Morgunblaðið - 20.01.2006, Side 35

Morgunblaðið - 20.01.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 35 UMRÆÐAN KÓPAVOGUR er bær í örum vexti og á skömmum tíma hefur ris- ið upp eitt stærsta bæjarfélag landsins. Krafturinn leynir sér ekki og hvert sem litið er sést uppbygg- ing og framkvæmdir til stækkunar og fegrunar bæjarins. Þjónusta bæjarins við íbúa sína hefur á síð- ustu árum stóraukist og er nú með því besta sem býðst. Þar má m.a. nefna öflugt íþróttastarf með íþróttamannvirkjum í fremstu röð. Það hefur líka verið gott framboð á menningu sem og annarri afþrey- ingu í gegnum lista og bókasöfn og aðrar menningarmiðstöðvar. Í Kópavogi starfa tíu grunnskólar og á þessu kjörtímabili hefur verið unnið að auknu sjálfstæði skólanna með samningi bæjaryfirvalda og skólastjórnenda sem hefur fært ákvörðunarvald í meiri mæli til skólanna sjálfra. Það mun skila sér í sveigjanlegra skólastarfi og í rekstri þeirra. Leikskólarnir eru nú sextán og fjórir af þeim einkareknir. Nú geta öll börn sem hafa náð tveggja ára aldri fengið pláss á leikskólunum, sem verður að teljast gott í ljósi mikillar fjölgunar íbúa á skömmum tíma. Mótuð hefur verið sameig- inleg stefna í innra starfi þeirra en huga má að því að auka sjálfstæði þeirra líkt og gert hefur verið við grunnskólana. Í málefnum aldraðra er mik- ilvægt að fjölga valkostum í hús- næðismálum með það að leiðarljósi að öldruðum verði gert kleift að búa sem lengst í eigin húsnæði. Annar kosturinn er sá að styðja fólk til að halda því húsnæði sem það þegar hefur og hinn kosturinn er sá að bjóða til kaups sérbýli á einni hæð með eða án þjónustu. Kópavogur á að taka forystu í þessum málaflokki m.a. með því að sameina heimaþjón- ustu og heima- hjúkrun og fjölga búsetukostum. Breytt kerfi al- menningsvagna hef- ur ekki farið framhjá íbúum Kópavogs en því miður hefur notkun almenningsvagna farið minnkandi undanfarin ár. Ástæðan er að börn, unglingar og eldri borgarar geta ekki nýtt sér kerfið, þar sem þörfum þeirra til ferða innanbæjar hefur ekki verið nægilega sinnt. Það er því mjög brýnt að fjölga ferðum innanbæjar í tengslum við skóla, íþróttamannvirki og ann- að félagsstarf sem getur nýst bæði ungum sem öldnum. Á árum áður var Kópa- vogur aðhlátursefni þegar komið var að umræðunni um gatnakerfi og umferð. Nú er tíðin önnur og bær- inn hefur byggst hratt upp með skipulag nútímaumferðar að leið- arljósi. Nú er staða umferðarmála í raun mun betri en í grannsveit- arfélögunum sem búa við umferð- arteppur og biðraðir. Þetta bitnar að sjálfsögðu á okkur Kópavogsbú- um og við þurfum að leysa þetta vandamál í samvinnu við önnur sveitarfélög. Til dæmis mætti leggja ofanbyggðarvegi eða stórhringleiðir eins og tíðkast í öðrum stórborgum. Það hefur á undanförnum árum reynst býsna gott að vera Kópa- vogsbúi. Flestir geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi varðandi útivist og aðrar tómstundir, auk þess sem bærinn hefur stutt vel við þá sem þurfa á stuðningi hans að halda. Með því að velja kraftmikið fólk sem myndar öfluga forystusveit í bænum er unnt að halda þessu starfi enn frekar áfram og skila íbú- um Kópavogs þeim árangri sem þeir eiga skilinn. Kópavogur þjónar íbúum sínum Eftir Margréti Björnsdóttur ’Krafturinn leynir sérekki og hvert sem litið er sést uppbygging og framkvæmdir til stækk- unar og fegrunar bæj- arins. ‘ Margrét Björnsdóttir Höfundur er varabæjarfulltrúi, formaður umhverfisráðs og gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Prófkjör Kópavogur Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir Nr. 1 í Ameríku APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa - Gulli betri Acidophilus FRÁ Fyrir meltingu og maga Sterkur acidophilus 20% vi›bót arafsl áttur af allri út söluvöru . Reikna st af við kassann. 990 kr. 1.990 kr. 2.990 kr. 4.990 kr. 6.990 kr. S M Á R A L I N D ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 3 10 23 0 1/ 20 06 bláa bomban 495 kr. 995 kr. 1.495 kr. 2.495 kr. 3.495 kr. -50% -50% -50% -50% -50% -20% -20% -20% -20% -20% 396 kr. 796 kr. 1.196 kr. 1.996 kr. 2.796 kr. Upprunalegt verð: 50% afsláttur af allri útsöluvöru: 20% viðbótarafsláttur á Bláu bombunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.