Morgunblaðið - 20.01.2006, Page 61

Morgunblaðið - 20.01.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2006 61 FRÉTTIR Nú bjóðum við til janúarveislu á Kanarí á frábærum kjörum. Við bjóðum stökktu tilboð á ótrúlegu verði. Bókaðu strax og tryggðu þér sæti og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Kanarí 24. eða 31. janúar frá kr. 29.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Síðustu sætin Verð kr. 29.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku, stökktu tilboð 24. og 31. janúar. Innifalið flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000 á mann. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó í viku, stökktu tilboð 24. og 31. janúar. Innifalið flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000 á mann. HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG Ís- lands kynnir íslenska þjóðbúninga; karlmannabúninginn og faldbúning- inn frá um 1800, laugardaginn 21. janúar kl. 11–13, í húsnæði félagsins á Laufásvegi 2. Verður kynning á búningum, sýn- ing á vinnubrögðum þeim tengdum, veittar upplýsingar um hvernig skal klæðast búningunum og upplýsingar um námskeið. Allir eru velkomnir og ókeypis aðgangur. Kynna íslenska þjóð- búninga á morgun SÓLARKAFFI Ísfirðingafélagsins verður haldið í Broadway á Hótel Íslandi föstudaginn 27. janúar nk. og fer forsala aðgöngumiða fram á Broadway á morgun, laugardaginn 21. janúar, kl. 14–16. Veislustjóri verður Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrverandi sýslu- maður á Ísafirði og núverandi sýslumaður í Árnessýslu. Ýmis skemmtiatriði verða, m.a. koma fram Bjarni Ara söngvari og Helgi Björnsson, söngvari og leikari. Ræðumaður verður Elín Alma Arthúrsdóttir. Þá leikur Reynir Guðmundsson með hljómsveitinni Saga Class fyrir dansi fram eftir nóttu. Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins KVENFÉLAGIÐ Baugur í Gríms- ey gaf á dögunum Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri rakatæki sem notað er við öndunarvél á gjörgæslu- deild sjúkrahússins. Með rakatæk- inu nýtist öndunarvélin bæði börn- um og fullorðnum. Frá þessu var sagt í Morgunblaðinu í gær, en mis- skilnings gætti varðandi tækið. LEIÐRÉTT Nýtist börnum og fullorðnum Á FUNDI Félags leiðsögumanna (FL), sem haldinn var á Grand hóteli 18. janúar sl., var ákveðið að skora á Ástu Óla Halldórsdóttur, formann FL, að segja af sér á aðalfundi fundi félagsins – sem fram fer í næsta mánuði. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum, með 27 atkvæðum gegn 11, segir að starf FL hafi einkennst af athafnaleysi og lakri þjónustu við félagsmenn undanfarna mánuði. „Skrifstofan er ekki sá bakhjarl fé- lagsmanna sem gera verður kröfu um, bæði gagnvart viðsemjendum félagsins og um miðlun upplýsinga til atvinnurekenda um starfandi fé- lagsmenn sem vantar vinnu,“ segir í ályktun fundarins. Ennfremur segir að viðhorf for- mannsins gagnvart viðsemjendum og félagsmönnum einkennist af pukri, neikvæðni og litlum sam- starfsvilja á vettvangi hagsmuna- mála félagsmanna. Formaður FL sé kosinn til tveggja ára og eigi Ásta Óla enn ár eftir í formannssæti. Skora á for- manninn að segja af sér Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.