hafi verið bent á að þörf sé á að skýra reglur um áfengisauglýs- ingar betur og m.a. hafi skýrsla með úrbótatillögum verið tekin saman fyrir ekki alls löngu síðan. Lítill ár- angur hafi þó náðst. Útvarpsréttarnefnd beðin að kanna meint brot íslenskra ljósvakamiðla Auglýsingar á áfengi áberandi á nýliðnu ári Eftir Andra Karl andri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.