Morgunblaðið - 20.01.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.01.2006, Qupperneq 20
Breiðdalsvík | Helga Hrönn Melsteð grípur oft á tíðum í suðuna á Bifreiðaverkstæði Sig- ursteins á Breiðdalsvík. Hún á og rekur verkstæðið ásamt manni sínum Ingólfi Finnssyni og líklega nóg að gera í bíla- viðgerðunum eins og í öðrum plássum. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Gripið í suðuna Viðgerðir Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds- dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu Fólk ársins | Mæðginin Guðmundur Kristinn Jónsson tónlistarmaður, og Krist- ín Kristjánsdóttir, kaupmaður í Kóda, hafa, hvort á sínu sviði, unnið mikið og gott starf á Suðurnesjum til framdráttar og kynningar á síðustu árum. Víkurfréttir hafa valið þau fólk ársins á Suðurnesjum 2005, að því er fram kemur á fréttavefnum vf.is, og afhent þeim viðurkenningar af því tilefni. Guðmundur Kristinn er í forsvari tveggja af vinsælustu hljómsveitum á Ís- landi og er auk þess meðeigandi í Upp- tökuheimili Geimsteins þar sem margt ungt og efnilegt tónlistarfólk hefur tekið sín fyrstu spor í gegnum árin. Kristín hef- ur hins vegar rekið verslunina Kóda, í sam- starfi við aðra, í 20 ár og hefur auk þess verið einn af öflugustu talsmönnum versl- unar- og þjónustuaðila á Suðurnesjum. Þá er enn ógetið áralangs sjálfboðastarfs hennar í þágu íþrótta og æskulýðsmála.    útum fyrir útdrátt og keypt fleiri vinninga varð hagnaður af happdrætt- inu. Að höfðu samráði við leikskólastjóra Krílakots var ákveðið að Lions- klúbburinn festi kaup á DVD-spilara og ellefu mynddiskum og færði leikskólanum að gjöf. Sá háttur er hafður á að börnin fá „bíó“ u.þ.b. einu Á aðfangadags-morgun um síð-ustu jól hélt Lionsklúbbur Ólafsvíkur leikfangahappdrætti í Fé- lagsheimilinu Klifi. Happ- drættið er fyrst og fremst hugsað til að dreifa huga barnanna fyrir jólin en ekki fjáröflun. Stefnt hef- ur verið að því að kaupa vinninga fyrir alla inn- komuna. Jólin 2004 brugðust áætlanir lionsmanna. Sala varð talsvert meiri en gert hafði verið ráð fyrir svo hagnaður varð af happdrættinu. Ákveðið var að verja honum til að kaupa bækurnar Íslensk- ir fuglar og Íslensk spen- dýr og gefa til Leikskól- ans Krílakots. Um síðustu jól jókst sal- an enn og seldust 1153 miðar. Þrátt fyrir að fé- lagar í klúbbnum hafi hlaupið í búðir fimm mín- sinni í mánuði og munu myndirnar því endast eitthvað fram eftir ári. Aðalsteinn Snæbjörns- son afhenti Árdísi Krist- ínu Ingvarsdóttir gjaf- irnar. Með þeim á myndinni er Jónas Gestur Jónasson, formaður happdrættisnefndar, og nokkur áhugasöm leik- skólabörn. Morgunblaðið/Alfons Færðu Krílakoti gjafir Helgi Kristjánsson íÓlafsvík sendirSteingrími J. Sigfússyni góðar kveðjur og bataóskir með þessu „læknisvottorði“: Rifin brotnuðu þykk og þunn það er mikill bagi. En ekkert hindrar muna og munn, því málbeinið er í lagi. Arnþór Helgason sendi vísu á leirinn, póstlista hagyrðinga, með undir- skriftinni „endurborinn bjartsýnismaður“: Aftur verður vor á Leir, vænkast okkar hagur. Strýkur vanga þýður þeyr þegar lengist dagur. Rúnar Kristjánsson yrkir um markaðsdorgaraliðið: Sjálfhverfunnar sultarlið sífellt er á veiðum. Óhæfuna alið við eftir markaðsleiðum. Fer í kringum efni og orð, ákaft stundar pretti. Fyrir aðra ber á borð baneitraða rétti! Sjálfhverft sultarlið pebl@mbl.is Suðurnes | Kynnisferðir ehf. hafa keypt 60% hlutafjár í sérleyfis- og hópferðafyr- irtækinu SBK hf. í Keflavík. Kynnisferðir hafa því eignast félagið að fullu því fyrir áttu þær 40% hlutafjár og verður rekst- urinn sameinaður. SBS hf. byggir á gömlum grunni, en það var stofnað árið 1930, þegar áætlunarferðir hófust milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Félagið annast rekstur strætisvagna á Reykjanesi, sérleyfisferða milli Reykjavík- ur og Keflavíkur, leigu á rútum fyrir hvers- konar hópferðir og skólaakstur fyrir Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Kynnisferðir ehf. voru stofnaðar árið 1968 og hafa sérhæft sig í rekstri dags- ferða fyrir erlenda ferðamenn, sérleyfis- akstri um Suðurland allt til Hafnar í Hornafirði og í rekstri Flugrútunnar til Keflavíkurflugvallar. Auk þess reka Kynn- isferða ýmiskonar sérferðir og leigja út rútur fyrir stóra og smáa hópa. Í tilkynningu um sameininguna kemur fram að með sameiningu þessara tveggja félaga er þess vænst að sú góða þjónusta sem SBK hf. hefur veitt Suðurnesjabúum hingað til verði ekki lakari. SBK hf. mun áfram annast akstur strætisvagna, skóla- bíla og sérleyfisbifreiða milli Keflavíkur og Reykjavíkur. SBK samein- ast Kynnis- ferðum Hveragerði | Bæjarstjórn Hveragerðis- bæjar hefur úthlutað Rafmagnsveitum rík- isins lóðinni Mánamörk 2 undir þá starf- semi fyrirtækisins sem nú er á Selfossi. Mikilvægt er að í bæjarfélaginu sé örugg og góð nærþjónusta þar sem fyrirtækið á og rekur dreifikerfi rafmagns í Hvera- gerði, segir í frétt á vef Hveragerðisbæjar. Áætlað er að við flutninginn komi 10 til 14 ný stöðugildi til Hveragerðis. Meirihluti bæjarstjórnar bókaði á síðasta fundi sínum að hann fagnaði því að Rarik hefði tekið þá ákvörðun að flytja starfsemi sína í bæj- arfélagið. Rarik óskaði jafnframt eftir stækkun á lóðinni og er það mál til athug- unar. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæj- arráði lýsti yfir ánægju sinni með að Rarik skyldi standa við gefin loforð um flutning á starfsemi til bæjarins en gagnrýndi að fyr- irtækinu hefði verið úthlutað eftirsóttri lóð án auglýsingar. Rarik flytur starfsemi til Hveragerðis ♦♦♦ Trölli| Ferðafélagið Trölli hefur verið formlega stofnað í Ólafsfirði. Stefna félagsins er að vinna að upp- byggingu ferðamála í Ólafsfirði ásamt al- mennri ferðamennsku, segir í frétt á vefn- um dagur.is. Félagið mun standa fyrir gönguferðum og uppákomum sem vonast er til að veki áhuga í Ólafsfirði og ná- grenni. Félagið dregur nafn sitt af Tröllaskaganafninu en svo nefnist fjalla- klasinn utanvert milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Tröllaskaginn er samfelld áskorun á göngufólk með öllum sínum margbreytilegu gönguleiðum. HÉÐAN OG ÞAÐAN Búið að safna 8 milljónum | Söfnun fyrir nýjum röntgenmyndabúnaði fyrir Heilsu- gæslustöðina á Höfn er komin í átta milljónir króna en enn vantar rúmar þrjár milljónir. Guðrún Júlía Jónsdóttir sagði við vefinn hor- nafjordur.is að nú yrði farið að ganga frá pöntun á tækjunum í þeirri von að fleiri leggi málinu lið, því það væri allra hagur að geta búið heilsugæslustöðina þeim tækjum sem bæta öryggi íbúanna og eru oft og tíðum lífs- nauðsynleg. Margir einstaklingar hafa lagt þessu máli lið og t.d. gáfu hjón, sem ekki vilja láta nafn síns getið, 5 milljónir, Skinney Þinganes gaf 1,8 milljónir, Lionsklúbburinn Kolgríma 200 þúsund og Hornafjarðardeild Rauða krossins gaf 500 þúsund. Nú er vonast til að bæjaryfirvöld, útgerðir og fyrirtæki taki þátt í átakinu svo hægt verði að kaupa búnaðinn sem fyrst.    Komum Kópavogi í fremstu röð sveitarfélaga hvað varðar lífsgæði íbúanna! Kjósum Lovísu Ólafsdóttur í 5. sætið. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fer fram 21. janúar nk. Kosið er í Hlíðasmára 19 á laugardaginn milli kl. 9–18
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.