Morgunblaðið - 20.01.2006, Side 19

Morgunblaðið - 20.01.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 19 ERLENT 2.000 Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300 - www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is heimur skemmtilegra hluta og hugmynda BLÓMVÖNDUR OG Komdu á óvart á bóndadaginn með blómvendi frá Garðheimum og ávísunum á loforð um samveru og rómantík! Bóndadagsblómvöndur með ást í verki kr Taipei. AFP. | Forseti Taívans hefur skipað fyrrverandi starfsmanna- stjóra sinn sem arftaka Franks Hsieh forsætisráðherra, sem sagði af sér á þriðjudag eftir tæpt ár í embætti. Su Tseng-chang er fyrrverandi mannréttinda- lögmaður og einn stofnenda Lýð- ræðislega fram- faraflokksins, sem situr í rík- isstjórn. Við skipunina sagði forseti Taívans, Chen Shui-bian, að hann hefði mikla trú á visku og heil- indum Su. Hann er vinsælastur leið- toga Lýðræðislega framfaraflokks- ins og er líklegt talið að forseta- embættið kunni að bíða hans. Er þá horft til ársins 2008 þegar kjör- tímabili Chens lýkur. Su Tseng-chang er 59 ára gamall og er iðulega kallaður „eldhnött- urinn“ sökum þess hve líflegur og ákveðinn hann þykir í framgöngu allri. Hann var í hópi stofnenda Lýð- ræðislega framfaraflokksins fyrir um 20 árum og kom þá í fyrsta skipti fram andstaða við Kuomintang- flokk þjóðernissinna, sem ráðið hafði öllu í stjórnmálum Taívans frá klofn- ingnum frá Kína árið 1949. Frank Hsieh sagði af sér á þriðju- dag en hann tók á sig sökina á af- hroði flokksins í sveitarstjórn- arkosningunum, sem fram fóru í desember. „Ég vil þakka forsetanum fyrir að gefa mér þetta tækifæri og ég er reiðubúinn að takast á við áskor- anirnar,“ sagði Su Tseng-chang eftir að hann var skipaður forsætisráð- herra. „Ég vona að við getum öll unnið saman að því að gera Taívan betra.“ „Eldhnött- urinn“ tekur við á Taívan Su Tseng-chang, nýr forsætisráð- herra Taívans. Sydney. AFP. | Herinn í Indónesíu beitti svelti og nauðgunum sem vopni í þau 24 ár, sem hann fór með völdin á Austur-Tímor. Áætlað er, að hann hafi beint og óbeint drepið allt að 180.000 óbreytta borgara. Kemur þetta fram í skýrslu, sem ástralska dagblaðið The Australian hefur kom- ist yfir. Blaðið hefur undir höndum eintak af skýrslunni, sem er 2.500 blaðsíður, en hún var unnin af Sannleiks- og sáttanefndinni á A-Tímor. Mun Xan- ana Gusmao, forseti landsins, af- henda hana Sameinuðu þjóðunum í dag. Í skýrslunni er því nákvæmlega lýst hvernig indónesískir hermenn notuðu napalm-sprengjur og efna- vopn til að eitra matar- og vatns- birgðir í innrás þeirra í A-Tímor 1975 en landið var áður portúgölsk ný- lenda og íbúarnir flestir rómversk- kaþólskir. Rætt er við næstum 8.000 manns, sem urðu vitni að framferði hermannanna, og auk þess stuðst við gögn frá indónesíska hernum og al- þjóðlegar leyniþjónustuupplýsingar. Grófu eða brenndu fólk lifandi Grimmdarverkin voru meðal ann- ars þau að grafa eða brenna fólk lif- andi og stundum voru eyru og jafn- vel kynfæri skorin af og sýnd fjölskyldu viðkomandi. Þá segir The Australian, að þúsundum kvenna hafi verið nauðgað og misþyrmt kyn- ferðislega. „Nauðganir, kynlífsþrælkun og of- beldi voru þau vopn, sem notuð voru til að valda skelfingu og vonleysi meðal A-Tímora og draga úr and- stöðu við hernámsliðið,“ segir nefnd- in í skýrslunni. Eins og fyrr segir er talið, að upp undir 180.000 manns hafi látið lífið í stjórnartíð Indónesa en það er um þriðjungur þjóðarinn- ar. Flestir féllu raunar úr hungri og sjúkdómum en Indónesar sveltu fólkið vitandi vits og það jafngildir útrýmingu og glæpi gegn mannkyni að því er í skýrslunni segir. Var hræddur við að birta skýrsluna Sannleiks- og sáttanefndin afhenti ríkisstjórninni á A-Tímor skýrsluna fyrir nokkrum mánuðum en Gusmao forseti hefur haldið henni leyndri hingað til af ótta við að vekja reiði Indónesa. Nú hefur hann þó tekið af skarið og ætlar að afhenda hana SÞ í New York í dag. Indónesar lögðu undir sig A-Tímor 1975 með þegj- andi samþykki stórveldanna, þar á meðal Ástralíu, en grimmdaræði þeirra sneri loks almenningsálitinu í heiminum gegn þeim. Fengu A-Tím- orar að kjósa um sjálfstæði 1999, sem þeir og völdu, en það leiddi til blóðugra hefndaraðgerða vopnaðra sveita, sem Indónesar studdu. Skár- ust þá önnur ríki í leikinn undir for- ystu Ástrala og komu á friði. Austur- Tímor varð sjálfstætt ríki í maí 2002 en er eitt fátækasta ríkið í Asíu. Beittu svelti og nauðgunum sem vopni á Austur-Tímor Áætlað er að Indó- nesar hafi drepið beint eða óbeint þriðjung þjóðarinn- ar á Austur-Tímor Reuters Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hughreystir fólk á Austur-Tímor, sem misst hafði ættingja og vini í fjöldamorðum vopnaðra sveita, sem stjórnvöld í Indónesíu studdu, í febrúarmánuði árið 2000. Prag. AP. | Vaclav Havel, fyrrverandi forseti Tékk- lands, kveðst vona að Hillary Clinton verði næsti forseti Bandaríkjanna. Tékkneska fréttastofan CTK hafði eftir Havel á miðvikudag að hann hefði löngum verið þeirrar hyggju, að mjög skorti á að „hið kvenlega“ fengi notið sín á stjórnmálasviðinu. „Hillary er afar vel gefin og hæf kona,“ sagði Havel í samtalinu. „Ólíkt öðrum stjórnmálamönnum er hún skýr og skorin- orð í málflutningi sínum. Hún er fær um að hlýða með athygli á sjónarmið þeirra, sem hún er ekki sammála, og áhugi hennar er ekki kominn til sök- um kurteisi heldur er hann sannur,“ bætti hann við. Í Bandaríkjunum magnast nú mjög vangaveltur um að Hillary, eiginkona Bills Clintons, sem var forseti Bandaríkjanna frá 1993 til 2001, hyggist gefa kost á sér í forsetakosningunum haustið 2008. Hillary Clinton er nú þingmaður fyrir New York- ríki. Havel, sem er 69 ára að aldri, er ágætur vinur Clinton-hjónanna. Hann varð forseti Tékkóslóv- akíu við hrun kommúnismans árið 1989. Árið 1993 þegar Tékkóslóvakía klofnaði í Tékkland og Slóv- akíu varð hann forseti Tékklands og hafði þann starfa með höndum til ársins 2003. Vaclav Havel styður Hillary Clinton

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.